Í Belgíu er myndasöguhefðin sterk og þar er teiknimyndasögum gert jafn hátt undir höfði og öðrum listgreinum - svo stór hluti er hún af menningunni á þeim slóðum. Stærstu listamennirnir; Hergé, Franquin, Morris og hvað þeir heita allir eru af Belgíumönnum kallaðir til á sama tíma og nágrannar þeirra nefna Rembrandt, van Gogh og Monet, svo einhverjir séu nefndir. Virðingin fyrir sígildum myndasögum er mikil og þar eru þær viðurkenndar opinberlega sem níunda listgreinin, ólíkt annars staðar í heiminum þar sem hún er víða skilgreind sem hálfgert rusl og aðeins fyrir börn - sem ber auðvitað bara vott um ótrúlegt virðingarleysi. Í gegnum tíðina hefur óteljandi myndasögutímaritum verið hleypt af stokkunum á fransk/belgíska málsvæðinu og þar hafa þau stærstu verið Le Journal de Spirou, sem er ennþá verið að gefa út, og Le Journal de Tintin sem hætti að koma út árið 1993. Hið eldra, SPIROU blaðið, var stofnað fyrir stríð og einkenndist síðar af ligne atome stílnum sem upprunninn var frá viðjum Marcinelle-stefnunnar en hann kom til sögunnar á árunum 1948-50 með tilkomu listamanna á borð við Franquin, Morris, Jijé og Will. Tintin tímaritið hóf hinsvegar göngu sína árið 1946 og var tæknilega stofnað af Raymond Leblanc sem vettvangur fyrir Hergé, til að koma hans myndasögum á framfæri á ný, í kjölfar niðursveiflu hans í stríðinu eftir hernám nasista í Belgíu. Blaðið hans Tinna var því flaggskip Brussel-skólans og einkenndist af ligne claire sem var eins konar andstæða ligne atome.
Þetta voru tvö langvinsælustu tímaritin á málsvæðinu og með mikla samkeppni en samt ríkti ávallt gagnkvæm virðing á milli þeirra. Þau skiptust jafnvel á bröndurum og árið 1965 deildu þeir til dæmis aprílgabbi eins og lesa má um hér. Yfirleitt var einnig þegjandi samkomulag þeirra á milli um að listamennirnir ynnu aðeins hjá sínum eigin blaði en vissulega voru þó undantekningar á því. André Franquin þjónaði til dæmis á stuttu tímabili báðum herrum í einu og Morris átti einnig um skeið efni í báðum tímaritunum. Þegar Charles Dupuis var að huga að stofnun SPIROU tímaritsins árið 1937 gerði hann jafnvel tilraun til að fá Hergé til að vinna fyrir sig en sá hafnaði boðinu þar sem hann væri þá þegar starfandi hjá Le Petit Vingième. Eftir stríð snerist það reyndar við þegar Hergé sótti um starf hjá SPIROU en þá hafnaði Dupuis honum vegna meintra tengsla hans við Nasista í stríðinu. En margir þessara listamanna þekktust líka ágætlega innbyrðis og áttu oft í vinalegum samskiptum. Þrátt fyrir samkeppnina hittust teiknararnir gjarnan á hátíðum eða myndasöguviðburðum og fylgdust náið með verkum keppinauta sinna. Á tímamótum, eins og á stórafmælum myndasöguhetjanna, tóku teiknarar beggja blaða þátt í að heiðra bestu listamenn hvors annars með sérstökum teikningum og í dag ætlar SVEPPAGREIFINN einmitt að birta eina slíka mynd. Hér fyrir neðan má nefnilega sjá teikningu Morris af helstu söguhetjum seríunnar um Lukku Láka þar sem þeir tollera sjálfan Tinna í tilefni af 50 ára afmæli hans árið 1979. Morris starfaði á þessum árum fyrir SPIROU tímaritið en myndin birtist á heilsíðu í sérstöku afmælisblaði Le Journal de Tintin þann 9. janúar árið 1979.
Þarna er auðvitað stíll Morris áberandi (hann teiknaði jú myndina!) og það er sérstaklega gaman að sjá hinar stóru hendur Tinna sem einkenna einmitt persónur listamannsins. Margir hafa örugglega tekið eftir því úr Lukku Láka bókunum en reyndar eru stórar og ýktar hendur áberandi frá listamönnunum sem kenndir voru við Marcinelle-skólann (Morris, Franquin, Jijé og Will) og mótuðu ligne atome stefnuna.
Fyrir alllöngu var tekin sú ákvörðum á heimili SVEPPAGREIFANS að skrifa nokkuð ítarlega færslu, á hinn hugsanlega ofmetna sólmyrkvadag 12. ágúst 2026, þar sem fjallað yrði (í tilefni dagsins) um frægan sólmyrkva sem Hergé gerði skil í Tinna sögunni Fangarnir í Sólhofinu. Það gleymdist auðvitað alveg. En jú, vissulega hefur efninu hér með verið gerð skil þótt ekki hafi það verið í því formi sem upphaflega var gert ráð fyrir. Og til að ná almennilegri tengingu við fyrrnefnda bók er færslan að sjálfsögðu myndskreytt með nokkrum valinkunnum myndarömmum úr sögunni.
SVEPPAGREIFINN sjálfur hefur svo sem ekki verið með nein sérstök plön um hvernig eða yfirhöfuð hvort hann ætlaði að gera sér einhvern dagamun í tilefni viðburðarins en dagurinn í dag er auðvitað bara ósköp venjulegur og ómerkilegur miðvikudagur. Auðvitað er GREIFINN þó búinn að deila hrakspám í allt sumar um skýjað og dumbungslegt veður þennan dag, helst með dæmigerðu íslensku roki, rigningu og öllu tilheyrandi, svo hann geti látið hlakka í sér af hreinum óþverraskap. En það má auðvitað ekki gleyma því að hann er svartsýnismaður að eðlisfari - enda heitir þessi myndasöguvettvangur hans auðvitað Hrakfarir & heimskupör eins og allir vita. Tunglið valdi reyndar tímasetninguna sína á nokkuð skynsaman hátt og ákvað að renna sér þessa braut eftir hefðbundinn vinnudag og er það allavega vel til fundið. Þó SVEPPAGREIFINN fari ekki beint himinskautum yfir þessu náttúruundri þá vill hann gjarnan að 12 ára dóttir hans fái að upplifa og njóta atburðarins á þann hátt að hann verði henni eftirminnilegur til frambúðar. Það eru nefnilega heil 170 ár þar til næsti almyrkvi bregður sér til landsins og því kannski ekkert sérstaklega líklegt að hún nái að sjá hann. Hann gerir auðvitað allt fyrir dóttur sína enda sér hann ekki sólina fyrir henni ... öööhhhh... á sama hátt og hann muni hugsanlega ekki sjá sólina fyrir tunglinu í dag!
Annars er þessi dagsetning (12. ágúst) samt auðvitað kunnuglegri fyrir aðrar sakir. Margir af kynslóð SVEPPAGREIFANS muna nefnilega eftir plötu/geisladiski Sálarinnar hans Jóns míns sem bar hið frumlega nafn 12. ágúst '99 og hafði að geyma órafmagnaða tónleika sveitarinnar sem fóru einmitt fram í Loftkastalanum þann áðurnefnda dag. Á disknum má líka einmitt finna lag sem heitir Sól um nótt og gefur klárlega vísbendingu um spádómsgáfu sveitarinnar ef vilji er fyrir hendi - þarna er náttúrulega augljóslega verið að syngja um sólmyrkva! Hinn tuðgjarni síðuhafi Hrakfara & heimskupara verður auðvitað að geta þess í framhjáhlaupi að hinir meintu "órafmögnuðu" tónleikar er að sjálfsögðu hið mesta bull. Á myndböndum af vettvangnum góða sjást bæði urmul hljóðnema og ljóskastara auk þess sem herlegheitin voru öll tekin upp og gefin út bæði á geisladisk og dvd. Þarna var því augljóslega nóg af rafmagni!
