Sýnir færslur með efnisorðinu Froskur útgáfa. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Froskur útgáfa. Sýna allar færslur

1. september 2026

236. VEISLA FRÁ FROSKI

Jibbbííí!!! Það er nú aldeilis von á góðum pakka frá Froski útgáfu á næstu dögum ef marka má tilkynningu þess efnis sem forlagið birti á Facebook síðu sinni í dag. Íslendingasögur í myndasöguformi, Viggó viðutan, Ástríkur og heilar tvær bækur með Sval og Val. Sem sagt algjör veisla. Sérstaklega er SVEPPAGREIFINN ánægður með að sjá loksins söguna Bjargað fyrir horn með Sval og Val en þá bók er hann búinn að bíða lengi eftir að sjá í íslenskri þýðingu. Nú mega sko allir flykkjast í Nexus (eða hvert þangað sem þessar myndasögur fást) og hreinlega versla þessar bækur upp til agna. Þannig getur Froskur haldið áfram að þrífast og dæla teiknimyndasögum í okkur myndasöguunnendur á öllum aldri. Sjálfur mun SVEPPAGREIFINN fjárfesta í að minnsta kosti tveimur eða þremur af þessum bókum í fyrsta áfanga og innan skamms tíma eiga þær allar eftir að fá pláss í myndasöguhillum heimilisins. ÁFRAM FROSKUR!

6. júlí 2025

233. FRÁBÆR FROSKUR

SVEPPAGREIFINN hefur aldrei verið nógu duglegur að hrósa Froski útgáfu nægilega, hérna á Hrakförum og heimskupörum, fyrir hennar framlag til myndasöguútgáfu hér á landi á undanförnum árum. Síðuhafi hefur lengi ætlað að setja inn færslu á bloggsíðuna sína til að vekja athygli á þessu frábæra framtaki sem Froskur hefur skilað til íslenskrar myndasöguútgáfu en það sem ýtti loksins við SVEPPAGREIFANUM voru þrjár glænýjar teiknimyndasögur frá útgáfunni sem komu í verslanir núna í júní. Þetta eru Tinna bókin Svarta gullið (bæði harðspjalda og í mjúku kiljuformi), Sval og Val sagan Baráttan um arfinn og níunda Viggó bókin Snúningar og sneypufarir. Allt eru þetta reyndar bækur sem komið hafa út áður hér á landi en eru að sjálfsögðu löngu horfnar úr öllum venjulegum bókabúðum. Það er helst að gömul og lúin eintök af þeim birtist á einstaka nytjamörkuðum eða til sölu á þartilgerðum sölusíðum á Netinu fyrir morð fjár. Bókin um Viggó er reyndar ekki nákvæmlega sú sama og Iðunn gaf út árið 1982 en sú útgáfa hét Viggó - á ferð og flugi og hafði að geyma einhvers konar samansafn af Viggó bröndurum, frá svipuðum tíma, sem ekki var endilega raðað upp í réttri röð. Viggó 9 - Snúningar og sneypufarir er hins vegar í réttri tímaröð og er því tæknilega sú rétta og tilheyrir auðvitað þannig upphaflegu útgáfuröðinni.

Allar eru þessar bækur Frosks með nýrri íslenskri þýðingu og Baráttan um arfinn (1952) hefur að geyma upprunalegu bókakápuna sem ekki var raunin með útgáfu bókarinnar sem Iðunn gaf út árið 1980. Sú bókarkápa, sem íslenskir lesendur þekkja síðan þá, var teiknuð af danska listamanninum Peter Madsen (sem auðvitað er kunnastur fyrir Goðheimabækurnar) og var höfð á norrænu útgáfunni af bókinni sem allar voru gefnar út á þessum svipaða tíma. Um það allt saman hefur SVEPPAGREIFINN fjallað áður og má lesa um hér. Annars má einnig geta þess að í nýju Frosks útgáfunni má sjá tvær heilsíðu myndir sem ekki koma fyrir í Iðunnar bókinni frá árinu 1980.

Í gömlu íslensku útgáfunni má einnig finna örsöguna Fælið ekki fuglinn (Touchez pas aux rouges-gorges) sem er tveggja blaðsíðna saga eftir Franquin og birtist til uppfyllingar aftast í bókinni. Sú saga fjallar um það þegar Gormur tekur að sér að verja rauðbrystingshreiður, fyrir ketti einum, í garði Sveppagreifans og margir muna eflaust eftir úr gömlu bókinni. Fælið ekki fuglinn er frá árinu 1956 og er því fjórum árum yngri en Baráttan um arfinn og á auðvitað ekkert erindi í bókina. Sagan birtist fyrst í SPIROU (blaði númer 936) þann 22. mars árið 1956 og kom síðan fyrir sem aukasaga í bókinni La Mauvaise tête sem ekki hefur enn komið út hér á landi. Sú bók kemur vonandi einnig út hjá Froski á næstu árum - enda ein af uppáhalds Svals og Vals sögum SVEPPAGREIFANS.

