20. september 2026

237. HIN TÝNDA SVAL OG VAL SAGA FOURNIER

SVEPPAGREIFINN er mikill aðdáandi teiknimyndasagnanna um Sval og Val eins og margoft hefur komið fram og iðulega er þá jafnoft látið fylgja með hversu hrifinn hann sé af verkum belgíska listamannsins André Franquin. Það verður um leið einnig að viðurkennast að hér á Hrakförum og heimskupörum er afar sjaldan minnst á aðra listamenn sem komið hafa að þessum vinsælu myndasögum en þær birtust jafnan fyrst í belgíska myndasögutímaritinu Journal de Spirou áður en þær voru gefnar út í bókaformi á þeim slóðum. En hér skal nú gerð bragabót (hvað sem það nú þýðir) á því og brjóta aðeins upp hefðina. Færsla dagsins er nefnilega um arftaka Franquin en sá aðili var að sjálfsögðu franski listamaðurinn Jean-Claude Fournier eða bara Fournier eins og hann var jafnan kallaður. Að þessu sinni ætlar SVEPPAGREIFINN að fjalla um Sval og Val sögu eftir hann eða öllu heldur myndasögu sem honum gafst aldrei færi á að klára eða birta.

En André Franquin hóf að teikna sögurnar um Sval og Val í SPIROU tímaritinu árið 1946 og gerði þessar myndasögur gríðarlega vinsælar á þeim rúmlega 20 árum sem hann teiknaði þær. Síðustu árin urðu sögurnar í hans höndum reyndar sífellt stopulli, aðallega vegna þunglyndis, en auk þess var hann á þeim tíma fyrir löngu orðinn hundleiður á þeim félögunum enda var serían upprunalega aldrei sköpunarverk hans sjálfs. Útgáfufyrirtækið Dupuis leitaði því logandi ljósi að nýjum manni til að taka við keflinu og Franquin sjálfur benti þeim til dæmis á Fournier en sá hafði einhverju sinni, nokkru áður, skilið eftir hjá honum skissur af helstu söguhetjum sagnanna. Það varð því úr að Fournier var ráðinn til að teikna Sval og Val en Franquin gat einbeitt sér betur að eigin sköpunarverkum. Fyrsta saga Fournier hóf göngu sína í SPIROU blaðinu í lok maí árið 1969 og hét Le Faiseur d'or (Gullgerðarmaðurinn) og þar naut hann reyndar aðstoðar fyrirrennara síns við að teikna Gorminn en í framhaldinu leyfði Franquin hins vegar ekki frekari notkun á gula dýrinu ástsæla. Sögurnar komu svo reglulega hver á fætur annarri næstu árin og sú síðasta Des haricots partout kom út í bókaformi árið 1980. Fournier gerði alls níu Sval og Val sögur í fullri lengd og fimm þeirra voru gefnar út hjá Iðunni á sínum tíma en eftir að Froskur útgáfa tók upp þráðinn hefur engin bók eftir hann bæst við á íslensku. Þær bækur Fourniers sem hér komu út eru klárlega á meðal þeirra betri en SVEPPAGREIFINN hefur þó alltaf saknað þess að sjá ekki Tora Torapa (1973) á íslensku. Vonandi mun Jean hjá Froski einhvern tímann bæta úr því.

Serían um Sval og Val breyttist töluvert með tilkomu Fourniers enda eðlilegt þar sem nýr höfundur kom með nýjan stíl og breyttar áherslur. Gormurinn hætti auðvitað að koma við sögu og margar af þeim persónum sem Franquin hafði skapað fengu nú minna pláss en aðrar komu í staðinn - reyndar mismunandi sterkar. Aðalsöguhetjurnar sjálfar breyttust einnig aðeins og Svalur hætti til dæmis að klæðast hótelbúningi sínum í sögunum þó hann héldi hattinum að mestu. Fournier bryddaði einnig upp á ýmsum nýjungum og sögurnar urðu meira and- eða yfirnáttúrulega þenkjandi, allt að því ljóðrænar, með dass af göldrum auk þess sem mannréttinda- og umhverfisvitund af ýmsu tagi skaut upp kollinum. Ævintýrablendnar sögurnar virtust hæfa yngri lesendum betur og það leist útgefandanum vel á enda var Dupuis aldrei hrifinn af vísindasagnastefnu Franquins þar sem Zorglúbb hafði verið í stóru hlutverki. Hið afríska yfirbragð sem einkennir margar Sval og Val sögur Fourniers, og færir þeim ákveðinn blæ, tryggði honum einmitt stóran aðdáendahóp í álfunni. Heilt yfir urðu sögurnar töluvert heilsteyptari og með markvissari handritsgerð en hjá forveranum en hins vegar komst Fournier ekki með tærnar sínar í námunda við hæla Franquins hvað teikningarnar varðar. Þó Fournier hafi yfir að ráða töluverðum hæfileikum sem skilaði á köflum mörgum nokkuð fallegum myndarömmum þá var engan veginn sambærilegt líf í myndum hans við þær sem Franquin hafði unnið.

