Það eru eflaust einhverjir sem hafa áttað sig á því að SVEPPAGREIFINN heldur úti bloggsíðunni Hrakförum og heimskupörum þar sem hann sérhæfir sig í umfjöllunum um þær teiknimyndasögur sem komið hafa út á íslensku. Þar fer hann stundum hamförum við að kryfja hina ólíkustu kima þessa áhugamáls síns og kemur þar jafnan nokkuð víða við. Í fæstum tilfellum er þó eitthvað vit í því sem hann lætur frá sér. Yfirleitt reynir SVEPPAGREIFINN að fjalla um þessi nördalegu áhugamál sín á sem hlutlausastan hátt en þó kemur einnig fyrir að hann láti tilfinningarnar ráða. Þannig á hann það auðvitað til að hrósa því sem honum finnst vel gert og er í uppáhaldi en einnig getur hann skammast eða nöldrað út af efni sem honum finnst ekki undir neinum kringumstæðum vera neitt vit í. Slíkt mat er þó að sjálfsögðu mjög afstætt og ber ekki að taka af mikilli alvöru enda er smekkur fólks afar ólíkur og misjafn. Einhvern tímann snemma á ferli Hrakfara og heimskupara tók hann til dæmis saman færslu sem fjallaði um það sem hann taldi vera nokkrar af verstu myndasögunum í eigu SVEPPAGREIFANS og í annað skipti taldi hann sig (reyndar af svolítilli illgirni) hafa fundið út hver væri alversta myndasagan sem gefin hefði verið út á Íslandi. Bókin Hin fjögur fræknu og geimskutlan hlaut þann vafasama heiður hjá síðuhafa og á þeim tímapunkti hafði hann ekki grun um að þann botn væri mögulega hægt að botna. Ekki ætlar SVEPPAGREIFINN reyndar að fullyrða að honum hafi tekist að finna myndasögu sem er enn verri en áðurnefnd Hin fjögur fræknu bók en óneitanlega er hann nú búinn að finna afar slaka bók.
En fyrst ... SVEPPAGREIFINN hefur nokkrum sinnum minnst aðeins á það hér hvaða bækur myndasöguhillur hans hafa meðal annars að geyma. Uppistaða þeirra bóka er að sjálfsögðu mest íslenskar teiknimyndasögur en það safn er þó ekki alveg tæmandi. Í hillurnar vantar fáeinar myndasögur sem SVEPPAGREIFINN hefur ekki lagt mikið á sig við að nálgast en eru samt til á sérstökum bókalista hans sem dreginn er fram við þar til gerð tækifæri. Þetta er ein og ein myndasaga sem hann grípur með sér, þegar hann sér þær, ef bækurnar eru vel með farnar og ódýrar. Flóknara er það ekki og svipaða sögu má eflaust heyra frá öðrum aðilum sem safna myndasögum. Á þessum lista eru núna til dæmis ein eða tvær bækur með Hinum fjórum fræknu, ein Goðheima bók og bókin um Alla Kalla svo einhverjar þeirra séu nefndar. Og svo eru á listanum reyndar líka myndasögurnar um Trilla og Silla, Stjána bláa og Bleika pardusinn. Síðarnefndu bækurnar átti SVEPPAGREIFINN aldrei sem barn og hafði reyndar aldrei gerst svo forvitinn (eða hugaður) að fletta í gegnum þær. Þær bækur voru allar gefnar út af Fjölva útgáfunni og komu út á árunum 1979-80. Þarna var Þorsteinn Thorarensen hjá Fjölva búinn að senda frá sér allar Tinna bækurnar og var nú að einbeita sér að því að koma Lukku Láka bókunum út á færibandi. Myndasöguútgáfan á Íslandi var einmitt að ná hápunkti á þessum árum og helstu útgefendurnir voru að prófa sig áfram með efni í þessu vinsæla bókaformi. Bókaútgáfan Iðunn náði að landa vinsælum seríum eins og Sval og Val, Viggó viðutan, Strumpunum og Hinriki og Hagbarði og Fjölva útgáfan fór því að prófa sig meira áfram með myndasögur sem komu ekki frá fransk/belgíska svæðinu. Trilli og Silli, Stjáni blái og Bleiki pardusinn tilheyra einmitt þeim bókum. Þessar teiknimyndasögur hafa verið nokkuð lengi á hinum áðurnefnda lista SVEPPAGREIFANS og fyrir fáum vikum rakst hann einmitt á ódýrt og ólesið eintak af Bleika pardusinum en sú bók heitir einfaldlega Bleiki pardusinn leikur lausum hala. Það er einmitt hún sem er umfjöllunarefni dagsins.
