Færsla dagsins fjallar um Steina sterka. SVEPPAGREIFINN hefur svo sem áður birt sitthvað um þennan ógnarsterka pilt og um það má meðal annars lesa bæði hér og einnig hér en það er samt alveg tilvalið að rifja fyrst aðeins upp það helsta sem vitað er um kappann. En Steini sterki er semsagt um það bil tíu ára gamall drengur sem býr í bænum í Stóru Sólvík og er alveg ótrúlega sterkur, getur stokkið rosalega hátt og hlaupið hraðar en bíll. Það er bara þegar hann kvefast sem hann missir allan mátt en það gerist reyndar gjarnan á allra óheppilegustu andartökunum. Það var listamaðurinn Pierre Culliford, betur þekktur undir nafninu Peyo, sem átti heiðurinn að þessu vinsælu teiknimyndasögum en þær komu meðal annars út á íslensku í sex bókum frá bókaútgáfunni Setbergi. Peyo var samt líklega þekktastur fyrir að hafa skapað Strumpana en einnig teiknaði hann myndasögurnar um Hinrik og Hagbarð sem eru í uppáhaldi hjá mörgum. Fyrsta sagan um Steina sterka birtist í belgíska myndasögutímaritinu SPIROU árið 1960 og alls hafa verið gefnar út fjórtán bækur í seríunni. Þá verður auðvitað einnig að geta þess að árið 2014 var gerð bíómynd um Steina þar sem franski leikarinn Jean Reno lék eitt af hlutverkunum. Færsla dagsins hjá SVEPPAGREIFANUM að þessu sinni fjallar hins vegar um eilítið öðruvísi nálgun á ævi og störf Steina sterka. Hún fjallar nefnilega um tólf blaðsíðna auglýsingu, í myndasöguformi, þar sem Steini sterki auglýsir franska kakóduftsvörumerkið Benco.
Það var reyndar alls ekki óalgengt að þekktustu myndasöguhetjurnar frá fransk/belgíska málsvæðinu væru nýttar í auglýsingarskyni hér á árum áður. Mikill hluti barna og unglinga frá þessum löndum lásu stóru myndasögublöðin SPIROU og Le Journal de Tintin þannig að þeir sem unnu að markaðsmálum sáu tiltölulega snemma aukin sóknarfæri til að ná til þessa stóra markhóps, í gegnum vinsælustu söguhetjurnar, fyrir vörur sínar. Listamennirnir sjálfir sáu sér einnig leik á borði og nýttu sér kjörin tækifæri til að vekja athygli á sínum seríum og ná sér um leið einnig í svolítinn aukapening fyrir vikið. Tinni var líklega vinsælastur fyrir þessa iðju þar sem hann kom að fjölda auglýsingaherferða á sínum tíma en í fljótu bragði má einnig nefna auglýsingar sem Ástríkur og Viggó viðutan tóku þátt í og SVEPPAGREIFINN hefur meira að segja skrifað færslu um auglýsingatengda sögu með þeim Sval og Val sem lesa má hér.
En forsögu auglýsingarherferðarinnar með Steina sterka má rekja til ársins 1967 þegar Benco vörumerkið var stofnað. Á þessum árum var mikil vakning um mikilvægi morgunverðar (þó ekki bæri öllum saman um hollustu þeirra vara sem í boði voru) sem framleiðandi Benco kakóduftsins tók fullan þátt í. Undir lok áttunda áratugs síðustu aldar var Benco orðið gríðarlega vinsælt, sérstaklega í Frakklandi og Belgíu og komið í bullandi samkeppni við til dæmis Nesquik fyrirtækið á evrópska morgunverðarmarkaðnum. Íslensk ungmenni þekktu örugglega flest vel kókómaltið í gulu Nesquik plastdöllunum með brúna héranum en fáir hafa líklega heyrt minnst á sambærilega vöru frá Benco. En markaðsfræðingar Benco tóku þá ákvörðun að fá teiknaða myndasögupersónu til að vera frontur fyrirtækisins og honum til aðstoðar átti að vera lifandi kakóduftsdolla sem klæddist appelsínugulri peysu og kallaðist einfaldlega Benco. Þannig kom Steini sterki til sögunnar enda hafði hann allt til brunns að bera fyrir ímynd Benco kókómaltins. Hvaða persóna hentaði betur til að auglýsa orkugefandi súkkulaðidrykk en litli kurteisi, fyrirmyndardrengurinn sem bjó yfir ofurkröftunum? Kakóið var markaðssett sem orkugjafi fyrir börn en vörumerkið fullyrti að sá sem fengi sér einn bolla af súkkulaðidrykknum að morgni yrði fullur af orku og albúinn fyrir eril dagsins. Í stað þess að nota hefðbundnar manneskjur, sem borðuðu bara matinn sinn, vildi fyrirtækið myndasögufígúru sem persónugerði ofurkraftana. Steini sterki, sem getur lyft bílum og hlaupið á ógnarhraða, passaði fullkomlega við þá ímynd. Hugmyndin var sú að Benco kókómaltið virkaði nánast á sama hátt og töfradrykkurinn hans Sjóðríks væri fyrir Ástrík og vini hans í Gaulverjabæ. Það má geta þess í framhjáhlaupi að Mjólkursamsalan fór svipaða leið með markaðssetningu fyrir Kókómjólkina á sínum tíma, með köttinn Klóa í broddi fylkingar, þar sem slagorðið, "Þú færð kraft úr Kókómjólk" var í fyrirúmi.