En þetta var sem sagt myndasögublogg dagsins sem átti að fjalla um sólmyrkva í Tinnabók og það þarf engan stjörnufræðing til að átta sig á að færslunni var rumpað af í miklum flýti. Það hefur svo sem gerst áður ...
Það nálgast vor og þá finnst SVEPPAGREIFANUM alveg tilvalið að henda í eins og eina stutta og ódýra færslu á hinum stopulu Hrakförum og heimskupörum sínum. Það er orðinn fulllangur tími síðan síðuhafi ómakaði sig af því að birta efni hér á blogginu síðast og þá er ekki að um annað að ræða en að reyna að bæta eilítið úr því. En eins og hjá svo mörgum öðrum er SVEPPAGREIFINN orðinn töluvert þreyttur á síendurteknum og þreyttum gervigreindarmyndum sem birtast í tíma og ótíma á hinum margvíslegu samfélagsmiðlum Internetsins. Það er til dæmis eiginlega varla hægt að opna myndasögugrúbbu á Facebook án þess að þar birtist eins konar skrumskæling af einhverju tagi, á vegg hennar, búið til af gervigreindinni. SVEPPAGREIFANUM fannst því við hæfi að birta hér í staðinn skemmtilegan Tinna brandara þar sem alvöru listamaður af holdi og blóði kemur við sögu. Hér er sem sagt, ósmekklegur en fyndinn, tveggja myndaramma brandari eftir finnska teiknarann Pertti Jarla þar sem hann notar vindla Faraós sem efnivið úr samnefndri bók. SVEPPAGREIFINN leyfði sér að þýða og teikna texta hans upp á íslensku svo lesendur þurfi ekki sjálfir að dunda sér við að pikka hinn finnska texta upp í Google translate. Njótið!
Það er orðið ansi langt síðan SVEPPAGREIFINN gaf sér síðast tíma til að setja inn færslu hér á Hrakförum og heimskupörum. Auðvitað eru ýmsar misjafnar ástæður (eða afsakanir) fyrir réttlætingu á því en tímaskortur er ein sú helsta því SVEPPAGREIFINN hefur haft yfirdrifið nóg á sinni könnu undanfarna mánuði. Hann fann sér þó gott tilefni til að bæta úr þessum færsluskorti sínum þegar hann rakst á fyndna en um leið frekar ósmekklega myndasögutengda mynd, af ónefndri bloggsíðu, á hinum margfrægu víðáttum Internetsins. SVEPPAGREIFINN getur jú stundum líka verið svolítið ósmekklegur á köflum og þá sérstaklega þegar hann fær kost á birtingu ódýrrar færslu. En hér er sem sagt um að ræða myndaramma úr Tinnabókinni Leynivopninu sem allir sannir teiknimyndasögulesendur þekkja auðvitað til hlítar. Og gjörið svo vel!
Í dag er boðið upp á frekar snöggsoðna og ódýra færslu. En SVEPPAGREIFINN hefur iðulega alla anga úti, eftir því sem tími og næði gefast til, við að reyna að hafa upp á áhugaverðu efni til birtingar hér á Hrakförum hans og heimskupörum. Hann gramsar gjarnan á hinu svokallaða Interneti, grúskar í bókum og blöðum og fylgir hinum ýmsum grúbbum á Facebook með það að markmiði að finna eitthvað til að punkta hjá sér. Stundum verður þetta grúsk hans til að færsla fæðist hér á síðunni en oftar gerist mest lítið. Og þó ... á einum ónefndum stað, á öllu þessu flakki sínu, rak hann samt nýlega augun í merkilegt myndasafn sem samanstendur af litlum myndarömmum af blaðsíðu 34 úr Tinna bókinni Svaðilför í Surtsey. Í þessu myndasafni má sjá hvar Tinni kallar reiðilega nafn Tobba enda hefur hundspottið laumast til að fá sér svolítið í staupinu. Þarna hafa sem sagt verið týndar til nokkrar útgáfur af myndinni þar sem nafn Tobba kemur fyrir á 24 mismunandi og ólíkum tungumálum. Samkvæmt Wikipedia hafa Tinna bækurnar verið þýddar á yfir 70 tungumálum svo hér er alls ekki um tæmandi lista að ræða og glöggir lesendur átta sig þó auðvitað strax á því að inn í þetta safn vantar íslensku útgáfuna af myndarammanum.
Þetta fannst SVEPPAGREIFANUM auðvitað hin mesta hneisa og þótti því ekki tilhlýðilegt annað en að bæta aðeins úr þeim Tobba-skorti hið snarasta. Hann tók sér því það bessaleyfi að birta í þessari færslu hina upprunalegu íslensku útgáfu af þessum margbreytilega myndaramma.
Nokkru síðar rakst SVEPPAGREIFINN síðan á aðra sambærilega mynd sem að þessu sinni er af Kolbeini kafteini og kemur fyrir ofarlega á blaðsíðu 53 í bókinni um Fjársjóð Rögnvaldar rauða. Í þessari myndasultu allri sést kafteinninn öskra reiðilega á Skaftana, eins og hans er reyndar von og vísa, einnig á talsverðum fjölda ólíkra tungumála. Að þessu sinni er um að ræða 22 mismunandi tungumál og enn á ný hefur þeim aðila, sem safnaði þessum myndarömmum saman, láðst að hafa íslensku útgáfuna með. Þessi frammistaða er náttúrulega til háborinnar skammar.
Þessi íslensku-skortur er að sjálfsögðu fyrir neðan allar hellur (er ekki alltaf notaður sandur þar?) og SVEPPAGREIFINN birtir hér einnig myndarammann góða, á hinu ylhýra, til samanburðar.
Tinna bækurnar hafa löngun verið SVEPPAGREIFANUM hugleiknar, líkt og flestar af þeim myndasögum sem hann las sem barn, og í seinni tíð hefur hann gert sér far um að nálgast sem mest af því sem komið hefur út hér á landi um kappann. Það hefur svo sem gengið alveg ágætlega. Stærstur hluti bókanna eru í höfn, fyrir utan örfáar af allra torsóttustu gripunum, og flestar af þeim eru í vel ásættanlegu ástandi. Þá hefur síðuhafi einnig verið duglegur í seinni tíð að viða að sér Tinna bókum á sem flestum og ólíkustu tungumálum og á orðið hið ágætasta safn í þeim flokki. Enn á ný skal það þó áréttað að SVEPPAGREIFINN er alls ekki safnari!