Nú er það yfirleitt svo að þær myndasögur sem bætast í safn SVEPPAGREIFANS, og teljast ekki á meðal hinna vinsælustu eða bestu, fara jafnan óskoðaðar á sinn stað í hillurnar. Í augum eigandans eru þessar afgangsbækur einfaldlega bara nauðsynlegur hluti af safninu hans og teljast því sjaldnast áhugaverðar til lestrar. Það kemur þó fyrir stöku sinnum að ein og ein myndasaga er gripin löngu seinna af handahófi úr hillunum og gluggað í þær í rólegheitunum. Þannig gerðist það til dæmis með hina arfaslöku teiknimyndasögu Hin fjögur fræknu og geimskutlan. Bleiki pardusinn leikur lausum hala fór þó aðra leið. Bókin lenti efst í stafla af myndasögum, sem átti eftir að ganga frá, og blasti því við SVEPPAGREIFANUM við óvænta tiltekt. Hann greip því bókina til handagagns og er nú ekki aðeins búinn að fletta í gegnum þessa myndasögu heldur tók hann sig einnig til og hreinlega las bókina. Og svo aftur sé komið inn á það sem nefnt var í upphafi þessarar færslu þá er það þessi bók, Bleiki pardusinn leikur lausum hala, sem telst þessi slaka myndasaga sem þar var minnst á. Það er þó kannski ekki alveg sanngjarnt að segja að þessi bók sé jafningi hinnar verstu bókar (með fullri virðingu fyrir Hinum fjórum fræknu) en ansi er hún léleg.
Myndasögurnar um Bleika pardusinn sem komu út á Íslandi voru raunar tvær og þetta er fyrri bókin. Hin heitir Bleiki pardusinn - Keikur á kreiki og eftir því sem SVEPPAGREIFINN best veit er þá bók ekki að finna í myndasöguhillum heimilis hans. Ekki enn þá að minnsta kosti. Svolítið ósamræmi er með brot þessara tveggja bóka því Bleiki pardusinn leikur lausum hala, sem kom út árið 1979, er harðspjaldaútgáfa en Bleiki pardusinn - Keikur á kreiki er hins vegar í mjúku kiljubroti, sambærilegu Ástríks bókunum, og kom út árið 1980. Fjölva útgáfan hefur áttað sig á því, eftir að fyrri bókin kom út, að líklega væri ekki réttlætanlegt að kosta mjög miklu til bókar númer tvö í seríunni. Sú ráðstöfun virðist hafa verið eðlileg og sanngjörn því ekki komu fleiri bækur út hér á landi með Bleika pardusinum. Þessar bækur eiga því ósköp litlar tengingar við þær teiknimyndasögur sem verið var að gefa út hér á landi á þessum árum. Þær eru miklu meira í ætt við myndasögublöðin með Gög og Gokke eða Tomma og Jenna sem Siglufjarðarprentsmiðjan var að gefa út á svipuðum tíma. Snöggsoðnar, stuttar, einfaldar og fjöldaframleiddar sögur, unnar upp úr teiknimyndum og ætlaðar frekar ungum lesendum, en með afskaplega takmörkuðum gæðum.
Líkt og áður kom fram eru þessar myndasögur ekki af fransk/belgíska málsvæðinu. Bækurnar um Bleika pardusinn, Stjána bláa, Denna dæmalausa, Köttinn Felix og Trilla og Silla eru auðvitað byggðar á þessum amerísku teiknimyndum sem allir þekkja en koma þó frá sitthvorum framleiðslufyrirtækjunum vestan hafs. Upprunalegu sögurnar um Bleika pardusinn birtust í sérstökum Pink Panther blöðum, á sjöunda og áttunda áratuginum í Bandaríkjunum, sem nefndust ýmist The Pink Panther and the Inspector eða bara The Pink Panther en útgáfufyrirtækið Gold Key Comics gaf þau út þar. Til Íslands virðast þær koma í gegnum samstarf við sænska útgáfufyrirtækið Semic Press sem gáfu sögurnar út undir heitinu Rosa Pantern þar í landi. Í íslensku bókunum tveimur hefur þessum sögum verið safnað saman, átta í hvorri bók, og í því formi voru þær einnig gefnar út á nágrannalöndunum og eflaust víða. Svo vinsælar voru þessar myndasögur reyndar á Norðurlöndunum að Semic Press framleiddi sínar eigin sögur með leyfi Gold Key Comics og svo virðist sem það séu einmitt þær útgáfur sem birtust í íslensku bókunum tveimur. Ýmsir höfundar komu að þessum myndasögum en fyrir íslensku útgáfunum eru einfaldlega skrifaðir Mirisch og Geoffrey sem er í raun bara hluti af amerísku framleiðslufyrirtæki og því ekki beinir höfundar.
