19. nóvember 2026

241. 100 ÁRA AFMÆLI ANDRÉ FRANQUIN - 1. HLUTI

Betra er seint en aldrei. Fyrir um það bil fimm árum eyrnamerkti SVEPPAGREIFINN fyrstu vikuna í janúar árið 2024 fyrir færslu til að heiðra minningu belgíska listamannsins André Franquin. Hann er auðvitað í miklum metum hjá stjórnanda Hrakfara og heimskupara, eins og margoft hefur komið fram, og reyndar mörgum öðrum. Tilefnið var að sjálfsögðu að minnast þess að eitt hundrað ár væru liðin frá fæðingu þessa frábæra listamanns en hann fæddist einmitt í byrjun árs 1924, nánar tiltekið þann 3. janúar, og lést þann 5. janúar árið 1997. SVEPPAGREIFINN var fyrir löngu búinn að viða að sér heilmiklu efni sem hann átti eftir að vinna betur úr, þýða og semja eitthvað sniðugt utan um, þar sem stiklað yrði á stóru um ævi og störf listamannsins. Það hafði alltaf verið ætlunin að gera sambærilega færslu um Franquin eins og GREIFINN hafði gert um Hergé nokkrum árum fyrr. Sú grein var rituð í tilefni af því að þá voru liðin þrjátíu og fimm ár frá því Hergé lést og má lesa hér en í byrjun næsta árs verða einmitt liðin þrjátíu ár frá því Franquin lést. Tímaskortur og leti af margvíslegu tagi hafa hins vegar hamlað ritun hinnar eyrnamerktu Franquin-færslu en hér lítur hún loksins dagsins ljós, næstum þremur árum á eftir áætlun. Það er löngu tímabært að gera grófa samantekt af ævi og störfum þessa hæfileikaríka listamanns með áherslu á sögurnar um Sval og Val og Viggó viðutan. Eins og svo oft vex efnið í höndum SVEPPAGREIFANS og því var algjörlega nauðsynlegt að skipta færslunni niður í fjóra hluta svo áhugafólk um Franquin haldist þokkalega vakandi við lesturinn. En hér er fyrsti hlutinn.

André Franquin fæddist í Etterbeek, sem er núna tæplega 50.000 manna bær og tilheyrir höfuðborgarsvæðinu í Brussel í Belgíu, þann 3. janúar árið 1924. Glöggir myndasöguunnendur átta sig líklega á að sjálfur Georges Remi (Hergé) fæddist einnig á þessu sama svæði og reyndar í sama hverfi en það er hreint ótrúleg tilviljun að tveir af áhrifamestu og þekktustu listamönnum belgísk/franska myndasöguheimsins skyldu hafa fæðst á þessum sömu slóðum. Remi hjónin með syni sína tvo bjuggu ekki í nema um 350 metra fjarlægð frá heimili Franquin fjölskyldunnar í byrjun árs 1924, þegar André litli fæddist, en Georges var þá 16 ára gamall og aðeins byrjaður að teikna í þekkt skátablað. Hér má einmitt sjá mynd af æskuheimili meistara Franquin í æsku.

 

Og eins og það væri ekki nóg, heldur fæddist Edgar P. Jacobs (höfundur myndasagnanna um Blake & Mortimer og reyndar seinna samstarfsmaður Hergé hjá Le journal de Tintin og Hergé Studios) einnig í þessu sama hverfi. Þegar Franquin kom í heiminn var Edgar P. Jacobs að vísu orðinn tvítugur og auðvitað ekkert byrjaður að teikna sögurnar um tvíeykið vinsæla en hann bjó þá í aðeins 200 metra fjarlægð frá fjölskyldu Franquins. Þá má ekki gleyma því að franski söngvarinn Serge Gainsbourg bjó um tíma einnig í hverfinu sem barn eða unglingur en hann þekkja líklega flestir fyrir lagið Je t'aime ... moi non plus (á æskuheimili SVEPPAGREIFANS var lagið gjarnan uppnefnt sem "Franska stunulagið"!) sem hann gerði frægt með ensku leikkonunni Jane Birkin. En það er auðvitað útúrdúr og kemur þessari færslu nákvæmlega ósköp lítið við.

Foreldrar André hétu Albert og Henriette Franquin og eignuðust aðeins þetta eina barn sem var reyndar skírt fullu nafni André Jacques Hector Franquin. Móðir André, Henriette, var heimavinnandi húsmóðir en faðir hans, Albert, var hins vegar mjög stífur og alvörugefinn bankastarfsmaður sem þoldi enga glaðværð eða léttleika á heimilinu. Þó þeir Hergé og Franquin þekktust ekkert (enda sautján ár á milli þeirra) áttu þeir báðir það samt greinilega sameiginlegt að finnast æska sín alveg sérstaklega leiðinleg. Bankamaðurinn Albert Franquin var meðlimur í stórum fuglafræðiklúbbi og teiknaði og málaði fugla fyrir fréttabréf klúbbsins í frístundum sínum og André sonur hans sýndi einnig frekar snemma áhuga á að teikna. Þann 4. febrúar árið 1929 teiknaði hann, með hvítri krít á svarta töflu sem honum hafði verið gefin, mynd af hundi sem var að þefa af blómum í blómavasa. Pabba hans þótti myndin svo falleg að hann fór með hana til ljósmyndara og lét hann taka ljósmynd af krítartöflunni svo myndin góða glataðist ekki. Á þessum árum voru jú engar myndavélar eða símar sem almenningur gat leikið sér með að vild líkt og við þekkjum í dag. En þessi ljósmynd Franquins hefur varðveist og má sjá hér merkta nafni listamannsins og með dagssetningu. Þetta teiknaði hann rétt rúmlega fimm ára gamall!