Með tímanum fór þó að gæta þreytu í samskiptum Fourniers og Dupuis. Það fór að bera á meiri óþolinmæði Dupuis gagnvart vinnuhraða listamannsins en einnig gerðist hann pólitískari og beinskeyttari í sögunum sem útgáfufélaginu hugnaðist ekkiUndir stjórn Fournier hafði tónninn því töluvert breyst í Sval og Val seríunni. Hann fór að fjalla um alvarlegri og viðkvæmari málefni eins og kjarnorkuver í sögunni um L'Ankou (Móra) og einræðisherra fjármagnaðan af eiturlyfjum og kúgun í bókunum Kodo le tyran og Des haricots partout (Einræðisherrann Kodo og Baunir út um allt) en tvær síðarnefndu bækurnar hafa reyndar ekki enn komið út á íslensku. Þessi nýja og raunsærri pólitíska nálgun átti ekki alveg samleið með upprunalegri sýn forlagsins á hinum léttu ævintýrasögum. Fournier var líka stoltur Bretóni og fór að færa sögurnar meira í þá átt. Hann teiknaði meðal annars fána héraðsins og lét einhverjar sögur gerast í Bretagne sem tilheyrir Frakklandi. Stjórnendur Dupuis voru hins vegar belgískir og vildu halda Sval sem rammbelgískri persónu en það skapaði einnig töluverðan núning á milli listamannsins og útgáfunnar. Smám saman fór því að myndast gjá á milli þeirra með aukinni kergju og stigvaxandi ágreiningi.

Eins og áður sagði þótti Dupuis útgáfuhraði Fournier heldur ekki nægilegur fyrir flaggskip SPIROU tímaritsins. Forlaginu fannst listamaðurinn ekki starfa nógu hratt. Þegar hann var að hefja vinnu við sína tíundu sögu, í byrjun árs 1980, tók útgáfan þá ákvörðun að fá fleiri teikniteymi til að skiptast á að gera sögurnar svo hægt væri að gefa þær út hraðar. Fournier var ekki ánægður með það fyrirkomulag og ákvað því frekar skyndilega að hætta með seríuna. Þetta var eitthvað sem hann sætti sig alls ekki við. Hann hafði teiknað Sval og Val í tíu ár og hugnaðist ekki að deila þeim félögum með öðrum. Des haricots partout varð því síðasta Sval og Val saga Fournier og hann fór í staðinn alfarið að einbeita sér að myndasögunum um álfinn Bizu sem var algjörlega hugarfóstur hans sjálfs og var einnig að birtast í SPIROU á þessum sama tíma.

En Fournier var samt sem áður byrjaður að vinna að nýrri sögu um Sval og Val þegar hann ákvað svo snögglega að hætta með seríuna. La maison dans la mousse (Húsið í froðunni eða eitthvað í þá áttina) átti sagan að heita og verða þrítugasta bókin í opinberu ritröðinni. Fournier var þegar búinn að skrifa allt handritið og gera fullbúið myndasögusnið fyrir þetta "týnda ævintýri" en hins vegar náði hann aðeins að skissa upp og teikna fimm fyrstu síðurnar áður en hætt var svo fyrirvaralaust við verkefnið vegna samstarfsörðugleikana. Sjálfur André Franquin hafði aðstoðað Fournier við handritið og samtölin og þá átti teiknarinn Will (þekktur fyrir Tifou og Isabelle) að sjá um að teikna bakgrunna fyrir sjálft froðuhúsið. Sagan átti að gerast í dularfullum og ævintýralegum stíl sem minnti helst á þjóðsögu en það virtist nokkuð eðlileg þróun á seríunni miðað við stefnu hennar í sögunum þar á undan. La maison dans la mousse átti að tengja saman þræði úr eldri Sval og Val sögum en söguþráðurinn snerist um þjófnað á tveimur af helstu uppfinningum Sveppagreifans. Þar var annars vegar um að ræða gullgerðarvélinni úr Gullgerðarmanninum og hins vegar hinum hættulegu eyðingarsveppum úr sögunni um Z fyrir ZorglúbbÞessir sveppir áttu einmitt að skapa þá miklu froðu sem titill sögunnar vísar til. Svalur og Valur reyna að elta uppi þjófana á sama tíma og tveir dularfullir njósnarar elta þá sjálfa.

Þessi týnda saga, La maison dans la mousse, hefur aldrei verið kláruð til fulls eða verið gefin út í opinberum vettvangi en þó hefur efni úr henni birst hér og þar í gegnum tíðina. Einhverjar heimildir kveða á að til séu fullkomin frumdrög af allri sögunni, þar sem hver myndarammi sé gróflega skissaður upp en séu þó fullkomlega læsileg sem heild. Blaðsíðurnar fimm, sem áður var minnst á, hafa birst í einhverjum safnritum um Sval en Val og það vekur athygli að þær teikningar hafa að einhverju leyti verið í mismunandi útgáfum. Sem er þá sterk vísbending um að Fournier hafi ætlað að endurskoða söguna verulega og er jafnvel hugsanlega enn að vinna að því. Þessar fimm blaðsíður hafa einnig, á einhverjum vettvangi, verið fullunnar og litaðar að hluta af ónefndum aðilum en SVEPPAGREIFINN birtir hér síðurnar fimm fyrir neðan eins og þær komu frá Fournier sjálfum. Nánar til tekið eru þær úr hinni frábæru sjálfsævisögu listamannsins, FOURNIER - Ma vie de rêves frá árinu 2024, sem er meira og minna öll í myndasöguformi.




Fyrir nokkrum árum voru víst einhverjar sögusagnir í gangi um að til stæði að sagan kæmi út í hliðarseríunni Sérstök ævintýri um Sval... (Série Le Spirou de…) en ennþá hefur þó ekki orðið neitt af þeim draumkennda veruleika. Fournier, sem enn er í fullu fjöri þó hann sé orðinn 83ja ára gamall, hefur hvorki staðfest það né neitað í viðtölum á seinni árum en virðist þó hafa gefið í skyn að það gæti alveg orðið möguleiki. Aðeins tíminn mun hins vegar leiða það í ljós.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Út með sprokið!