En hvað varðar hina lélegu teiknimyndasögu, Bleiki pardusinn leikur lausum hala, þá er það afskaplega döpur bók og hreint með ólíkindum að Fjölvi skuli hafa látið draga sig út í þá útgáfu. Fjölvi hafði gert mjög vel með útgáfum sínum á bæði Tinna, Lukku Láka og Ástríks bókunum og metnaður útgáfunnar á öðru efni hefði því kannski átt að liggja í svolítið hærri gæðaflokki. SVEPPAGREIFINN hefur aðeins velt fyrir sér ástæðunum en líklega hefur Iðunn verið búin að tryggja sér alla bestu bitana frá belgíska myndasögusvæðinu á þessum tíma. Útgáfa Fjölva á þessum B-vörum sínum hafi aðeins verið örvæntingafull tilraun til að reyna að hanga í keppinautunum. Fjölvi var auðvitað enn að gefa út Lukku Láka bækurnar en Iðunn hafði samt klárlega tekið forystuna á hinum litla íslenska myndasögumarkaði á þeim árum. Það var Þorsteinn sjálfur sem þýddi bókina Bleiki pardusinn leikur lausum hala og líklega er það textameðferðin sem er mest að trufla hinn nöldurgjarna SVEPPAGREIFA. Allur texti bókarinnar, hvort sem hann kemur fyrir í talblöðrunum, titlum hinna átta sagna eða einföldum skýringartexta, er settur upp á þann hátt að hann virkar mjög fráhrindandi - alla vega fyrir SVEPPAGREIFANN. Textinn er í einhvers konar óútskýranlegum orðaleikjum, bundnu máli eða ljóðaformi, sem hugsanlega má skilgreina sem nokkurs konar þulur eða hreinlega í rappstíl og er afskaplega truflandi. Hvort Þorsteinn ákvað sjálfur að setja textann upp á þennan hátt eða hvort hann var bein þýðing úr upprunalegu bókinni skal ósagt látið en hvimleiður er hann - þ.e.a.s. textinn!
Nú skal það reyndar tekið fram að SVEPPAGREIFINN er auðvitað ekkert eins og fólk er flest. Hann er til dæmis gæddur þeim einkennilegu eiginleikum að vera mjög torlæs á ljóð og kvæði og hefur jafnvel skilgreint eða greint sig með einhvers konar ljóðblindu - hvað sem það nú er. Kannast einhver við hugtakið eða sambærilega greiningu? Hann les reyndar mikið en við lestur hleypur hann ávallt yfir allt sem heitir ljóð eða kvæði í bókunum. Í sögunum um Harry Potter sleppti hann til dæmis öllum kvæðum og í Hringadróttinssögu hljóp hann jafnvel yfir heilu blaðsíðurnar á löngum köflum án þess að líta einu sinni á þær. Það þarf víst ekki að taka það fram að ekki er til ein einasta ljóðabók á heimili hans og hann fær nánast ofnæmisviðbrögð við það eitt að sjá gömlu bláu Skólaljóðin. Með öðrum orðum, SVEPPAGREIFINN skilur ekki ljóð og það er líklega helsta ástæða þess hve hann lætur þessa hvimleiðu Bleika pardus bók fara svona í taugarnar á sér. Hann gat hreinlega ekki einbeitt sér að bókinni. Sjálfsagt eru þó einhverjir aðrir lesendur bókarinnar sem hafa gaman af þessari uppsetningu textans en, eins og klárlega kemur fram í framgreindu máli, er textaformið SVEPPAGREIFANUM hins vegar engan veginn að skapi.