En það eru ekki eingöngu bækurnar sem hann hefur lagt sig fram um að nálgast. Eins og flestir Tinna aðdáendur á Íslandi vita þá gaf myndbandsútgáfan Bergvík út fjölda teiknimynda um blaðamanninn knáa, fyrst í VHS formi á myndbandsspólum en seinna í DVD formi á þartilgerðum geisladiskum. Í fyrrnefndu teiknimyndunum var það Eggert Þorleifsson sem leiklas inn á þættina og gerði það með einstökum hætti. Rödd Tinna sjálfs hljómar til dæmis einhvern veginn mjög hjárænulega í meðförum Eggerts og það er alveg stórkostlegt. SVEPPAGREIFINN átti einhverjar af þessum gömlu VHS spólum á sínum tíma en þegar DVD formið kom til sögunnar skipti hann gömlu spólunum út fyrir diskana. Ef minnið bregst ekki fóru þær þá allar í Góða hirðirinn. Þó spólurnar hafi verið orðnar löngu úreltar og erfiðar viðureignar sér hann samt svolítið eftir því að hafa losað sig við þær söfnunargildisins vegna. Í fyrstu var SVEPPAGREIFANUM ekki alveg ljóst hversu margar af þessum Tinna teiknimyndaþáttum hefðu komið út á VHS formi á sínum tíma en líklegt er að þær hafi verið tíu talsins. Svo virðist sem fyrstu sex spólurnar hafi fengist í gegnum sérstakan klúbb (Íslenski myndbandsklúbburinn) til að byrja með. Þessar sex myndbandsspólur voru gefnar út árið 1988 og árið 1989 bættust við að minnsta kosti fjórar í viðbót á vegum Myndbandasafnsins en seinna fengust þær einnig keyptar í lausasölu. Hugsanlega voru þær þó fleiri. Þær spólur sem SVEPPAGREIFINN veit með vissu að komu út á sínum tíma voru eftirfarandi:
Svaðilför í Surtsey - (Íslenski myndbandsklúbburinn - 1988)
Krabbinn með gylltu klærnar- (Íslenski myndbandsklúbburinn - 1988)
Sjö kraftmiklar kristallskúlur - (Myndbandasafnið - 1989)
Fangarnir í Sólhofinu - (Myndbandasafnið - 1989)
Í myrkum mánafjöllum - (Íslenski myndbandsklúbburinn - 1988)
Leynivopnið - (Myndbandasafnið - 1989)
Tinni og Hákarlavatnið - (Myndbandasafnið - 1989)
Það má líka endilega benda á skemmtilega villu sem kemur fyrir á myndbandshulstrunum sem tilheyra framhaldssögunni um Leyndardóm Einhyrningsins og Fjársjóð Rögnvaldar rauða. Nöfnum þáttanna hefur nefnilega verið víxlað en það eitt gefur söfnunargildi spóluhulstranna, án nokkurs vafa, aukið vægi þegar fram líða stundir. Því má reikna með að allir sannir Tinna safnarar, sem ekki hafa enn eignast þessa gripi, hugsi sér gott til glóðarinnar og fari að leita uppi þessar gömlu spólur til að fullkomna enn betur söfnin sín. Villurnar má einmitt sjá á hulstrunum hér fyrir neðan.
Nú skal reyndar tekið fram að SVEPPAGREIFINN hafði aldrei horft á Tinna þættina með íslenska talinu að neinu marki. Hann var kominn nokkuð vel á þrítugsaldurinn þegar Ríkissjónvarpið hóf sýningar á Tinna þáttum (árið 1993), þar sem þeir Þorsteinn Backmann og Felix Bergsson skiptu með sér leikröddunum, en á þeim tíma hafði GREIFINN tekið sér nokkurra ára pásu frá þessu myndasögutengda áhugamáli sínu. Tinna þættirnir í Ríkissjónvarpinu entust í nokkra mánuði en ekki minnist SVEPPAGREIFINN samt þess að hafa séð einn þátt af þessari 39 þátta seríu á RÚV. Líklega hefur hann þá talið sig fyrir löngu vera alveg lausan við myndasögubakteríuna en sú þaulsetna nostalgíu-veira náði honum þó aftur fáeinum árum seinna og ekki hefur hann losnað við hana síðan. Þótt teiknimyndirnar hafi ekki endilega vera fremstar í forgangsröð þessa áhugamáls síns minnist hann þess að hafa horft á þættina um tunglferð Tinna á einhverri franskri sjónvarpsstöð á hótelherbergi í Genf fyrir fáeinum árum. Það fannst honum reyndar nokkuð viðeigandi því Hótel Cornavin (úr Tinnabókinni Leynivopninu) var í aðeins nokkurra tuga metra fjarlægð og andi Tinna bókanna sveif þar augljóslega yfir vötnum (væntanlega Genfar-vatni þá).
En
það var síðan árið 2006 sem Bergvík hóf að gefa Tinna þættina út á DVD
formi sem þá var búið að ryðja VHS spólunum út af markaðnum.
SVEPPAGREIFINN stóð alltaf í þeirri meiningu að um væru að ræða sömu
þættina og þá sem Eggert Þorleifsson hafði leiklesið inn á VHS hálfum
öðrum áratug áður. Þeir hefðu aðeins verið talsettir upp á nýtt og fleiri sögum bætt inn í seríuna. En svo var þó alls ekki. Hér var um að ræða
tiltölulega nýja seríu sem framleidd hafði verið á árunum 1991-92 og voru einmitt sömu þættirnir og sýndir höfðu verið á RÚV þrettán árum áður með þeim Þorsteini og Felix. Sú sería var framleidd af Ellipse Program í Frakklandi og Nelvana Limited í Kanada og hafði einmitt að geyma samtals þessa 39 þætti, sem sýndir höfðu verið á RÚV, en hver diskur innihélt ýmist einn eða tvo þætti eftir umfangi hverrar sögu. Alls voru 21 saga framleidd í þessari yngri útgáfu en aðeins Tinni í Sovétríkjunum og Tinni í Kongó voru aldrei búnar til. Svo virðist sem allar þær teiknimyndir hafi komið út hjá Bergvík en í safni SVEPPAGREIFANS má hins vegar finna 23 diska. Þegar hann fór að skoða betur þá diska komst hann að raun um að suma þættina mátti finna með tveimur mismunandi útlítandi hulstrum. Þannig uppgötvaði hann að gömlu þættina, sem Eggert Þorleifs hafði leiklesið inn á VHS spólurnar, mátti einnig finna í DVD formi. Bergvík hafði því endurútgefið þá þætti samhliða hinum en þær útgáfur má þekkja af gulum kili, hulstranna utan af þeim, auk þess sem grár rammi er utan um forsíðumynd þeirra. Samtals eru því til 30 diskar með Tinna sem komið höfðu út hjá Bergvík en auk gömlu þáttanna 8 má þar einnig finna Tinna og Hákarlavatnið. Og líkt og með VHS útgáfuna á eldri þáttunum hefur nöfnum Leyndardóms Einhyrningsins og Fjársjóð Rögnvaldar rauða verið víxlað en á þeim yngri eru titlarnir hins vegar réttir. SVEPPAGREIFINN ráfar eitthvað í að þessir diskar hafi jafnvel fylgt með frægum pylsupökkum frá Sláturfélagi Suðurlands á sínum tíma? Eða kannski misminnir hann.
En ástæðu þess að SVEPPAGREIFINN ákvað að skrifa færslu um þessar gömlu Tinna teiknimyndir má rekja til þess að undanfarnar vikur hefur níu ára dóttir hans verið að dunda sér við að lesa Tinna bækur gamla mannsins og sýnt auk þess einnig áhuga á að horfa á teiknimyndirnar í gömlum DVD spilara heimilisins. Tinna diskunum hefur þannig verið skellt nokkuð reglulega í spilarann að undanförnu og síðuhafi hefur því ekki komist hjá því að gjóa augunum stöku sinnum á skjáinn til að fylgjast með spennandi atburðarásinni. Um leið hefur hann auðvitað notað tækifærið til að fræða dótturina svolítið, með bráðnauðsynlegum og föðurlegum upplýsingum, um þessar sígildu og um leið merkilegu myndasögur. Það verður að viðurkennast að sú litla er furðulega móttækileg fyrir þeirri upplýsingagjöf, þannig að SVEPPAGREIFINN er augljóslega að gera eitthvað rétt í uppeldinu. Það sem hefur þó helst komið honum á óvart, með þessu öðru auga glápi, er hve sumir þættirnir sem hann hefur rekist á, úr eldri seríunni, eru langt frá upprunalegu sögunum. Sumar þeirra eru nánast óþekkjanlegir. Hann tók eftir því að söguþráðurinn til dæmis bæði í Leynivopninu og Dularfullu stjörnunni eru allt annars eðlis en í bókunum sjálfum. Er einhver sem kannast til dæmis við þá atburðarás sem kemur fyrir í sýnishorninu hér að neðan?