Þó allt heimilishald hefði verið þurrt og leiðinlegt greindi André frá því seinna að hann hefði haft mikla þörf fyrir að hlæja og sprella en það hafi hins vegar oft verið erfiðleikum háð með svo stífu uppeldi. Sumir vilja jafnvel meina að því megi jafnvel kenna um þunglyndið sem hann glímdi við seinna á ævinni. Og það var ekki bara á heimilinu þar sem agi og alvara réðu ríkjum því sömu sögu mátti einnig segja um skólann hjá André og jafnöldrum hans þar sem gert var ráð fyrir að börnin væru þögul og hlýðin. Franquin hélt því sjálfur fram að strax á æskuárum sínum hafi því komið fram sú köllun hjá honum að skemmta fólki á einhvern hátt. Í viðtölum seinna sagði hann að þetta kúgandi uppeldi hefði klárlega kveikt löngun hjá honum um að vera fyndinn og skemmtilegur. Hann þótti strax sem barn og unglingur mjög flínkur sem teiknari og dundaði sér við að teikna fyndnar myndir af vinum sínum að beiðni skólafélaga sinna. Þó hann fengi ekki mikla möguleika á að njóta mikils frelsis eða gleði á æskuheimili sínu notaði hann þau tækifæri sem gáfust til að glugga í það léttmeti sem í boði var sem afþreying á þessum árum. Hann fann flóttaleið í bókum, kvikmyndahúsum og líkt og jafnaldrar hans á þessum tíma gleypti hann einnig í sig þær fáu myndasögubækur sem til boða stóðu. Þar var hann til dæmis duglegur að skoða myndasögur um Mikka mús, Robinson Krúso og svo las hann að sjálfsögðu líka tímaritið Le Petit Vingtième þar sem sjálfur Tinni lék auðvitað lykilhlutverkið og steig sín fyrstu skref hjá.

Sjálfur sagði André frá því seinna að þó hann hefði haft mikla ánægju af að teikna sem barn hefði hann samt aldrei tengt þá ástríðu við myndasögugerð þó hann heillaðist mjög af lestri þess forms. Það var ekki fyrr en löngu seinna sem hann áttaði sig á þeim möguleika að skapa sjálfur slíkar sögur. Allt fram til ársins 1945, þegar hann hóf störf hjá Dupuis, taldi hann sig einungis vera venjulegan teiknara en sá sig aldrei fyrir sér sem myndasöguhöfund. Faðir hans vildi, og gerði drengnum snemma ljóst, að hann ætti að læra búfræði en sjálfur sá hann fyrir sér einhvers konar listnám eða hönnun þar sem móðir hans hvatti hann eindregið til að þróa hina listrænu hæfileika sína. André litli hélt því áfram að teikna í sínu horni og þróa með sér þessa ástríðu sína og þann 4. ágúst árið 1935, þegar hann var ellefu ára gamall, birtist mynd eftir hann á barnasíðum La Nation Belge en það var frekar útbreitt dagblað sem keypt var heima hjá honum. Hann hafði reyndar teiknað fjórar myndir og mamma hans sendi þær allar inn í teiknisamkeppni fyrir börn sem blaðið stóð fyrir. Ein myndanna fjögurra var síðan birt í blaðinu en hún sýnir indjána með tjöld í bakgrunninum og hugsanlega gætir þar einhverra áhrifa frá Tinna bókinni Tintin en Amérique (Tinni í Ameríku) sem Hergé hafði teiknað. Sú myndasaga hafði einmitt komið út í bókarformi örfáum árum áður og Franquin þekkti væntanlega úr Le Petit Vingtième.

Þrátt fyrir hinar stífu og ströngu framtíðaráætlanir föður hans, um að drengurinn ætti að gerast búfræðingur, þá fékk André það í gegn að móðir hans, með dyggri aðstoð eins nágranna þeirra, skráði hann í Institut Saint-Luc skólann, sem þá var virtur listaskóli í Saint-Gilles, árið 1942. Þetta var náttúrulega þvert gegn vilja föður hans, sem sjálfur hafði átt drauma um að læra búfræði í sinni æsku, en unglingurinn fékk sínu framgengt. Í skólanum lærði Franquin margvíslega tækni og náði góðum tökum á grunnvinnslu í myndlist en undi sér þar reyndar ekkert sérstaklega vel. Ástæða þess lá að miklu leyti í þeim mikla aga sem einkenndi hið belgíska, strangtrúaða kaþólska skólakerfi á þessum tíma en æska Franquin fram að því hafði einnig að miklu leyti mótast af þeirri bitru reynslu. Þetta kerfi er í raun að miklu leyti við lýði enn þann dag í dag. Hin trúarlega hlið námsins í þessum listaskóla fór þó sérstaklega í taugarnar á honum, enda fannst honum slík nálgun eiga lítið erindi við kennslu í myndlist. Það hafði aldrei verið ætlun hans að mála freskur, altaristöflur eða að iðka slíka trúartengda list. Þarna var André orðinn 18 ára gamall og Síðari heimsstyrjöldin í fullum gangi, þar sem Belgía hafði verið hernumin af Þjóðverjum, og svo fór að aðeins ári seinna var skólanum lokað vegna tíðra sprengjuárása á Brussel. Hér má sjá mynd af dádýri sem Franquin gerði í Institut Saint-Luc.