Eins og áður segir eru sögurnar í Bleiki pardusinn leikur lausum hala átta talsins en þær eru reyndar mislangar. Ein þeirra er til dæmis bara fjórar blaðsíður að lengd og önnur átta blaðsíður en hinar eru allt þar á milli. Þessar stuttu sögur eru auðvitað mjög einfaldar, enda ætlaðar ungum lesendum, og eru líklega að einhverju leyti byggðar á hinum sígildu teiknimyndum um Bleika pardusinn sem SVEPPAGREIFINN hafði reyndar nokkuð gaman að í æsku. Í grunninn fjalla þær allar um stutt ævintýri Bleiks þar sem hann leikur jafnan aðalhlutverkið gegn litla kallinum (sem byggður er á persónu Inspector Clouseau) en sá gegnir mörgum misjöfnum hlutverkum í bókunum. Allar sögurnar byggjast því á heppni Bleika pardusins og þá um leið óheppni þess litla
SVEPPAGREIFINN var í svolitlum vafa um hvort hann ætti yfir höfuð að vera nokkuð að fjalla um þessa bók í Hrakförum og heimskupörum. Bókin tilheyrir ekki hinum hefðbundna fransk/belgíska myndasögupakka, sem naut hvað mestra vinsælda á áttunda og níunda áratug 20. aldarinnar, heldur er hún meira í ætt við amerískar afþreyingamyndasögur fyrir börn. En þetta er víst samt myndasaga, sem kom út á íslensku, og þar með hefur hún unnið sér inn rétt til þátttöku þótt ekki teljist hún beint til áhugasviðs síðuhafans. Ætli SVEPPAGREIFINN eigi þá ekki líka einhvern tímann á næstunni eftir að fjalla um útgáfur Siglufjarðarprentsmiðjunnar, sem mokuðu út myndasögublöðunum um nokkurra ára skeið, með Tarzan og Son Tarzans fremsta í flokki. Enn er alla vega af nægu en misáhugaverðu efni að taka í myndasöguforminu til að fjalla um.

Takk. Þessar eru til í safninu hjá mér en stefni ekkert á að lesa þær. Þessar bækur bætast við safnið til að þjóna exelskjalinu en ekki til að bæta gæði safnsins. Útgáfa Siglufjarðarprentsmiðju þykir mér merkileg en ég las Tarzan og Son Tarsans - Korak í minni æsku. Við höfum örugglega verið áskrifendur á mínu heimili. Á mikið af þeim blöðum og er að spá í að klára það safn. Fékk gott excelskjal yfir þá útgáfu í teiknimyndasögu-grúbbunni á facebook.
SvaraEyðaFjölbreytnin í þínum skrifum er frábær.
Takk fyrir mig.
Þakka þér.
SvaraEyðaÞað er ansi mikið af þessum íslensku myndasögum sem eru í hillunum bara til að fylla upp í ákveðnar eyður. Eða eins og þú segir – til að fylla í excel skjalið. Líklega lesa þær þó fæstir en ég neyðist stundum til þess vegna þess að ég er jú stundum að skrifa um þær hér. Hins vegar er ég ekki alveg sammála um að þessar bækur bæti ekki gæði safnsins. Fyrir safnara aukast gæðin klárlega með hverjum grip sem í það bætist því safnið verður heilstæðara og fyllra. Ég tala nú ekki um ef bækurnar eru vel með farnar og fallegar í myndasöguhillunum.
Sammála þér með Tarzan blöðin og Siglufjarðarprentsmiðjuna. Það var nokkuð merkilegt fyrirbæri og stórskemmtilegur heimilisiðnaður sem á sinn kafla í myndasöguútgáfumenningu Íslendinga. Ég beit það einhvern tímann í mig að ég ætlaði aldrei að fjalla um þessa útgáfu hér á síðunni en sú skoðun hefur breyst. Það mun koma að þessum blöðum einhvern tímann á Hrakförum og heimskupörum enda eru þetta líka myndasögur og komu út hér á landi.
Sjálfur átti ég líka töluvert af Tarzan blöðunum (og Kórak) en var samt, minnir mig, aldrei áskrifandi. Þau blöð eru öll týnd. Ég hef þó eitthvað sankað að mér þessum blöðum í seinni tíð og á enn ekki mjög mikið af þeim en stefni að því að fylla upp í það safn með tímanum. Það kom út töluverður fjöldi af þeim á sínum tíma (eitthvað á annað hundrað blöð) og það er svolítið erfiðara að fylla upp í eyðurnar þar. Blöðin eru nefnilega ekki öll merkt að framanverðu með árgangi og númeri á tölublaði.
Kv. SVEPPAGREIFINN