Í þessum þætti af Dularfullu stjörnunni er það prófessor Vandráður en ekki prófessor Viðutan sem fer með þeim Tinna og Kolbeini í loftsteinaleiðangurinn á norðurslóðir auk þess sem Skaftarnir eru einnig með í för. Skip leiðangursins heitir Sirius (sem kemur þá úr sögunni um Fjársjóð Rögnvaldar rauða) en ekki Aurora og kafbátur reynir að sökkva því með tundurskeytum. Vandráður stekkur í fallhlíf úr flugvél (með Tobba í fanginu) niður á loftsteininn á meðan Tinni stendur í stórræðum á öðrum vettvangi og Kolbeinn kafteinn bjargar þeim öllum að endingu úr annarri flugvél. Heildarmyndin af sögunni heldur sér reyndar að mestu leyti en er krydduð með margvíslegum hætti. Í
eldri þáttunum minna stíll og hreyfingar sögupersónanna um margt á þann
takt sem fylgdi teiknimyndunum um Bleika pardusinn, sem margir muna
eftir úr Ríkissjónvarpinu, og voru gerðir á svipuðum tíma. Hvað varðar fleiri dæmi um frjálslegar atburðarásir í þessum Tinna þáttum má einnig nefna að í Í Myrkum mánafjöllum (sem hefur reyndar að geyma báðr sögurnar úr tunglferðabókunum) lendir Tobbi í þeim óheppilegu aðstæðum að lokast óvart inni í tilraunaeldflaug, sem fer síðan með hann til tunglsins, en Tinni og félagar hans ákveða í skyndi að fara einnig til tunglsins að bjarga honum! Það er ansi ólíkt upprunalegu sögunni.
Þessir eldri Tinna þættir voru framleiddir á árunum 1957 til 1964 af Belvision Studios sem var stofnað af Raymond Leblanc og tveimur félögum hans. Leblanc var einmitt einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Tinna tímaritsins eins og margir líklega vita. Alls voru þessir þættir átta talsins og þeir voru því allir hluti af VHS útgáfu Bergvíkur sem Eggert Þorleifsson las inn á á sínum tíma. Bergvík notaði reyndar tækifærið og gaf einnig út bíómyndina Tinna og Hákarlavatnið með þessum þáttum, þar sem Raymond Leblanc var sjálfur leikstjóri, en um þá mynd fjallaði SVEPPAGREIFINN um fyrir ekki svo löngu og má lesa hér. En þar að auki fylgdi með, þessari VHS útgáfu Bergvíkur, kvikmyndin Tintin et le temple du soleil (Fangarnir í Sólhofinu) sem Belvision framleiddi árið 1969 og var leikstýrð af Eddie Lateste. Þá mynd skipti Bergvík reyndar í tvennt og gaf út á tveimur spólum sem Sjö kraftmiklar kristallskúlur og Fangarnir í Sólhofinu. En þegar þessir Tinna þættir (8 stk) voru sýndir vikulega í sjónvarpi í Belgíu á sínum tíma voru þeir klipptir niður í 5 mínútna langa framhaldsþætti og urðu þannig að 104 þáttum. Þar var lopinn teygður allsvakalega þar sem þeir hófust á tveggja mínútna upprifjun úr þættinum á undan og í kjölfarið komu síðan heilar þrjár mínútur af nýju efni. Það er ólíklegt að seinni tíma áhorfendur hefðu látið bjóða sér upp á slíkt fyrirkomulag. Í síðari útfærslum höfðu þættirnir verið klipptir saman svo þeir mynda eðlilega heild eins og við þekkjum af fjölföldun Bergvíkur.
Belvision hóf starfsemi sína reyndar árið 1954 og fyrsta tilraun fyrirtækisins til að festa Tinna á filmu í teiknimyndaformi fólst í tveimur svart/hvítum þáttum sem framleiddir voru á 16 millimetra filmur. Þeir þættir voru byggðir á sögunum um Veldisprota Ottókars og Skurðgoðinu með skarð í eyra og er ekki að finna í því safni teiknimyndaþátta á VHS sem Bergvík gaf út á sínum tíma. Hergé sjálfur kom persónulega ekkert að þessum þáttagerðum, enda þá önnum kafinn við söguna Kolafarminn (Coke en stock), og
óskaði því eftir að Bob de Moor hefði yfirumsjón með þeim. Þessir
tveir svart/hvítu þættir þóttu mjög frumstæðir. Þeir voru í einhvers konar hreyfimyndastíl og því engan veginn sambærilegar við það efni sem best kom frá Ameríku á sama tíma. Þættirnir voru viðvaningslega gerðir og metnaðarlausir og því þótti ekki réttlætanlegt að halda áfram þessari teiknimyndagerð í
sama formi. Reyndar
skal það tekið fram að þessa þætti er almennt mjög erfitt að nálgast og
svo vandfundnir eru þeir að þá er til dæmis hvergi að finna í heild sinni á Netinu.
Hér
að neðan má sjá dæmi um frumstæða vinnu þessara svart/hvítu þátta. Á þessum tveimur
myndarömmum sést hvernig einungis framhandleggir Tinna færast en að öðru
leyti er enginn annar munur á myndunum. Þessi tilfærsla á höndunum
gerir það að verkum að önnur hendi hans skyggir aðeins á öxl Múskars XII konungs
Sýldavíu þrátt fyrir að þeir standi hvor á móti öðrum.
Eftir nokkra uppstokkun á framleiðslunni litu hinir
frönskumælandi sjónvarpsáhorfendur því augum nýja þætti sem þeir voru heldur
sáttari með þó ekki yrðu þeir þó fleiri en átta talsins í það skiptið eins og áður sagði. Þessir þættir voru heldur nútímalegri, enda í lit og festir á 36 millimetra filmu, en auk þess voru þeir að einhverju leyti aðlagaðir fyrir amerískan markað. Almennt séð er heimili Tinna til dæmis staðsett í New York í þáttunum en ekki Brussel. Í þessum átta þáttum drekkur Kolbeinn kafteinn kaffi og lætur Viskíið alveg eiga sig en reykir þó pípu. Prófessor Vandráður heyrir eðlilega, Skaftarnir eru bræður og hafa nákvæmlega eins yfirvaraskegg og í sumum þáttanna er Tobbi með rauða hálsól. Hergé hafði sjálfur ekki komið beint að framleiðslu þessa þátta og varð eðlilega mjög ósáttur þegar hann uppgötvaði hve langt þeir voru komnir frá upprunalegu sögunum hans. Yngri þættirnir, sem framleiddir voru á árunum 1991-92, voru hins vegar alveg í anda upprunalegu sagnanna og almennt þykja þeir þættir hafa heppnast nokkuð vel. Að endingu má geta þess að Hergé sjálfur kemur fyrir og er teiknaður inn í alla þættina 21 í jafn mörgum mismunandi hlutverkum.