Hann flutti því á ný aftur heim til foreldra sinna á meðan hann var að leita sér að vinnu. Vera hans í Institut Saint-Luc leiddi þó ekki aðeins til neikvæðra hluta því í þessum skóla kynntist hann einmitt stúlku sem hét Liliane Servais og var einnig nemandi í skólanum. Hún var fjórum árum yngri en það tókst með þeim góður vinskapur og með tíð og tíma urðu þau kærustupar. En í september 1944 fékk Franquin síðan hlutastarf hjá Compagnie Belge d'Actualités (C.B.A.) teiknimyndastúdíóinu undir stjórn Paul Nagant sem nýlega hafði þá flutt frá Liège til Brussel. Hjá C.B.A. kynntist og starfaði Franquin með mörgum listamönnum sem síðar urðu margir hverjir heimsfrægir og tengdust ævilöngum vinaböndum. Í þeim hópi voru meðal annars þeir Maurice de Bevere og Pierre Culliford sem allir þekkja auðvitað í dag sem listamennina Morris og Peyo. Í þessu litla stúdíói starfaði Franquin um nokkurt skeið og undi sér vel en fljótlega eftir að Belgía var frelsuð undan Nasistum, af Bandamönnum árið 1945, var starfsemi þess lögð niður. 

En síðan kynnti Morris honum fyrir Joseph Gillain sem var betur þekktur undir listamannsnafninu Jijé og hann tók þá báða undir sinn verndarvæng. Í framhaldi af þessu vann André nokkur verkefni fyrir Dupuis útgáfuna í blaðinu Le Moustique (Moskítóflugunni) auk þess sem hann teiknaði fyrir kaþólska skátatímaritið Plein-Jeu sem gefið var út einu sinni í mánuði. Á stríðsárunum hafði Jijé verið allt í öllu hjá myndasögutímaritinu Le Journal de Spirou, sem einnig var gefið út hjá Dupuis, og hann hafði í raun haldið því á floti meira eða minna einn síns liðs. Eftir útgáfubann Nasista á blaðinu stóð nú til að endurræsa hina vikulegu útgáfu þess eftir stríð. Ætlunin var að ráða nýja kynslóð listamanna til að leiða og halda uppi heiðri tímaritsins á ný og Jijé fékk þá Franquin og Morris því til liðs við sig til aðstoðar við það. Franquin var þá orðinn tuttugu og eins árs og Morris árinu eldri en Peyo, sem var aðeins sautján ára gamall, þótti hins vegar of ungur og þurfti að bíða í sjö ár eftir að geta sameinast vinum sínum aftur hjá SPIROU.

Það leið ekki á löngu áður en Charles Dupus fól Franquin að taka að sér eina af helstu teiknimyndasögum blaðsins. Þetta var serían um þá Spirou og Fantasio (Sval og Val) sem í raun var lykilsería tímaritsins enda Svalur sjálfur andlit þess. Svalur hafði fylgt tímaritinu allt frá fyrsta tölublaði þess árið 1938 en franski listamaðurinn Rob-Vel hafði fylgt honum úr hlaði fyrstu árin áður en Jijé tók Sval að sér á stríðsárunum og það var hann sem bætti síðan blaðamanninum Val (Fantasio) við seríuna. Það hafði í rauninni gerst aðeins fáeinum vikum áður. Jijé var eiginlega orðinn svolítið leiður á þeirri seríu og nú var því komið að André Franquin að teikna þá Sval og Val. Fyrsta verkefni hans var stök 11 blaðsíðna saga, sem kallaðist Spirou et le Tank (Skriðdrekinn) en hún birtist í sérstöku 128 síðna aukablaði sem nefndist einfaldlega Almanak 1947 og var hálfgerð prófraun áður en til alvörunnar kæmi. Þetta aukablað var einskonar vettvangur Dupuis útgáfunnar til að kynna hina nýju liðsmenn SPIROU til sögunnar og fyrsta Lukku Láka saga Morris, Arisona (Arizona 1880), birtist til að mynda einnig í þessu riti.

Franquin stóðst þetta próf fullkomlega og samþykkti því að taka endanlega við Sval og Val seríunni í SPIROU tímaritinu þann 20. júní árið 1946. Þá tók hann við í miðri sögunni Les Maisons Préfabriquees (Einingahúsið) sem Jijé hafði byrjað að teikna nokkrum vikum fyrr. Skilin á milli hluta Jijé og Franquin má sjá á þessum tveimur myndaröðum hér fyrir neðan. Þarna  sést augljóslega hversu snjall Franquin var því hinir ungu lesendur SPIROU tímaritsins hafa klárlega ekkert tekið eftir því að nýr teiknari hafði tekið við keflinu. Jijé teiknaði efri myndaröðina, sem hafði birst í blaðinu þann 13. júní, en Franquin þá neðri sem birtist viku seinna eða þann 20. júní.