Eftir því sem SVEPPAGREIFANUM skilst þá stóð víst ekki til að Svarta gullið kæmi út hjá Froski fyrr en í haust en eitthvað hafa þær fyrirætlanir breyst og auðvitað er bara algjörlega geggjað að fá myndasögur um Sval og Val, Viggó viðutan og Tinna allar á einu bretti. Og þá er Ástríkur á Korsíku væntanleg fyrir jólin, ásamt einhverjum fleirum titlum, en sú bók hefur ekki komið áður út í íslenskri þýðingu. Það skýrist svo væntanlega þegar að líða fer á haustið hvað fleiri titla Froskur útgáfa kemur til með að bjóða upp á fyrir næstu jól. Frábært framtak og lesendur teiknimyndasagna og safnarar þeirra á Íslandi eiga Froski því virkilega mikið að þakka.

Þegar Fjölvi, með Þorstein Thorarensen í broddi fylkingar, hóf að gefa út myndasögurnar um Tinna og síðan Ástrík, snemma á áttunda áratug 20. aldarinnar, skapaðist strax grundvöllur fyrir útgáfu þessara vinsælu bókasería fyrir börn og unglinga fyrst og fremst. Íslensk ungmenni höfðu reyndar áður fengið örlítinn smjörþef af teiknimyndasögum, um það bil áratug fyrr, þegar bókaútgáfan Ásaþór í Keflavík lagði út í metnaðarfulla útgáfu á sögunum um Prins Valíant en það var ekki fyrr en léttmetið, í formi Tinna og Ástríks birtist, að myndasöguboltinn fór að rúlla fyrir alvöru á Íslandi. Á næstu árum bættust Lukku Láki og fleiri í hópinn hjá Fjölva og bókaútgáfan Iðunn hóf einnig að gefa út vinsælar seríur með Sval og Val, Viggó viðutan, Strumpunum og mörgum fleirum. Þessa sögu þekkja allir og fáeinar kynslóðir sammæltust um drekka í sig þetta vinsæla bókmenntaform sem teiknimyndasögur vissulega voru. En svo fjaraði smám saman undan vinsældunum og eitthvað annað tók við. Börn og unglingar hættu svo sem ekkert endilega að lesa bækur heldur breyttust lestrarvenjur þeirra bara og annars konar bókaform eða efni tók yfir. Hver ástæðan var liggur svo sem ekkert augljóslega fyrir en í það minnsta hættu myndasögur að mestu að koma út á Íslandi í kringum 1991-2 þar sem ekki var lengur grundvöllur fyrir útgáfu þeirra hér. 

Einhverjar tilraunir voru reyndar gerðar á næstu árum, hjá metnaðarfullum aðilum, við að reyna að glæða í myndasöguáhuganum en viðbrögðin urðu aldrei nægilega mikill. Þarna var reynt að virkja þær kynslóðir sem drukkið höfðu í sig gömlu góðu bækurnar og markhópurinn var því að mestu orðið fullorðið fólk en líklega var efnið sem boðið var uppá bara ekki nægilega áhugavert. Fólkið virtist einfaldlega frekar vilja framhald af því sem þær kynslóðir höfðu lesið sem börn. Mest var þetta á vegum útgáfu sem nefndist Nordic comics og reyndi einnig að halda úti tímariti sem kallaðist Zeta en allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir metnaðar- og hugsjónafullar tilraunir og drauma virtist útgáfa teiknimyndasagna á Íslandi alveg hafa lognast útaf upp úr aldamótunum.