Í dag 3. mars árið 2023 eru liðin fjörtíu ár síðan Hergé, höfundur Tinna bókanna, lést. SVEPPAGREIFINN gerði því einhver skil í færslu hér fyrir margt löngu síðan og í annarri enn eldri færslu hans má einnig finna nokkuð ítarlegt æviágrip um listamanninn belgíska. Þessi tímamót (auk ábendinganna um greinarnar tvær) eru samt í sjálfu sér ekkert endalega tilefni færslu dagsins í dag, þó merkisatburður sé, heldur ljósmynd af Hergé sem síðuhafi rakst nýlega á. Á umræddri mynd, sem er frá árinu 1975, sést hvar Hergé stendur við borð þar sem verkum hans hefur verið raðað upp fyrir framan listamanninn. Þarna má meðal annars sjá nokkrar af Tinna bókunum á mismunandi tungumálum og ef glöggt er gáð má einmitt reka augu í hina íslensku Svaðilför í Surtsey (sem kom út á íslensku árið 1971) í bókaröðinni hægra megin.
Um mitt árið 1975 höfðu tíu Tinna bækur þegar verið komnar út á íslensku og fyrir jólin þetta ár bættust við fjórar teiknimyndasögur með kappanum í viðbót. Íslenska myndasöguútgáfan á árum áður var ekki stór á evrópskan mælikvarða og SVEPPAGREIFANUM finnst því nokkuð merkilegt að íslensk Tinna bók skuli hafa ratað beint inn á borð Hergé.
SVEPPAGREIFINN þurfti að bregða sér í veikindarfrí, vegna smávægilegrar aðgerðar, skömmu fyrir jólin sem gerði það að verkum að hann neyddist til að dvelja heima við í um hálfan mánuð. Fyrstu dagar sjúkralegunnar fóru að vísu fram, að stórum hluta, í einhvers konar móki enda kallinn á sterkum verkja- og bólgueyðandi lyfjum en á fáeinum dögum var hann þó orðinn nægilega hress til að gramsa svolítið í DVD safninu sínu. Þar gróf hann meðal annars fram stórmyndina Tinni og Hákarlavatnið eða Tintin et le lac aux requins eins og kvikindið heitir víst á frummálinu franska.
Ekki man SVEPPAGREIFINN endilega eftir því að hafa séð þessa teiknimynd áður en hann las auðvitað oft samnefnda kvikmyndabók af tómri Tinna-skyldurækni á sínum yngri árum. Reyndar minnist hann þess ekki að hafa opnað bókina í næstum fjörtíu ár þegar hann dró eintak sitt af henni úr myndasöguhillunum sínum í kjölfar áhorfs myndarinnar. En kvikmyndabókin Tinni og Hákarlavatnið var einhvers konar myndasöguútgáfa af kvikmyndinni. Bókin var unnin upp úr teiknimyndasögu sem Bob de Moor vann og teiknaði hjá Hergé Studios og birtist í belgískum (Le Soir), frönskum (France Soir) og hollenskum dagblöðum á árunum 1972-73. Á þeim vettvangi var sagan ólituð og birtist ein ræma á dag þar til yfir lauk. Hér má sjá dæmi um hvernig þessi fyrsta myndasöguútgáfa sögunnar kom lesendum þessara dagblaða fyrir sjónir.
Nokkru seinna var sagan síðan birt í lit í hollenska myndasögutímaritinu "Pep" og einnig birtist hún í því sama litaða formi í stóru, hollensku sjónvarpstíðindatímariti árið 1974. Þessi útgáfa sögunnar hefur stundum verið nefnd hollenska útgáfan af sögunni og hún hefur meira að segja verið gefin út í bókarformi nokkrum sinnum og er að sjálfsögðu alveg kolólöglega.
Að lokum er síðan best að sjá þessar sömu myndir, líkt og við þekkjum þær, eins og þær koma endanlega fyrir í kvikmyndarbókinni um Tinna og Hákarlavatnið. Teikningarnar af sögupersónunum eru nákvæmlega þær sömu en bakgrunnsmyndirnar eru töluvert öðruvísi. Við kvikmyndarbókaútgáfuna voru málaðar bakgrunnsmyndir sjálfrar kvikmyndarinnar notaðar og því er yfirbragð þeirrar útgáfu allt annað en þeirrar upprunalegu sem birtist fyrst í dagblöðunum. Þetta var gert til að reyna að fá lesandann til að upplifa betur anda kvikmyndarinnar og fyrir vikið er blær sögunnar allt annar en hinna Tinna sagnanna eftir Hergé sjálfan. SVEPPAGREIFINN upplifir söguna svolítið óskýra og það er eins og hún hafi aldrei verið almennilega í fókus.
Myndasagan sem unnin var upp úr kvikmyndinni kom því fyrir sjónir lesenda í þremur mismunandi útfærslum. Svart/hvítu útgáfunni úr dagblöðunum, lituðu útgáfunni af sömu teikningum og síðan kvikmyndabókinni sem við Íslendingar þekkjum.
En aftur að kvikmyndinni sjálfri,Tinna og Hákarlavatnið. Ekki getur SVEPPAGREIFINN sagt að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum með þá mynd þar sem hann hafði nákvæmlega engar væntingar um hana. Hann gerði bara ráð fyrir að hún væri eins og bókin og það stóðst svo sem ágætlega í fyrstu. En samt ekki. Auðvitað er þetta nákvæmlega sama sagan og lesandinn hlýtur að standa í þeirri trú að bókin sé unnin beint upp úr teiknimyndinni. En svo er reyndar alls ekki. Svo virðist nefnilega sem að Bob de Moor hafi teiknað myndasöguna alveg upp á nýtt þó stillur úr myndinni séu að einhverju leyti nýttar sem fyrirmyndir. Það þarf ekki nema að horfa á myndina og hafa bókina til hliðsjónar til að sannreyna það. Þetta kom SVEPPAGREIFANUM verulega á óvart. Hérna fyrir neðan má einmitt sjá þessa sömu myndaramma, og hér fyrir ofan, eins og þeir koma fyrir í kvikmyndinni. Það þarf engan sérfræðing til að sjá að þeir eru öðruvísi.
Það er kannski ekki úr vegi að kíkja á fleiri dæmi til samanburðar.
Það var reyndar eitt sem fór svolítið í taugarnar á SVEPPAGREIFANUM
varðandi Tinna og Hákarlavatnið en það var tónlistin í kvikmyndinni eða öllu heldur
söngatriðin í henni. Snemma í myndinni skella systkinin Nikki og Núska nefnilega í söng og
eitt andartak var síðuhafi dauðhræddur um að Tinni og Hákarlavatnið
væri einhver hallærisleg dans- og söngvamynd með
sýldavísku teiknimyndaívafi. SVEPPAGREIFINN beið á milli vonar og
ótta um að Tinni sjálfur eða jafnvel Kolbeinn kafteinn brystu í söng með
óafturkræfanlegum afleiðingum. En það slapp sem betur fer fyrir horn. Annars er tónlistin að öðru leyti dæmigerð fyrir '70s kvikmyndir.