Það var því síðla árs 1977 sem Benco fyrirtækið leitaði til teiknistúdíósins hjá Peyo um samstarf varðandi Steina sterka en í stað þess að gera bara einfalda auglýsingamynd ákváðu Peyo og aðstoðarmaður hans, Albert Blesteau, að fara þá leið að teikna í staðinn heila tólf blaðsíðna sjálfstæða myndasögu sem héti einfaldlega Benoît et Benco eða Steini og Benco. Steini sterki heitir auðvitað Benoît Brisefer á frönsku. Peyo var á þessum tíma reyndar undir miklu álagi vegna vinsælda Strumpanna og það fór því svo að þetta sama ár ákvað hann að hætta að teikna hinar hefðbundnu Steina sterka sögur sjálfur. Strax eftir birtingu Benco auglýsingarinnar í SPIROU tímartinu hófst áttunda sagan hans í blaðinu og eftir birtingu hennar ákvað hann nú frekar að einbeita sér að hinum gríðarvinsælu Strumpum sem voru að tröllríða öllu. Fimmtán árum seinna voru sögurnar um Steina sterka síðan endurvaktar þegar sonur hans, Thierry Culliford, tók við bókaflokknum og teiknaði nokkrar sögur í viðbót. Kókómaltsauglýsingin fyrir Benco var því eitt af því allra síðasta sem Peyo sjálfur kom nálægt með Steina sterka.
Þessi auglýsingarsaga hóf síðan göngu sína í SPIROU tímaritinu þann 23. mars árið 1978 og skóp strax nokkra eftirvæntingu lesenda enda nokkuð um liðið síðan Steini sterki hafði síðast sést á síðum blaðsins. Benoît et Benco birtist sem ein blaðsíða á viku í tímaritinu og sögunni lauk því í blaðinu þann 8. júní. Sagan hefst heima hjá honum og á fyrstu blaðsíðu má átta sig á að þetta er engin venjuleg Steina sterka saga þegar það bankar uppá hjá honum, strax í fimmta myndaramma, talandi Benco kakóduftskrukka - bara svona eins og gerist í teiknimyndasögum.
Fljótlega fara þeir krukkan út úr húsi og hitta hina kunnuglegu vinkonu Steina, Grímhildi (góðu að sjálfsögðu) og til að byrja með gengur sagan út á það að félagarnir tveir hitta ýmsa á vegi sínum sem þeir þekkja. Allir eiga það sameiginlegt að vera eitthvað daufir í dálkinn en hressast að sjálfsögðu við góðan sopa af Benco kókómaltinu. Reyndar mætti ætla að drykkurinn innihéldi eitthvað aðeins meira örvandi heldur en bara sykurleðju með súkkulaðibragði en SVEPPAGREIFINN ætlar að láta það liggja á milli hluta og gefa öðrum það eftir að rannsaka og upplýsa um það. En þegar líður á söguna færist meira fjör í leikinn. Steini og Benco dollan stöðva bankarán (og fríska auðvitað bankastjórann upp með kókómalti), Bjössi frændi þarfnast aðstoðar við glæpamenn og svo hressa þeir heila lúðrasveit við með drykknum görótta.
Uppfinningamaðurinn Valdimar og leigubílstjórinn Marteinn koma einnig við sögu sem báðir eiga það sameiginlegt að vera eitthvað niðurdregnir og fá því einnig sinn skammt af kókómaltinu en svo gerist auðvitað það sem enginn átti von á - Steini sterki kvefast. Þar með missir hann alla sína krafta en hvað gerir maður þá? Jú, auðvitað fær maður sér bara bolla af Benco kókómalti og málið er dautt. Og einhvern veginn þannig fjarar myndasöguauglýsingin Benoît et Benco út.
Það væri reyndar afskaplega freistandi að birta alla söguna hér á Hrakförum og heimskupörum en SVEPPAGREIFINN ákvað að láta nokkrar stikkprufur af henni nægja enda tekur hin tólf blaðsíðna teiknimyndasaga fullmikið pláss. En myndasagan um Steina sterka og Benco kókómaltið birtist aðeins í SPIROU tímaritinu og vegna þess að þetta var hrein og bein auglýsing var hún aldrei gefin út sem hefðbundin Steina sterka saga í seríunni. Benoît et Benco varð því snemma að einhvers konar goðsögn eða „týndri sögu“ sem aðeins hörðustu myndasögusafnarar vissu af og það var ekki fyrr en mörgum áratugum seinna sem hún var loksins endurprentuð sem sérstakt aukaefni í L'Intégrale heildarútgáfunni, um Steina sterka, aðdáendum hans til mikillar gleði. Myndasagan sem slík var í raun eina auglýsingin sem Benco og Peyo sameinuðust um, með Steina sterka, því í framhaldinu voru það Strumparnir sjálfir sem tóku við keflinu. Markaðsfræðingar Benco fyrirtækisins ákváðu að venda sín kvæði í kross og nýta sér frekar vinsældir hinna bláu enda voru þeir á barmi heimsfrægðar á nákvæmlega þessum tímapunkti. Það samstarf heppnaðist vonum framar og það voru því Strumparnir sem hrepptu það hlutverk að sinna framlínustörfum fyrir Benco kakóduftið og drukku súkkulaðidrykkinn stíft. Gerðar voru myndasögur og fjöldi auglýsinga sem birtust í blöðum og tímaritum um alla Evrópu en einnig urðu þeir svo frægir að fá að leika í sjónvarpsauglýsingum fyrir fyrirtækið. Það er reyndar önnur saga en þá má einnig geta þess, lesendum til fróðleiks, að Benco fyrirtækið er ennþá til.








Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Út með sprokið!