Sval og Val myndasögurnar birtust iðulega á forsíðu SPIROU blaðsins og þessari frumraun Franquns, Einingahúsinu, lauk þann 3. október árið 1946 þegar síðasta blaðsíða sögunnar leit dagsins ljós. Strax í næstu blöðum birtust næstu verkefni listamannsins unga um þá Sval og Val en það voru þó ekki eiginlegar sögur, heldur var þar um að ræða einhvers konar uppfyllingaefni í formi stuttra myndasögubrandara. Franquin hafði auðvitað runnið svolítið blint í sjóinn þegar hann tók við Einingahúsinu af Jijé og handrit þess hafði hann þurft að hrista fram úr erminni jafnóðum og hann kláraði að teikna söguna. Hann var því alveg reynslulaus og eðlilega var hann ekki með neinar hugmyndir að handritum að næstu sögum. Jijé hjálpaði honum eftir bestu getu og hvatti hann áfram en sjálfur hafði hann bruðið sér til Ítalíu, fyrir innblástur að seríu sem hann hafði verið að vinna að, og var því ekki alltaf til staðar fyrir Franquin. Á meðan André vann að hugmyndum um næstu alvöru Sval og Val sögu teiknaði hann því þrjár einskonar örsögur sem birtust í SPIROU tímaritinu næstu vikurnar. Þessar stuttu sögur hétu; Le pharmacien débrouillard (Lyfjafræðingurinn úrræðagóði) sem var aðeins ein blaðsíða að lengd, La vielle dame (Gamla konan) sem var fjórar síður og La visite de Saint Nicolas (Heilagur Nikulás kemur í heimsókn) sem náði fimm blaðsíðum. Síðastnefnda sagan birtist reglulega í blaðinu síðustu vikurnar fyrir jólin 1946 og var því auðvitað aðal jólasaga SPIROU það árið. Þessar stöku örsögur eru yfirleitt ekki taldar með sem hluti af Sval og Val seríunni enda aðeins litið á þær sem uppfyllingaefni. Allar þessar frumraunir Franquins með Sval og Val, sem minnst hefur verið á hér, koma fyrir í bókinni Skriðdrekinn og Einingahúsið sem Froskur útgáfa sendi frá sér árið 2017.

Þegar Franquin hóf að teikna Sval var hann reynslulítill og hlédrægur og vissi ekkert út í hvað hann var kominn. Hann hafði í byrjun miklar efasemdir um að hann réði við þetta nýja hlutverk og var ekki viss um hvort hann væri á réttri hillu. Þeir félagarnir Franquin og Morris, auk listamannsins Will sem einnig hafði bæst í hópinn, höfðust í fyrstu við í pínulítilli stúdíóíbúð, sem Dupuis hafði útvegað þeim sem vinnustofu í miðbæ Brussel, og það umhverfi átti ekki vel við Franquin. André viðurkenndi líka seinna að hann hefði fyrirfram lítið sem ekkert skoðað sögurnar um Sval og Val og hann hefði engan veginn verið nægilega forvitinn til að reyna að kynnast þeim. Áður hafði hann aðeins teiknað stakar myndir en aldrei unnið við gerð myndasagna þar sem hann þyrfti sjálfur að semja sögu samhliða teikningunum auk þess að raða þeim upp í samfellda atburðarás. Til að byrja með reyndi Franquin því að þreifa sig áfram með því að fylgja eftir stíl Jijé, persónusköpun hans og að semja sögurnar jafnóðum á meðan hann var að finna sínar eigin línur. Þessar tilraunir tóku svolítinn tíma á meðan hann var að átta sig á þessu nýja og framandi formi auk allrar vinnunnar sem hann þurfti að leggja á sig en Franquin gerði sitt besta. Smán saman jókst sjálfstraustið og með hverju tölublaðinu bættist í reynslubankann þannig að hann fór að verða djarfari við að hætta að eltast við fyrirrennara sinn og hóf að skapa sinn eigin stíl. Það má glögglega sjá mikinn þroskamun á fyrstu sögum Franquin. Efri myndaröðin hér fyrir neðan kemur úr SPIROU tímaritinu frá júlí 1946 en sú neðri er frá því í febrúar 1948.

Jijé, sem þarna var orðinn rúmlega þrítugur, tók þá félagana alveg að sér. Hann útbjó fyrir þá nýja og rúmgóða vinnustofu í hinu stóru húsi sínu í Waterloo þar sem hann þjálfaði þá upp og leiðbeindi inni á heimilinu í mun rólegra og afslappaðra umhverfi heldur en í hinni þröngu stúdíóíbúð sem þeir höfðu haft til umráða í Brussel. Í rauninni bjuggu þeir Morris þar hjá hinni stóru fjölskyldu Jijé í Waterloo, ásamt listamanninum Will, í nokkra mánuði. Þarna voru unnir langir vinnudagar við að byggja upp stíl sem hæfði hverjum og einum undir dyggri stjórn Jijé. Þeir félagarnir eyddu oft miklum tíma í að gagnrýna verk sín (og hvers annars) á uppbyggilegan hátt þar sem Morris var mest krefjandi en Franquin var þó yfirburðarmaður með sína náttúrulega hæfileika. Þessi hópur byggði upp náið samstarf, hjá SPIROU tímaritinu, sem smám saman þróaði með sér stíl sem þykir í dag einna mest einkennandi fyrir fransk/belgíska myndasöguheiminn. Þeir voru gjarnan nefndir Fjórmenningagengið (La Bande des quatre) sem seinna voru kenndir við Marcinelle-stefnuna eða Marcinelle-skólann (École de Marcinelle). Marcinelle var úthverfi af iðnaðarborginni Charleroi, suður af Brussel, þar sem Dupuis útgáfan var staðsett á þessum tíma.