En teiknimyndin Tintin et le lac aux requins var gerð af belgíska kvikmyndafélaginu Belvision Studios og var frumsýnd þann 13. desember árið 1972. Leikstjóri myndarinnar var Raymond Leblanc en hann var fyrst og fremst útgefandi sem kom að mörgum stórum verkefnum sem tengdust teiknimyndasöguútgáfu í Belgíu. Leblanc var til dæmis einn af þeim sem stofnuðu Le Lombard myndasöguútgáfufyrirtækið fræga sem síðan fór að gefa út Le Journal de Tintin (Tinna tímaritið) fyrir Hergé og Belvision Studios sem framleiddi auðvitað Tintin et le lac aux requins og reyndar fjölda annarra teiknimynda um Tinna. Það eru einmitt sömu Tinna teiknimyndirnar og Bergvík gaf út á sínum tíma. Þá má auðvitað líka geta þess að Belvision Studios kom einnig að gerð nokkurra mynda um Ástrík og Lukku Láka, svo einhverja séu nefndar, auk fjölda annarra mynda og þátta.
Handrit Tintin et le lac aux requins var hins vegar ekki skrifað af Hergé (Georges Remi) höfundi Tinna bókanna en hann kom þó að einhverju leyti að vinnu hennar við ráðgjöf og fleira. Aðalhöfundur handritsins var Michel Greg og hann er yfirleitt skrifaður fyrir því en honum til mikillar aðstoðar var Jean-Michel Charlier. Þeir félagarnir voru báðir góðir vinir Hergé og höfðu meðal annars starfað lengi með honum hjá Hergé Studios. Greg var til dæmis ritstjóri Le Journal de Tintin, á árunum 1965-74. Seinna varð hann einnig þekktur fyrir myndasögurnar um Achille Talon (Alla Kalla) og handrit að fáeinum sögum um Sval og Val og Modeste og Pompon sem hann samdi fyrir André Franquin. Jean-Michel Charlier, var auðvitað þekktastur fyrir handritsgerðina að sögunum um Blástakk liðþjálfa sem hann gerði að mestu í samstarfi við listamanninn Jean Giraud. Kvikmyndin Tintin et le lac aux requins var raunar að miklu leyti unnin hjá Hergé Studios og margir af listamönnum fyrirtækisins komu þar við sögu, bæði við teiknun og litun, þó Hergé sjálfur hefði hvorki komið neitt að teiknivinnu kvikmyndarinnar né myndasögunnar sem gerð var í kjölfar hennar. Á meðal þeirra sem komu að teiknun myndarinnar má nefna, auk Bob De Moor, Nicholas Broca (Nic) sem kom meðal annars að gerð þriggja myndasagna um þá Sval og Val ásamt handritshöfundinum Raoul Cauvin. Það
má því segja að nokkuð margir af þekktustu nöfnum belgíska og franska
myndasöguheimsins hafi sameinað krafta sína við þessa teiknimynd.
Sagan segir að þó Hergé hafi að miklu leyti verið sáttur með afraksturinn þá hafi hann ekki verið alveg fullkomlega ánægður með útkomuna. Það var þó ekki kvikmyndin sjálf, sem fór fyrir brjóstið á honum, heldur myndasöguútgáfan sem hóf að birtast í dagblöðunum fljótlega í kjölfar frumsýningarinnar. Hergé hafði verið í löngu fríi á sama tíma og sá því ekki afraksturinn í blöðunum á heimaslóðum fyrr en hann kom heim og varð þá fyrir miklu áfalli. Hann hafði auðvitað ekki komið neitt nálægt teiknun myndasögunnar og fannst hún alveg hræðileg. Það var því á þessum tíma sem Hergé tók þá ákvörðun að enginn annar skyldi teikna Tinna að honum látnum.
Þó handrit Gregs sé ekki byggt á neinni af Tinna sögum Hergés þá benti Greg einhvern tímann á að sagan væri að einhverju leyti byggð á sömu grunnhugmynd og Alla, Siggu og Simbó bókin Le "Manitoba" Ne Répond Plus (Manitoba svarar ekki) sem hefur reyndar ekki komið út á íslensku. Þá koma fyrir í myndinni einstaka vísanir í atburði úr nokkrum Tinna bókum. Þar má til dæmis nefna að í byrjun myndarinnar er perlu stolið af safni og fölsku eintaki komið fyrir í stað hennar en sambærilegt tilvik má finna í Skurðgoðinu með skarð í eyra/Arumbaya skurðgoðinu(L'Oreille Cassée - 1937) þar sem eintaki af sjálfu skurðgoðinu var skipt út. Þá hittir Tinni Vaílu Veinólínó á förnum vegi í Sýldavíu og fær með henni far en svipaða atburðarás má einnig finna í sögunni um Veldissprota Ottókars (Le sceptre d'Ottokar - 1939). Einnig má nefna að í myndinni kemur fyrir hákarlakafbátur Vandráðs prófessors sem birtist í bókinni Fjársjóður Rögnvaldar rauða (Le Trésor de Rackam le Rouge - 1944). Þá gerist myndin nánast að öllu leyti í Sýldavíu sem er tilbúið land sem kemur fyrir í fáeinum bóka Hergé eins og allir vita. Að endingu má einnig nefna að milljarðamæringnum Laslo Carreidas sést bregða fyrir á flugvellinum í Klow, höfuðborg Sýldavíu, í byrjun myndarinnar en hann kemur að sjálfsögðu fyrir í bókinni Flugrás 714 til Sydney (Vol 714 pour Sydney - 1968) sem hafði komið út aðeins fjórum árum fyrr. Ekki kemur neins staðar fram hvaða erindi milljarðamæringurinn á til Klow og hann er hvergi sjáanlegur í myndasöguútgáfu sögunnar.
Þá má til gamans geta þess að Tintin et le lac aux requins naut nokkurrar hylli meðal almennings um það leyti sem hún kom út og var um tíma í þriðja sæti yfir vinsælustu bíómyndir í kvikmyndahúsum Belgíu á eftir The Godfather og Clockwork Orange. Það þarf svo sem ekki að koma á óvart því Tinni var (og er enn) gríðarlega vinsæll hjá hinum frönskumælandi þjóðum álfunnar.
Kvikmyndabókin Tinni og Hákarlavatnið
var síðan gefin út í íslenskri þýðingu Lofts Guðmundssonar fyrir Fjölva
útgáfuna árið 1978, en sjálfsagt hefur Þorsteinn Thorarensen einnig
komið eitthvað að þýðingu sögunnar. Árið á undan höfðu síðustu venjulegu
Tinna bækurnar komið út af þessari 1. útgáfu seríunnar á íslensku en
árið 1978 sendi Fjölvi frá sér fáeina afgangstitla eða aukabækur úr fórum Hergé. Þar á meðal voru tvær bækur úr bókaflokknum um Alla,
Siggu og Simbó, einhverjar Palla og Togga bækur og síðan tvær
kvikmyndabækur um Tinna. Þetta voru Tinni og bláu appelsínurnar og að sjálfsögðu hin áðurnefnda Tinni og Hákarlavatnið. Til stóð að þriðja kvikmyndabókin,Tintin et le Mystére de la d'or, kæmi einnig út en af þeirri útgáfu varð þó aldrei af einhverjum orsökum. Líkleg ástæða er auðvitað sú að þessar kvikmyndabækur tvær hafi ekki selst nægilega vel og Fjölva því ekki fundist taka því að vera að bruðla í útgáfu á svo illseljanlegri vöru. Tinna og bláu appelsínurnar og Tinna og Hákarlavatnið er enn tiltölulega auðvelt að nálgast næstum fjörtíu og fimm árum eftir að þær voru gefnar út hér á landi. Þær voru til í tugum eintaka á þrjú eða fjögur hundruð kall, á bókamörkuðum fyrir örfáum árum, og verða hugsanlega í boði á Bókamarkaði félags bókaútgefenda sem hefst undir stúku Laugardalsvallar eftir um það bil viku. Sumir hafa verið að reyna að selja þessar bækur á fjögur til átta þúsund kall á hinum ýmsu vettvöngum en það er engin ástæða til þess að vera að borga svo mikið fyrir eintök af þessum bókum. SVEPPAGREIFINN rak til dæmis augun í tvö eintök af Tinna og bláu appelsínunum og eitt af Tinna og Hákarlavatninu í Góða hirðinum (sem er orðin algjör okurbúlla) fyrir fáeinum dögum á fimm hundruð kall stykkið. Það er nóg til af þessum bókum í fínu standi ef þolinmæðin er fyrir hendi.