En svo kom Froskur útgáfa til sögunnar. Eða öllu heldur franski listamaðurinn Jean Antoine Posocco sem settist að á Íslandi á seinni hluta 20. aldarinnar og byrjaði að gefa aftur út gamalkunnar belgísk/franskar myndasöguseríur í fyrsta sinn í mörg ár. Fyrstu sögurnar hófu að koma út árið 2012 og hjörtu þeirra kynslóða, sem upplifðu blómatíma teiknimyndasagna á íslensku, fóru að slá hraðar þegar bækur með Sval og Val, Ástrík og Viggó viðutan tóku að birtast í bókahillum verslana á ný. Og ekki minnkaði gleðin þegar Lukku Láki, Strumparnir og sjálfar Tinna bækurnar fóru einnig að sjást aftur. Jean Antoine Posocco kynnti ennfremur til sögunnar nýjar seríur sem yngri kynslóðir fengu nú tækifæri til að kynnast en að mati SVEPPAGREIFANS er þó mesti fengurinn í gömlu seríunum. Tinna bækurnar eru sígildar og nýjar þýðingar, útlit og tvö mismunandi brot gera þær ekki bara að safngripum heldur verða eldri útgáfurnar frá Fjölva um leið einnig verðmætari í komandi framtíð. Þær munu aldrei verða endurútgefnar aftur í þýðingum þeirra Þorsteins Thorarensen og Lofts Guðmundssonar. Flestar bóka Frosks með Ástríki og Sval og Val höfðu ekki komið út áður hér á landi og þær stöku bækur úr þeim seríum, sem eru endurútgefnar, hafa verið illfáanlegar í áratugi og hafa nú yfir að ráða glænýjum þýðingum. Engin af Lukku Láka bókum Frosks höfðu komið út hér á Íslandi áður og er því alveg sérstaklega mikill fengur í þeim. Allar þessar nýju teiknimyndasögur eru því vel þegnar og eru hluti af þeirri metnaðarfullu stefnu Jean Antoines að gefa út heilu seríurnar með tíð og tíma. Í fljótu bragði telst SVEPPAGREIFANUM til að bækur þessara gömlu grónu bókasería séu komnar vel á sjötta tug titla hjá Froski og í heildina séu líklega komnar út á bilinu 130-140 teiknimyndasögur alls - hugsanlega fleiri. Þó upplögin séu sennilega ekki jafn umfangsmikil og stóru forlögin voru að senda frá sér hér á árum áður þá er þetta nú þegar orðnir álíka margir titlar og jafnvel fleiri en bæði Fjölvi og Iðunn gáfu út á sínum blómatíma. Það er alveg frábært og Froskur virðist hvergi nærri hættur.

Þó útgáfa þessara bóka hafi farið af stað með miklum metnaði hefur raunsæin ráðið ríkjum frá upphafi. Froskur hefur allt frá upphafi án nokkurs vafa tekið heilmikla áhættu með útgáfunni og skynsemin ráðið því að aldrei hefur verið ráðist í of mikið í einu. Hugsjón er því fyrst og fremst orðið sem kemur upp í hugann þegar Froskur útgáfa er nefnd til sögunnar og því miður er ólíklegt að Jean Antoine Posocco eigi nokkurn tímann eftir að verða ríkur af þessari áhættusömu útgáfu. SVEPPAGREIFINN hvetur því alla unnendur teiknimyndasagna til að flykkjast í bókabúðir og versla sér þessar bækur Frosks útgáfu. Á meðan einhver kaupir og les þessar myndasögur heldur útgáfa þeirra áfram en mun eflaust alltaf verða rekin af hugsjóninni einni og mikilvægt er að Jean Antoine þurfi ekki að borga með sér. SVEPPAGREIFINN setti sér það viðmið fyrir nokkrum árum að versla eina nýja myndasögu á mánuði allt árið en hefur reyndar sjaldnast staðið við þá reglu. Sjálfur kíkti GREIFINN því í Nexus nú í vikunni og verslaði sér allar nýju bækurnar þrjár á einu bretti. Hann sá ekki neitt eftir því og hefur reyndar margoft eytt aurunum sínum í miklu óþarfari hluti í gegnum tíðina. Auðvitað eru myndasögur ekki ókeypis frekar en aðrar bækur en til gamans má geta að bæði Svals og Viggó bækurnar kostuðu í kringum 3500 krónur hvor. Það er svipuð upphæð og SVEPPAGREIFINN greiddi fyrir létt bakkelsi (beikonbræðing, sérbakað vínarbrauð, kaffibolli og kók í plasti) í Bakarameistaranum á meðan hann beið eftir að Nexus opnaði. Bækurnar eru eitthvað dýrari í til dæmis Hagkaup en langbest er auðvitað að heimsækja Froskinn sjálfan í Vatnagörðum og versla þannig beint frá býli.