En næsta alvöru Sval og Val saga Franquin hófst í SPIROU blaðinu strax, í kjölfar jólasögunnar Heilagur Nikulás kemur í heimsókn, þann 19. desember 1946. Þar var um að ræða söguna L'Héritage (Arfurinn) sem birtist á þrjátíu og níu blaðsíðum tímaritsins og lauk þann 11. september 1947. Þar á eftir fylgdu síðan fjórar Sval og Val einnar blaðsíðu örsögur, til uppfyllingar á næstu fjórum vikum, sem nefndust saman Spirou á la plage (Svalur á ströndinni). Þarna var sjálfstraust Franquins klárlega að eflast og þann 16. október sama ár byrjaði síðan framhaldssagan Radar le robot (Vitskerti prófessorinn) í tímaritinu og birtist næstu tuttugu og sex vikurnar. Þessar tvær sögur, Arfurinn og Vitskerti prófessorinn, eru ennþá undir nokkuð greinilegum áhrifum frá Jijé, bæði teiknistíllinn og framsetningin, en það má samt klárlega sjá hvert stefnir enda var Jijé afar duglegur að hvetja Franquin og félaga að móta sínn eigin stíl. Því var töluvert öðruvísi farið hjá Hergé Studios nokkrum árum seinna, þar sem Hergé var með fjölda aðstoðarfólks á sínum snærum og krafðist þess jafnvel að hans listamenn fylgdu hinum íhaldsama og dauðhreinsaða stíl sínum til streitu. Hjá Jijé fékk Fjórmenningagengið hans hins vegar afar frjálsar hendur til að þróa sig sjálfir áfram í sinni list. Í bæði Arfinum og Vitskerta prófessornum er Franquin augljóslega líka farinn að sleppa af sér beislinu með hugmyndaflug sitt og í söguþræðinum má jafnvel glitta í áhrif sem minna á uppfinningar Viggós viðutans.

Á þessum mótunarárum byrjaði Franquin einmitt að þroska og þróa með sér grunninn að þeim kraftmikla teiknistíl sem seinna hlaut heitið ligne atome og var gjarnan kenndur við þennan hóp - Fjórmenningagengið. Stíll hans þróaðist í raun frá mörgum listamönnum úr ýmsum áttum en margt af því var einnig undir beinum áhrifum úr amerískum myndasögublöðum sem dreift var um Belgíu og þá helst efni frá Walt Disney eða úr MAD blöðunum. Franquin nýtti sér jafnvel áhrif frá japanska listamanninum Hokusai og þá var hann einnig mjög hrifinn af verkum Hergé en bein áhrif frá honum voru þó takmörkuð. Frelsi hópsins var mikið og hugtakið ligne atome var freistandi að skilgreina sem einskonar andstöðu við þann stíl (ligne claire) sem Hergé stóð fyrir. Segja má að á meðan ligne claire stílfærði raunveruleikann væri hlutverk ligne atome að ýkja hann. Áhrifin af vinnu Fjórmenningagengisins gætti þó ekki alveg strax en með tímanum þróaðist hún út í mjög hraðan stíl með hinum ýktu einkennum sínum. Snöggar og öfgafullar hreyfingar, fyndin og framandi dýr, stór nef og hendur, mikil óreiða (á skrifstofunni hans Viggós sem dæmi) og auðvitað talblöðrur fullar af stórkostlega myndrænum blótsyrðum. Allt var þetta alveg nýtt af nálinni og hluti af þessari þróun. Þarna var því um að ræða tvo ólíka en frábæra teiknistíla en báðir báru þeir Franquin og Hergé ómælda virðingu hvor fyrir öðrum. Það er þó ekki sanngjarnt að bera saman teiknistíla þessa tveggja snillinga enda voru þeir af sitthvorri kynslóðinni en auk þess afar ólíkir listamenn. Fyrir stríð má segja að evrópskar teiknimyndasögur hafi verið einhvers konar stæling eða eftiröpum af þeim sem komu frá Ameríku en það breyttist með Fjórmenningagenginu þegar alvöru belgísk/franskur myndasögustíll varð til.

