Árið 2023 kom út ný myndasögubók um Viggó viðutan sem hét Le retour de Lagaffe, eftir miklar deilur um höfundarrétt, en þetta var 22. bókin í upprunalegu seríunni og sú fyrsta sem kom út eftir að André Franquin lést fyrir tæplega 30 árum. Höfundaréttardeilurnar snerust einmitt um það að Franquin hafði sjálfur óskað eftir því að Viggó yrði ekki gefinn út í nýjum útgáfum eftir hans dag en Dupuis útgáfan hafði þó fundið einhvers konar glufu sem myndaðist við færslu á útgáfuréttinum og hunsaði algjörlega kröfur dóttur Franquins um óskir föður hennar. Isabelle Franquin fór fram á lögbann bókarinnar en einhverjar sættir náðust þó að lokum og í kjölfarið fékkst síðan óyggjandi leyfi fyrir framhaldsútgáfu Dupuis á myndasögubókum með Viggó viðutan. SVEPPAGREIFINN var reyndar ekki lengi að verða sér úti um heftið fyrir þremur árum og pantaði sér eintak af bókinni á frönsku en þurfti þó ekki að bíða lengi eftir íslensku útgáfunni því Froskur útgáfa gaf út bókina Geggjað og glatað strax árið 2024. Froskurinn er auðvitað algjör snillingur. Um endurkomu Viggós má lesa hér í færslu SVEPPAGREIFANS frá því í mars árið 2023.
Það var kanadíski listamaðurinn Delaf sem tók að sér að teikna Viggó á nýjan leik og margir vilja meina að hann hafi náð stíl Franquins fullkomlega. Svo er þó ekki að mati SVEPPAGREIFANS. Ef grannt er skoðað má sjá að teikningar hans eru nokkuð einfaldari og stífari í sniðum, auk þess sem Franquin notaði önnur teikniáhöld sem gera allar línur í teikningum Delaf grennri og nettari. Myndir Delaf eru samt auðvitað ágætar og vonandi tekst honum með tímanum að ná hinum fljótandi og kraftmikla stíl sem einkenndi feril Franquins. En nú er sem sagt komið að Viggó bók númer tvö sem er ekki eftir André Franquin. Aftur er það Delaf sem teiknar brandarana en að þessu sinni hefur hann fengið handritshöfundinn Lewis Trondheim til liðs við sig. Margir þekkja einmitt Trondheim sem eins þekktasta og afkastamesta handritshöfund evrópska myndasagna í dag en fæstar þeirra eru samt mjög þekktar hér á landi. Hann gerði þó til dæmis handritið að einni Sval og Val sögu sem kom út í hliðarseríunni Sérstök ævintýri Svals ... (Série Le Spirou de…) og SVEPPAGREIFINN hefur stundum minnst á hér. Þetta er sagan Panique en Atlantique og svo teiknaði Trondheim meira að segja sjálfur einn Viggó brandara í heiðursútgáfubókinni La galerie des Gaffes sem Dupuis gaf út í tilefni af 60 ára afmæli Viggós viðutans árið 2017.
Á þá myndasögubók minntist SVEPPAGREIFINN einnig aðeins í færslu hér fyrir löngu en í bókinni eru sextíu mismunandi Viggó brandarar eftir sextíu mismunandi myndasöguhöfunda. Og í þeirri bók má einmitt einnig finna einn slíkan eftir sjálfan Delaf. SVEPPAGREIFINN verður endilega að muna eftir því að skrifa einhvern tímann alvöru færslu um þessa merku bók La galerie des Gaffes. En nýja Viggó bókin verður sem sagt númer 23 í upprunalegu seríunni og ber nafnið Des boum et des paf. Brandaranir úr bókinni eru búnir að vera að birtast í belgíska myndasögutímaritinu SPIROU síðan í byrjun júlí og bókin er væntanleg í búðir í Belgíu og Frakklandi í næstu viku, nánar tiltekið þann 21. október, en ekki hefur enn komið nein staðar fram hvenær hún muni koma út hjá Froski útgáfu á íslensku. Það er reyndar líklegt að íslenskir myndasögulesendur þurfi ekki að bíða lengi eftir þeirri veislu frá Jean hjá Froski en líklega verður það þó ekki fyrr en á næsta ári. Það sem helst mun reyndar einkenna brandarana í þessari bók er tími og andi sjöunda og áttunda áratugar 20. aldarinnar þannig að lesendur þurfa þá væntanlega ekki að vera hræddir um að Viggó og samstarfsfólk hans á skrifstofunni verði dregið fram í nútímann með þeirri tækni og anda sem nú ríkir. Höfundar bókarinnar, Delaf og Trondheim, gerðu með sér samkomulag um að halda sig við þann tíma sem hápunktur Viggós viðutans ríkti.
Það er best að bjóða upp á sýnishorn úr bókinni en SVEPPAGREIFINN hvetur auðvitað alla (konur og kalla) til að flykkjast í bókabúðir og versla þessa myndasögu í bílförmum þegar hún kemur út hér á landi. Þessi brandari úr Des boum et des paf skiptist í tvennt og hér má sjá fyrri hluta hans.




Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Út með sprokið!