Myndin
Tinni og Hákarlavatnið ku víst hafa komið út á íslensku hjá Bergvík bæði á VHS (1989) og DVD
formi á sínum tíma en það var Eggert Þorleifsson sem sá um að leiklesa
allar raddir sögupersónanna inn á þær útgáfur. SVEPPAGREIFINN er reyndar
ekki svo heppinn að eiga hérlent eintak af myndinni en hugmyndin er þó
að bæta úr þeim skorti í komandi framtíð ef til hennar næst. Það er jú
hluti þess að vera myndasöguáhugamaður að eiga sem allra mest af því sem
tengist þessu furðulega áhugamáli. Eintak SVEPPAGREIFANS er danskt og
heitir því mikilúðlega nafni Tintin og Hajsøen (auðvitað með dönskum hreim) en skemmtilegra væri nú að eiga svolítið íslenskari útgáfu af myndinni. Þess má geta að Tinni og Hákarlavatnið er aðgengileg á íslensku hjá streymiþjónustunni Filmflex,
sem er rekin undir sama hatti og áskriftarsjónvarp Skjás 1, en einnig
er hægt að sjá hana á YouTube í upprunalegu útgáfunni í fínum gæðum. Hér er hún líka á ensku.
Að
lokum ætlar SVEPPAGREIFINN að birta eitt eftirminnilegt móment úr
kvikmyndabókinni sinni en þar er um að ræða atvikið þegar Tinni stendur
glæpakvendið frú Flekkan að verki ofan úr brunninum. Það verður að
segjast alveg eins og er að frá fyrstu tíð hefur SVEPPAGREIFINN haldið að þarna hefði
Þorsteinn hjá Fjölva ákveðið að taka sér skáldaleyfi og gefa Tinna
sjálfur þessi fleygu orð. En svo var þó ekki. Orðrétt kemur þetta víst nokkurn veginn svona
beint úr upprunalegu útgáfu bókarinnar og þeir Fjölva menn munu því vera alveg sárasaklausir af þessum tortryggilegu aðdróttunum SVEPPAGREIFANS.
Snöggsoðin færsla í dag eins og stundum hefur gerst undanfarnar vikur. En þennan föstudaginn birtir SVEPPAGREIFINN mynd sem listamaðurinn Bob de Moor teiknaði árið 1991. De Moor var, eins og flestir eflaust vita, einn af helstu aðstoðarmönnum Hergé við gerð sagnanna um Tinna og margir aðdáendur bókanna hefðu viljað að hann hefði tekið við af listamanninum þegar hann lést árið 1983. Ekkert varð þó úr því vegna útgáfurétts rétthafans Moulinsart á efninu. Reyndar hefði de Moor líklega aldrei náð að teikna mjög margar Tinna bækur, hefði hann fengið til þess tækifæri, ef miða á við hve sögurnar urðu stopular á síðustu árum Hergé. Því þó Bob de Moor hafi ekki verið orðinn mjög aldraður maður þá lést hann árið 1992 sextíu og sjö ára að aldri.
En mynd dagsins talar sínu máli og sýnir á skoplegan hátt hvernig listamaðurinn hefur séð fyrir sér uppruna sjálfs skurðgoðsins í sögunni um Skurðgoðið með skarð í eyra.
Reyndar lýsir SVEPPAGREIFINN yfir furðu sinni á því hversu lítið af trjákurli, af þessum glæsilega rauðviði, er að finna undir rótum trésins miðað við umfang útskurðsins. Eðlilegast væri líklega að Arúmba indjáninn stæði í spænum upp í hné ef allt væri með felldu. En hann má alla vega alveg vera ánægður með handverkið sitt.
Í myndasöguhillum SVEPPAGREIFANS má finna nokkuð fjölbreytt úrval af teiknimyndasögum. Og einnig ekki. Þar má nefnilega einnig finna töluverðan fjölda af mjög einhæfum safnkosti sem samanstendur af teiknimyndasögum sem eru meira og minna nánast allar þær sömu! Þarna er síðuhafi að sjálfsögðu að tala um Tinnabækurnar sínar tuttugu og þrjár sem finna má á nokkuð mörgum mismunandi tungumálum. Um þær ætlar hann að eyða nokkrum orðum í færslu dagsins.
Ástæða þess að SVEPPAGREIFINN ákvað að ráðast í þessa ákveðnu færslu sína núna var einfaldlega sú að um miðjan ágúst áskotnaðist honum fyrsta Tinna bókin sín á pólsku. Hér er um að ræða hina frábæru bók Kierunek księżyc sem allir þekkja að sjálfsögðu sem Eldflaugastöðina eða Ferðina til tunglsins eins og hún heitir víst í nýjustu íslensku þýðingu Frosks útgáfu. Það var pólskur vinnufélagi SVEPPAGREIFANS sem kom með þessa frábæru gjöf færandi hendi, úr mánaðarlöngu sumarfríi sínu í heimalandinu, og að sjálfsögðu kann síðuhafi honum sínar bestu þakkir.
Þrátt fyrir að SVEPPAGREIFINN eigi töluverðan bókakost í myndasöguformi, í hillum sínum, hefur það margoft komið fram hér á Hrakförum og heimskupörum að hann líti ekki á sig sem safnara. Teiknimyndasögurnar eru aðeins nauðsynlegur hluti af þessu áhugamáli hans og Tinnabækurnar eru þar auðvitað engin undantekning. Það var reyndar alveg óvart sem þessar Tinnabækur allar fóru að safnast saman í myndasöguhillum SVEPPAGREIFANS. Einhvern tímann fyrir líklega um tuttugu árum var honum gefinn fullur kassi af teiknimyndasögum, með bókum af ýmsum toga og í allavega ásigkomulagi, en þar mátti meðal annars finna fjórar eða fimm myndasögur um Tinna á dönsku. Síðuhafi var svo sem ekkert að ómaka sig sérstaklega við að losa sig við þessar aukabækur en á þeim tíma var aðaláhersla hans lögð á að eignast allar þær teiknimyndasögur sem gefnar höfðu verið út á íslensku. Dönsku bækurnar fóru því með öðrum myndasögum niður í kassa, voru geymdar þar í nokkur ár og eiginlega hálfgleymdust. Bækurnar voru bara skemmtileg viðbót við hinar Tinna bækurnar og voru ekki ætlaðar til neins sérstaks brúks. Með tímanum bættist jafnt og þétt í myndasögusafnið en allt fór þetta samt jafnóðum niður pappakassa enda voru búsetuúrræði SVEPPAGREIFANS með frumstæðari hætti hér fyrr á árum þar sem búslóð hans var þá oft meira og minna öll í kössum inni í geymslum. Ein og ein Tinna bók á erlendum tungumálum bættust þó við af margvíslegum ástæðum en þær voru aðallega á sænsku og ensku.