Þann 15. apríl árið 1948 hóf síðan sagan Les plans du robots (Vélmennauppdrátturinn) göngu sína í SPIROU tímaritinu en sú saga var sjálfstætt framhald Vitskerta prófssorsins. Franquin og félagar hans í Fjórmenningagenginu skiluðu af sér hinum vikulegu skylduverkefnum sínum til Dupuis útáfunnar og SPIROU tímaritið hélt áfram að vaxa og dafna eftir hin mögru stríðsár. Þetta voru þó töluverðir óvissutímar. Bandamenn og Rússar höfðu skipt með sér Evrópu eftir Síðari heimsstyrjöldina og með tilvist Kalda stríðsins skapaðist nokkur órói og spenna um framtíðina á meðal almennings á meginlandinu. Jijé óttaðist að þessi óstöðuleiki allur myndi leiða til nýs stríðs í Evrópu eða jafnvel til Þriðju heimsstyrjaldarinnar og tók þá ákvörðun að flytja með hina stóru fjölskyldu sína til Bandaríkjanna. Þeir Franquin og Morris ákváðu í kjölfarið að fylgja með og að reyna um leið að freista gæfunnar vestan hafs í Mekka myndasögunnar. Will ákvað hins vegar að verða eftir í Belgíu og þar með tvístraðist Fjórmenningagengið í bili allavega. Þann 3. ágúst 1948 lagði hópurinn því upp frá Rotterdam og hélt af stað til New York en sú sigling tók viku. Ekki var gerð nein nákvæm ferðatilhögun eða plan fyrir þetta ævintýri en hugmyndin var þó að þeir myndu semja og teikna myndasögurnar sínar fyrir SPIROU og senda vikulega heim til Belgíu en um leið að reyna að komast að hjá Disney fyrirtækinu sem þeir allir voru svo hrifnir af.

Ný saga, Spirou sur le ring (Svalur í hringnum), tók síðan við í beinu framhaldi af Vélmennauppdrættinum, þann 26. ágúst sama ár, en þá voru þeir félagarnir tiltölulega nýkomnir til Bandaríkjanna. Í Sval í hringnum teiknaði Franquin einmitt Morris vin sinn sem eina af aukapersónum sögunnar. Ekki fór þó allt eins og á var kosið í Ameríku. Eftir að hafa keyrt þvert yfir Bandaríkin til einskis komust þeir að því að Disney fyrirtækið stæði á þessum tíma höllum fæti og væri ekki á þeim buxunum að ráða inn nýtt fólk - og alls ekki útlendinga. Dvalarleyfi þeirra í Bandaríkjunum rann síðan fljótlega út og á meðan leyst var úr þeim vanda brá hópurinn sér til Mexíkó þar sem ekki voru jafn strangar reglur varðandi innflytjendur. Það var einmitt í Mexíkóborg sem Franquin, sem þá var orðinn tuttugu og fjögurra ára gamall, kláraði söguna um Sval í hringnum og þann 24. febrúar árið 1949 hófst því ný saga eftir hann í SPIROU tímaritinu. Hún nefndist Spirou fait du cheval (Svalur knapi) og var alfarið teiknuð inni á sameiginlegu hótelherbergi því sem þeir Morris höfðu yfir að ráða í borginni. Hugmyndina að þeirri sögu mátti að einhverju leyti rekja til nábýlis þeirra félaganna því það var erfitt fyrir Franquin að leiða hjá sér sögurnar um Lukku Láka sem Morris var að teikna. Í þeirri seríu koma auðvitað fyrir ógrynni hesta en André langaði einnig til að spreyta sig á þeim og koma fyrir í sögu um Sval og Val. Franquin sagði seinna að hestar væru líklega það sem honum þætti erfiðast að teikna.

Þeir félagarnir skrimtu einhvern veginn næstu mánuðina en lífið var þó aldrei neinn dans á rósum. Listamennirnir sendu sínar vikulegu myndasögur til birtingar og á móti sendi Dupuis þeim ávísanir eða peninga sem þeir náðu einhvern veginn að lifa á. Oft voru þeir á síðustu stundu með efnið sem gerði það að verkum að senda þurfti myndasögurnar með flugpósti en það var auðvitað ennþá dýrara. Morris lét meira að segja hafa það eftir sér í viðtali löngu seinna að baslið hafi stundum verið svo mikið að hann hefði jafnvel þurft að teikna Lukku Láka sögurnar sínar báðum megin á pappírsarkirnar. Það má reikna með að Franquin hafi einnig haft svipaða sögu að segja. Þessar nánu og krefjandi aðstæður efldu og þroskuðu þá félaga í vinnu sinni og þá ekki síst í að þróa og skerpa á sínum persónulegu stílum þar sem þeir tóku gríðarmiklum framförum. Sögurnar sjálfar hjá Franquin breyttust einnig úr hröðum atburðarásum, þar sem lítið fór fyrir vitrænum skoðanaskiptum aðalpersónanna og myndirnar töluðu frekar sínu máli, í að meira var staldrað við með hæfilega þroskuðum samtölum. Handritagerðin fór að líkjast því betur sem við þekkjum í dag og varð miklu markvissari að allri gerð. Þegar þarna er komið við sögu má greinilega sjá hvernig Franquin hefur lært að byggja upp handritið í stað þess að semja sögurnar nánast jafnóðum og þær voru teiknaðar. En svo fór að Franquin varð þreyttur á þessu eilífa basli og óvissu um framtíðarvinnu í Bandaríkjunum auk þess sem hann saknaði hennar Liliane sinnar sem hann hafði kynnst og verið í fjarbúð frá í næstum heilt ár. Leiðir þeirra fóstbræðra Franquin og Morris skildu því um mitt sumar 1949 þegar André hélt aftur heim til Belgíu eftir nánast fjögurra ára stöðuga samveru félaganna tveggja. Um þetta sama leyti hóf Morris að enda sögur sínar með hinum fræga myndaramma þar sem Lukku Láki syngur um "hina einmana kúrekablók" en með þessu var Morris í raun að syrgja aðskilnað sinn við Franquin. Til gamans má geta þess að árið 2012 sendu þeir Olivier Schwartz og Yann frá sér teiknimyndasöguna Gringos locos þar sem Ameríkuferð Franquins, Morris og fjölskyldu Jijé var gerð góð skil með reyndar töluverðu skáldaleyfi. Samt sem áður áhugaverð og skemmtileg bók.