15. desember 2017

37. HVAÐ ER AÐ KOMA ÚT AF MYNDASÖGUM FYRIR JÓLIN?

Nú styttist í jólin og því alveg orðið tímabært hjá SVEPPAGREIFANUM að kanna aðeins og kíkja á hvaða teiknimyndasögur eru að koma út á íslensku fyrir hátíðarnar. Eitthvað verðum við, unnendur þessara skemmtilegu bókmennta, að eiga til að hafa ofan af fyrir okkur í slökun með uppþembdan mallakútinn eftir Hamborgarhrygg og ís hátíðarinnar. Í minningunni var líklega fátt notalegra yfir jólin en náttbuxnadagar í góðum hægindastól, með teppi yfir sér og með kisu og nýjustu teiknimyndasögurnar í fanginu. Og ekki var verra að hafa fáeinar jólasmákökur eða konfekt og Malt og appelsín á kantinum.

Eftir nokkurra áratuga myndasögusvelt eiga íslenskir myndasöguaðdáendur nú aftur kost á að eignast skemmtilegar teiknimyndasögur frá bestu listamönnum slíkra bókmennta í heiminum. Það getum við þakkað aðstandendum Frosks útgáfu sem hafa verið duglegir við að gefa út myndasögur á undanförnum árum. Líklega er magn þeirra engan veginn í þeim mæli sem þekktist hér á árum áður þegar tugir bóka voru gefnar út á ári hverju. En þó ... Froskur útgáfa var að senda frá sér um 10-12 titla á ári fyrstu árin og þeim fer frekar fjölgandi því að á síðasta ári voru þeir líklega 17 talsins. Núna fyrir jólin eru að koma út 16 bækur frá útgáfunni en á árinu 2017 eru líklega samtals hátt í 30 titlar í boði hjá Froski. Þetta er því farið að minna á gullaldarárin og gaman væri ef fleiri forlög sæu sér fært um að taka þátt á myndasöguútgáfunni. En best að skoða það helsta sem er að koma út hjá Froski útgáfu fyrir jólin og fellur undir áhugasvið þessarar myndasögusíðu SVEPPAGREIFANS.


ÁSTRÍKUR - Ástríkur og Gotarnir
Ástríkur og Gotarnir eru á listanum en þessi bók kom út hjá Fjölva í þýðingu Þorsteins heitins Thorarensen árið 1977 og er náttúrulega löngu orðin uppseld, týnd og tröllum gefin. Bókin hefur auðvitað fengið nýja íslenska þýðingu eða uppfærslu hjá Froski útgáfu og er algjörlega ómissandi í safn allra íslenskra myndasögusafnara. Sagan, sem er eftir þá René Goscinny og Albert Uderzo, heitir Astérix chez les Goths á frönsku og birtist fyrst í franska teiknimyndaritinu Pilote á árunum 1961-62 en kom fyrst út í bókaformi árið 1963. Ástríkur og Gotarnir er þriðja bókin í upphaflegu frönsku seríunni og fjórða Ástríks bókin sem Froskur útgáfa gefur út á íslensku. Alls eru Ástríks bækurnar nú orðnar 37 talsins og þar af hafa 23 þeirra verið gefnar út á íslensku, langflestar í boði bókaútgáfunnar Fjölva.


GOÐHEIMAR - Brísingamenið
Ný bók úr Goðheimasafninu, Brísingamenið eftir danska listamanninn Peter Madsen er að koma út og ástæða fyrir aðdáendur þessa vinsæla bókaflokks að gleðjast yfir því. Þetta er áttunda sagan í seríunni og hún hefur ekki komið út áður á íslensku en fimm fyrstu bækurnar í bókaflokknum höfðu verið gefnar út áður hjá Iðunni, með hléum, á árunum 1979-89. Þær voru síðan endurútgefnar á árunum 2010-15 og eftir það hafa komið út ein ný bók á ári. Brísingamenið er frá árinu 1992 en alls eru Goðheimabækurnar nú orðnar fimmtán talsins. Það væri frábært ef Froskur útgáfa myndi klára að gefa út allar bækurnar fimmtán.


INKAL - INKAL Seinni hluti
Seinni hluti vísindaskáldmyndasögunnar Inkal, eftir Moebius og Alexander Jodorowsky, er að koma út núna um jólin en fyrri hluti hennar var einmitt gefinn út fyrir jólin 2016. Þessi myndasaga er eiginlega ein sú allra fyrsta sem kemur út á íslensku sem er ekki er ætluð börnum og unglingum en SVEPPAGREIFINN man í fljótu bragði aðeins eftir bókinni um Birnu og ófreskjuna sem þannig er einnig háttað með. Efni þessara fullorðins myndasagna er þó gjörólíkt. Inkal sagan, sem er frá árinu 1980, er líklega ein af allra stærstu myndasögum þessa bókmenntageira og er eiginlega ómissandi fyrir unnendur alvöru teiknimyndasagna. Og þó að bækurnar séu aðeins tvær þá eru þær samtals um 300 blaðsíður og kosta auðvitað sitt. En þær eru algjörlega þess virði og þetta er virkilega metnaðarfull útgáfa sem er eiginlega skyldueign í hillur áhugafólks um myndasögur.