Það var síðan fyrir nokkrum árum sem SVEPPAGREIFINN rakst, einhverra hluta vegna, á Tinna í Tíbet á arabísku í Góða hirðinum. Bókin fannst honum það merkileg að hann keypti hana að sjálfsögðu og fjallaði meira að segja svolítið um hana í færslu hér á Hrakförum og heimskupörum nokkrum mánuðum seinna. Þetta var líklega fyrsta erlenda Tinna bókin sem SVEPPAGREIFINN greiddi sjálfur fyrir en fram til þessa hafði hann eingöngu hirt þær útlendu Tinnabækur sem honum hafði boðist gefins. Eftir þetta fór hann að huga alvarlega að því að eignast fleiri bækur úr seríunni á sem flestum tungumálum og var þá helst með einhverja ákveðna sögu í huga. Hann hefur stundum rekist á bloggfærslur frá erlendum Tinna sérfræðingum og söfnurum sem hafa einbeitt sér að einhverri sérstakri teiknimyndasögu á sem flestum tungumálum og hefur jafnvel séð hjá þeim myndir þar sem íslenskum Tinna bókum hefur brugðið fyrir þeirra á meðal. SVEPPAGREIFINN hefur þó aldrei komið því almennilega í verk að safna einhverri einni tiltekinni sögu en á nú nokkrar af Tinna bókunum á fimm til sex mismunandi tungumálum. Þá hefur hann örugglega einnig minnst á það hér á síðunni að fyrir mörgum árum var honum komið í sambandi við erlendan aðila sem var að safna Ástríki í Bretalandi á sem flestum tungumálum. Sem betur fer var SVEPPAGREIFINN hyggnari en svo að bjóða honum eintakið sitt.
En eftir að Tinni í Tíbet á arabísku var komið í myndasöguhillurnar SVEPPAGREIFANS fór hann að vera meira vakandi fyrir ódýrum, erlendum Tinna bókum á þeim nytjamörkuðunum sem hann rak nef sitt inn í. Þegar hann var erlendis fór hann að grípa með sér bækur sem hann rak augun í á flóamörkuðum og verslunum með notaðar myndasögur og fljótlega var hann einnig kominn með eintök á frönsku, þýsku, spænsku og hollensku. Smám saman vatt erlenda safnið því upp á sig og við bættust einnig fleiri bækur á dönsku og sænsku án þess þó að hann væri að sækjast eitthvað sérstaklega eftir þeim. Eins merkilegt og það er virðist enga norska Tinna bók hafa rekið á fjörur hans frá því þessi eftirgrennslan hófst. Lengi stóð hann reyndar í meiningu um að hann ætti þær nokkrar en við frekari athugun kom í ljós að þær voru allar á dönsku. Enn vantar honum einnig finnska bók en slíkt innlegg er eiginlega alveg bráðnauðsynlegt þó væri ekki nema vegna hinna frábærlega sjónrænu útlistingu á titlum bókanna á því merkilega tungumáli. Tinna bækurnar; Kultasaksinen rapu, Tuhatkaunon Tapaus, Seikkaailu punaisella merellä, Päämääränä kuu ogTintti kuun kamaralla myndu klárlega allar sóma sér vel í myndasöguhillum SVEPPAGREIFANS. Þá væri einnig mjög gaman ef alla vega önnur af þeim tveimur Tinna bókum sem út komu á færeysku enduðu í hillum hans. Þessar tvær bækur komu út á árunum 1987-88 og heita Hin gátuføra stjørnan (Dularfulla stjarnan) og Tignarstavur Ottokars (Veldissproti Ottokars). Það væri aldeilis frábært að eignast þær.
Með tímanum fóru síðan hinar erlendu Tinna bækur smám saman að hrúgast inn, jafnt og þétt, án þess þó að lagt hafi verið eitthvað sérstaklega mikið í að eignast þær. Ja, eiginlega ekki fyrr en eftir að covid tímabilið hófst. Fjölskylda SVEPPAGREIFANS átti þá ekki þann sama kost og áður að ferðast til útlanda en tvær til þrjár utanlandsferðir á ári höfðu áður dugað ágætlega til kaupa á teiknimyndasögum þótt Tinna bækurnar hafi aldrei haft þar neinn sérstakan forgang. Með faraldrinum gafst GREIFANUM þó tækifæri til að prófa sig áfram á nýjum slóðum og fullnægja myndasögukaupaþörf sinni með því að fara að panta sér áhugaverðar bækur að utan. Á þeim tíma tók það póstþjónustuna í heiminum reyndar svolítið langan tíma að koma pökkum sínum á lokaáfangastað en það var samt oft biðarinnar virði. Á þessum vettvangi hafði hann nokkrum sinnum rekist á Tinna á framandi tungumálum og freistaðist þá til að panta sér fáeinar bækur. Hann gætti þess þó ávallt að eyða ekki neinum svívirðilegum upphæðum í þessar myndasögur og keypti til dæmis enga Tinna bók sem kostaði meira en 6 til 8 evrur. Þessi vettvangur gaf honum kost á að kaupa Tinna bækur á kínversku, rússnesku og spænsku. Í safni hans má nú einmitt finna fjórar kínverskar Tinna bækur og þrjár þeirra eru í minna broti og reyndar einnig í mjúkspjalda formi. Aðeins bókin 月球探险 er í þeirri hefðbundnu stærð sem við þekkjum.
Þá
fór hann að biðla til vina og ættingja, sem leið áttu um framandi
lendur, um að grípa með sér Tinna bækur eftir því sem aðstæður leyfðu.
Þannig var einmitt pólska bókin hans til komin og fóstursonur hans gaukaði einnig að honum þriggja Tinna sagna safnhefti á ítölsku í sumar. Sú bók telur reyndar ekki alveg til jafns við upprunalegu Tinna bækurnar en telst samt með. Í þessum töluðum orðum telur Tinna bóka safn SVEPPAGREIFANS að því er virðist heilar hundrað þrjátíu og tvær teiknimyndasögur. Stór hluti þeirra telur auðvitað íslenskar bækur því metnaður góðra myndasögueigenda (og kannski pínulitilla nörda) er að sjálfsögðu fólginn í því að eiga allar þær útgáfur af Tinna bókunum sem komið hafa út á Íslandi frá upphafi og helst auðvitað í sem allra besta ásigkomulagi. Þessar íslensku bækur telja nú í heildina áttatíu bækur en SVEPPAGREIFINN á þó ekki nema sextíu og tvær af þeim. Íslensku Tinna bækurnar koma mjög hægt inn þar sem framboð þeirra er orðið ansi takmarkað en auk þess hefur síðuhafi ávallt lagt sig fram um að halda fjárveitingunum, til þessara bókakaupa sinna, innan skynsamlegra og eðlilegra marka. Hann myndi til dæmis aldrei borga 25 - 30.000 fyrir Tinna í Sovétríkjunum - sem hann á reyndar fyrir. Erlendu Tinna bækurnar hans eru hins vegar orðnar sjötíu og þær koma töluvert hraðar inn.
Það sem kom SVEPPAGREIFANUM kannski mest á óvart var það að hann á hvorki meira né minna en sautján af þessum tuttugu og þremur Tinna bókum á dönsku. Hann hefur ekki verið að leggja sig neitt fram við að eignast sögurnar eitthvað sérstaklega á dönsku en af einhverjum ástæðum hafa þær bækur safnast mest fyrir hjá honum. Næst á eftir koma þrettán bækur á ensku og tólf á sænsku en af öðrum eru heldur færri. SVEPPAGREIFINN á því núna Tinna bækur á þrettán mismunandi tungumálum og stefnan er að sjálfsögðu sett á að fjölga þeim enn meir með tíð og tíma. Svo er bara spurningin hversu duglegur hann verður við áframhald þessarar undarlegu iðju.