Á hótelherberginu áðurnefnda í Mexíkóborg hafði Franquin byrjað að teikna söguna Spirou chez les Pygmées (Svalur á Litlupattaeyju) og flutti fyrri hluta hennar með sér í farangri sínum heim til Evrópu í júní. Svalur knapi hafði lokið göngu sinni í SPIROU tímaritinu þann 14. apríl en næsta saga, Svalur á Litlupattaeyju, hóf þó ekki göngu sína í blaðinu fyrr en þann 28. júlí 1949 eða um mánuði eftir að Franquin kom heim frá Bandaríkjunum og Mexíkó. Í millitíðinni höfðu tvær stuttar Sval og Val sögur eftir Jijé birst í blaðinu til uppfyllingar. André hafði tekið sér svolítið frí frá vinnu sinni vegna andleysis og einbeitingaskorts sem líklega mátti rekja til heimþrár. Afganginn af Sval á Litlupattaeyju teiknaði Franquin síðan í rólegheitunum eftir að heim var komið. Áhrifa af Ameríkuför Franquin gætir klárlega í næstu sögu sem nefnist Les chapeaux noirs (Svörtu hattarnir) og hóf göngu sína í SPIROU blaðinu þann 9. febrúar árið 1950. Sagan gerist einmitt í Bandaríkjunum þar sem söguhetjurnar Svalur og Valur heimsækja hið villta vestur og aftur fékk Franquin því tækifæri til að spreyta sig á því að teikna hesta. Þess má geta að þessi saga var elsta Sval og Val sagan sem bókaútáfan Iðunn sendi frá sér áður en Froskur hóf aftur að gefa út Sval og Val á íslensku. Sú bók nefndist reyndar Í klandri hjá kúrekum og kom út árið 1986.

Ennþá voru sögur Franquins í styttri kantinum en þó í stöðugri þróun og með næstu sögu, Mystère à la frontière (Laumuspil við landamærin) sem hóf göngu sína í blaðinu þann 22. júní árið 1950, urðu ákveðin myndræn tímamót. Fyrstu fjórar vikurnar (sem voru þá einnig fyrstu fjórar blaðsíðurnar) af sögunni birtust lesendum reyndar á sama hátt og þær höfðu gert frá upphafi útgáfu tímaritsins árið 1938 en þann 20. júlí breyttist ýmislegt. Á þessum tímapunkti hafði Charles Dupuis tekið þá ákvörðun að fækka myndaröðunum, í sögunum um Sval og Val, um eina röð á hverri blaðsíðu sem gerði það að verkum að hver myndarammi varð stærri. Hér fyrir neðan má sjá muninn á milli tölublaða 640 og 641 sem komu út þennan seinni hluta í júlí 1950. 

Þessi tilhögun gaf Franquin ekki aðeins tækifæri til að koma meira myndmáli fyrir í hverjum ramma heldur einnig að koma talblöðrum eðlilega fyrir án þess að þær væru of plássfrekar og yfirþyrmandi. Allur bakgrunnur naut sín nú miklu betur og lesendur þurftu ekki lengur að hafa það á tilfinninunni að alltof miklu efni væri troðið inn í hvern ramma. Sval og Val sögurnar höfðu iðulega birst á forsíðu tímaritsins og auðvitað fækkaði myndarömmunum nokkuð við þessa breytingu en í staðinn fékk Svalur og Valur nú tvær blaðsíður í stað einnar til umráða í blaðinu. Þrjár myndaraðir á forsíðunni birtust nú í stað fjögurra áður en á blaðsíðu 2 fékk Franquin nú einnig fjórar raðir. Allt yfirbragð myndasagnanna um Sval og Val breyttust á augabragði með þessari ákvörðun. Þetta útspil Charles Dupuis var klárlega tekið með tilliti til hinna gríðarlega auknu vinsælda SPIROU blaðsins og þá sérstaklega með sögurnar um Sval og Val í huga. Með breytingunum var kominn grundvöllur til að aðlaga myndasögurnar betur að útgáfu í bókaformi. 