LUKKU LÁKI - Makaval í Meyjatúni
Froskur útgáfa heldur áfram að gefa út Lukku Láka bækurnar, eftir 33ja ára hlé á íslensku, og nú fyrir jólin kemur út ný bók úr þessari vinsælu seríu annað árið í röð. Þetta er sagan Makaval í Meyjatúni eða La Fiancée de Lucky Luke en hún kom upphaflega út árið 1985 og er númer 53 í upprunalegu seríunni en Morris (Maurice de Bevere) og handritshöfundurinn Gay Vidal eru skrifaðir fyrir bókinni. Alls hafa nú komið út 35 Lukku Láka bækur á íslensku úr opinberu seríunni og það er vonandi að enn verði framhald á útgáfu þessa bóka fyrir hina fjölmörgu aðdáendur bókaflokksins hér á landi.


STRUMPARNIR - Geimstrumpurinn
Ný strumpabók er komin út og að þessu sinni er það bókin Geimstrumpurinn frá árinu 1970 eða Le Cosmoschtroumpf eins og hún heitir nú á frummálinu. Í bókinni er líka önnur saga sem nefnist Veðurstrumpuvélin og ef SVEPPAGREIFANN misminnir ekki birtist sú saga einnig í bókinni um Galdrastrumpinn sem kom út hjá Iðunni árið 1980. Geimstrumpurinn er eftir Pierre Culliford (Peyo) og þetta er sjötta bókin í opinberu frönsku seríunni en samtals eru þær nú orðnar 35 talsins. Peyo lést reyndar árið 1992 en sonur hann Thierry Culliford tók við keflinu af föður sínum og hefur samið síðustu 20 sögurnar. Sú nýjasta kom út í ágúst síðastliðnum. Þetta er annað árið í röð sem Froskur útgáfa sendir frá sér strumpabók en alls hafa nú komið út 10 bækur um Strumpana á íslensku.


SVALUR OG VALUR - Sveppagaldrar í Sveppaborg
Þá er ný bók með Sval og Val að koma út en það er sagan Sveppagaldrar í Sveppaborg eftir André Franquin. Þessi saga heitir Il y a un sorcier à Champignac á frummálinu og var fyrsta Sval og Val bókin sem kom út í fullri lengd. Hún birtist fyrst í belgíska myndasögutímaritinu SPIROU á árunum 1950-51 og kom svo einnig út í bókaformi seinna árið. Þessi bók markar nokkur tímamót í sögunum um Sval og Val því að í henni er Sveppagreifinn kynntur fyrst til sögunnar en auk þess kemur Sveppaborg og nágrenni hennar einnig fyrir í fyrsta sinn. Þessari bók er SVEPPAGREIFINN (þ.e. sá sem þetta skrifar) búinn að bíða eftir í íslenskri þýðingu í næstum 40 ár og hún mun pottþétt fara á óskalistann fyrir jólin.


VIGGÓ VIÐUTAN - Vandræði og veisluspjöll
Og að síðustu má nefna nýja bók með snillingnum Viggó viðutan en það er sú þriðja úr bókaflokknum sem Froskur útgáfa sendir frá sér. Þessi bók nefnist Vandræði og veisluspjöll eða Le bureau des en gros og er númer 5 í opinberu seríunni en samtals eru bækurnar um Viggó orðnar 19 talsins. Árið 1980 kom út hjá Iðunni bókin Viggó - Vikadrengur hjá Val og var með sömu mynd á kápunni en ekki er þó um sömu bók að ræða. Viggó bækurnar sem voru að koma út á íslensku á sínum tíma voru ekki endilega með "réttu" forsíðumyndirnar á kápunum og innihaldið var reyndar einnig oft á tíðum svolítið úr ýmsum áttum og alls ekki í tímaröð. Froskur útgáfa er hins vegar núna að gefa bækurnar út í réttri tímaröð og með "réttu" kápunum samkvæmt opinberu röðinni.

Stór hluti þeirra heimilda sem birtist í þessari færslu er unninn úr visku fjölmargra þeirra fróðu og stórskemmtilegu meðlima hinnar frábæru Facebook grúbbu, Teiknimyndasögur.