Jibbbííí!!! Það er nú aldeilis von á góðum pakka frá Froski útgáfu á næstu dögum ef marka má tilkynningu þess efnis sem forlagið birti á Facebook síðu sinni í dag. Íslendingasögur í myndasöguformi, Viggó viðutan, Ástríkur og heilar tvær bækur með Sval og Val. Sem sagt algjör veisla! Sérstaklega er SVEPPAGREIFINN ánægður með að sjá loksins söguna Bjargað fyrir horn með Sval og Val en þá bók er hann búinn að bíða lengi eftir að sjá í íslenskri þýðingu. Nú mega sko allir flykkjast í Nexus (eða hvert þangað sem þessar myndasögur fást) og hreinlega versla þessar bækur upp til agna. Þannig getur Froskur haldið áfram að þrífast og dæla teiknimyndasögum í okkur myndasöguunnendur á öllum aldri. Sjálfur mun SVEPPAGREIFINN fjárfesta í að minnsta kosti tveimur eða þremur af þessum bókum í fyrsta áfanga og innan skamms tíma eiga þær allar eftir að fá pláss í myndasöguhillum heimilisins. ÁFRAM FROSKUR!