Og þess var reyndar ekki langt að bíða. Næsta saga nefndist Il y a un sorcier à Champignac (Sveppagaldrar í Sveppaborg) og hóf göngu sína þann 19. október 1950 í SPIROU en það ár kom líka hin eiginlega fyrsta Sval og Val myndasögubók út hjá Dupuis í Belgíu. Hún nefndist á frönsku Quatre aventures de Spirou et Fantasio, og var samansafn af sögunum; Vélmennauppdrættinum, Sval í hringnum, Sval knapa og Sval á Litlupattaeyju sem höfðu birst í tímaritinu árin á undan. Sú bók hefur aldrei komið út á íslensku í nákvæmlega því bókaformi en titill hennar myndi verða þýddur hér sem Fjögur ævintýri um Sval og Val. Allar þessar sögur hafa þó verið gefnar út hjá Froski útgáfu í annars konar bókaútfærslum. En Sveppagaldrar í Sveppaborg var líka tímamótaverk hjá Franquin. Þarna teiknaði hann í fyrsta sinn Sval og Val sögu í fullri lengd og hún var því beinlínis samin með bókaútgáfu í huga. Henni lauk í SPIROU tímaritinu þann 31. maí 1951 og þann 17. nóvember kom hún einnig út í bókaformi hjá Dupuis. Margir vilja þess vegna meina að Sveppagaldrar í Sveppaborg marki í raun upphafið að seríunni með Sval og Val, ekki aðeins vegna hinnar fullu lengdar heldur einnig vegna þess að í sögunni varð til ákveðið sögusvið sem átti eftir að fylgja seríunni til frambúðar. Snemma sumars 1950 hafði Jijé snúið aftur frá Bandaríkjunum og það var bróðir hans, Henri Gillian, sem átti hugmyndina að því að koma sveppatengingunni að sögunum og hann er reyndar skrifaður fyrir handritinu að þessari sögu undir dulnefninu Jean Darc. Sveppagreifinn sjálfur varð til og sömu sögu má segja um Sveppaborg en hvoru tveggja festi rætur sínar kyrfilega í bókaflokknum til frambúðar. Franquin fann fyrirmyndina að þessu friðsæla sveitaþorpi í norður hluta Frakklands sem nefndist Laon og kastali Sveppareifans átti rætur sínar að rekja til fallegs sveitaseturs í Natoye í héraðinu Namur í Belgíu. Á þessum slóðum hafði Liliane oft verið gestkomandi með foreldrum sínum sem barn og unglingur og það var hún sem benti André á setrið sem hún taldi tilvalda fyrirmynd að kastala Sveppagreifans. Franquin var fljótur að fallast á hugmyndina.

Í Sveppagaldrar í Sveppaborg komu einnig fram sögupersónur sem seinna áttu eftir að birtast reglulega í bókaflokknum. Þar skal nefna borgarstjórann í Sveppaborg og Kristján Dýrfjörð sem báðir eru íbúar þorpsins og urðu að fastagestum í sögunum. En það var ekki bara sagan sjálf sem markaði tímamót því Franquin sjálfur stóð einnig á tímamótum um þessar mundir. Haustið 1950 höfðu þau Liliane gengið í hjónaband, eftir að hafa þekkst frá því þau voru unglingar, en auk þess átti Franquin drjúgan þátt í því hve SPIROU tímaritið hafði eflst og stækkað frá því það hóf útgáfu að nýju eftir stríð. Hlutur hans við að endurskapa Sval hafði þar mikið að segja og á aðeins fimm árum var hann orðinn helsti máttarstólpi tímaritsins aðeins 27 ára gamall. Vinsældir blaðsins höfðu aukist gríðarlega og blómatímabil þess var um það bil að hefjast, þar sem það atti baráttu um belgíska myndasögumarkaðinn við Le journal de Tintin (Tinna-tímaritið) sem hóf göngu sína í september 1946. Fjórmenningagengið allt átti reyndar lykilþátt í þeirri velgengni.

Og næsta saga, sem hét Spirou et les héritiers (Baráttan um arfinn) og hófst í SPIROU blaðinu þann 26. júlí árið 1951, var ekki síður tímamótaverk vegna þess að í þeirri sögu mætti Franquin með sjálfan Gorminn til leiks. Þetta gula og loðna langskotta dýr, sem hrærðist jafnt á láði sem legi, varð strax eitt ástsælasta dýr myndasagnanna í Evrópu en þeim er þó af nægum að taka. Gormur tikkaði í öll ligne atome boxin og hið hrekkjótta, hraða og uppátækjasama dýr sló í gegn. Lesendur blaðsins tóku strax miklu ástfóstri við hann og Franquin sjálfur var svo ánægður með þetta sköpunarverk sitt að hann ákvað seinna að enginn annar fengi að teikna dýrið. Hugmyndina að sköpun Gormsins fékk Franquin eftir að hafa gluggað í bók eftir Bernard Heuvelmans sem fjallaði um ýmis goðsagnakennd dýr alls staðar að úr heiminum. Höfundurinn trúði því að einhver þessara dýra væru til í raun og veru og út frá þeim punkti ákvað Franquin að skapa sína eigin goðsagnakenndu dýrategund. Í Baráttunni um arfinn bættist einnig við persóna sem seinna átti nokkrum sinnum eftir að láta að sér kveða í bókaflokknum. Þar er á ferðinni frændi Vals sem kallaður er Sammi og varð seinna þekktur meðal annars sem einræðisherrann Zantafío. Handritið að þessari sögu skrifaði André Franquin sjálfur og hún kom út í bókarformi þann 17. október 1953. Sagan kom út á íslensku hjá Iðunni árið 1980 og aftur hjá Froski 2025.

Annar hluti SVEPPAGREIFANS í tilefni af 100 ára afmæli André Franquins birtist hér á Hrakförum og heimskupörum á næstu dögum.

1 ummæli:

  1. Takk fyrir þessa frábæru færslu, hlakka til þeirrar næstu.

    SvaraEyða

Út með sprokið!