Hér birtist annar hluti SVEPPAGREIFANS um André Franquin í tilefni þess að 100 ár voru liðin frá fæðingu hans. Vegna umfangs efnisins skiptist það niður í fjóra hluta.
Sögunni Baráttunni um arfinn lauk í tímaritinu þann 13. mars 1952 og næsta saga hófst þó ekki strax í næsta blaði á eftir. Í stað þess birtist frægt viðtal við Franquin sem sett var upp á þann hátt líkt og blaðamaðurinn Valur hefði rætt við listamanninn. Á forsíðunni mátti sjá forsmekkinn að viðtalinu með lítilli myndasögu þar André Franqun var kynntur svolítið og í kjölfarið fylgdi tveggja síðna spjall hans við Franquin. Þar var víða komið við en rauði þráðurinn í viðtalinu gengur auðvitað út á að Valur er dreginn svolítið á asnaeyrunum. Viðtalið einkennist því af óþolinmæði og seinheppni Vals líkt og hlutverk hans, í Sval og Val sögunum, návæmlega er.
Hér að neðan má svo sjá myndasöguna sem birtist á forsíðunni og eins og stundum áður leyfði SVEPPAGREIFINN sér þá ósvinnu að þýða verkið í algjörri óþökk rétthafa. Sorrí með það!
Það var síðan þann 3. apríl 1952 sem byrjunin á næstu sögu leit dagsins ljós. Hún hét Les Voleurs du Marsupilami (Gormsránið) og nú var Franquin augljóslega búinn að finna sinn fasta grunn eða hugarheim á sögusviðinu því aftur var Gormur í aðalhlutverkinu. Vinur Franquins, Georges Salmon (Jo Almo), átti grunnhugmyndina að Gormsráninu þó André sjálfur bæri ábyrgð á handritinu en sagan kom út í bókarformi þann 11. september 1954. Á þessum tíma var Franquin búinn að móta aðalpersónurnar að mestu leyti útlitslega og í Gormsráninu litu þær orðið út eins og við íslensku lesendur Sval og Val bókanna kynntumst þeim í fyrstu sögunum sem komu út hér á landi. Næstu árin fínpússaði hann þá félagana svolítið og almennt kom mýkra flæði inn í stíl hans þannig að smám saman þróuðust sögurnar út í fullkominn Franquin stíl eins og hann gerist bestur. Á þessum tíma óx SPIROU tímaritið líka hratt með auknum vinsældum og Franquin var orðinn það mikilvægur hjá Dupuis útgáfunni að hann var hafður með í ráðum við að ráða inn nýja listamenn. Nú var það einnig orðið hans hlutverk (og Fjórmenningagengisins) að vera fyrirmynd, þjálfa upp og kenna yngri kynslóðum listamanna og móta stíl þeirra, líkt og Jijé hafði verið fyrir þeim sjálfum fáeinum árum fyrr. Jean Roba, Greg og Jijéhem voru á meðal þeirra listamanna sem komu nýjir inn og Jijéhem varð raunar hans helsti aðstoðarmaður með tíð og tíma.
Frá því Franquin kom heim frá Bandaríkjunum og Mexíkó starfaði hann ekki eingöngu við að teikna og semja sögurnar um Sval og Val hjá SPIROU heldur sinnti hann einnig ýmsum öðrum myndskreytingum fyrir tímaritið. Oftar en ekki teiknaði hann forsíðu SPIROU auk þess sem ýmsar teikningar hans birtust á víð og dreif á áberandi stöðum í tímaritinu til uppfyllingar. Alveg frá árinu 1950 hafði ritstjóri SPIROU Jacques Wauters öðru hvoru stýrt sérstökum pistli sem fjallaði um bíla í blaðinu undir dulnefninu Starter og Franquin tók fljótlega að myndskreyta þann lið með gullfallegum bílateikningum eða allt þar til Jijéhem tók við því hlutverki árið 1957.
Bílar voru einmitt eitt af þeim viðfangsefnum sem Franquin náði frábærum tökum á og þegar líða fór á 6. áratuginn fóru fallegir bílar að verða meira og meira áberandi í Sval og Val sögunum. Margar af þessum teikningum voru hrein listaverk og í næstu sögu hans, La corne de rhinocéros, kom til dæmis hinn goðsagnar- og byltingarkenndi Túrbot 1 (Turbot-Rinho 1) til sögunnar. En sagan La corne de rhinocéros hóf göngu sína í SPIROU tímaritinu þann 4. desember 1952 og var nokkuð eðlilegt framhald á þeirri þróun sem orðið hafði á Sval og Val seríunni á undanförnum sögum. Eina tímamótabreytingin fólst í því að ný aukapersóna var kynnt til sögunnar en sú viðbót varð í raun nokkuð afgerandi og djörf fyrir belgísk/franska myndasöguheiminn. Hér var á ferðinni blaðakonan Bitla (Seccotine) en þarna kom í fyrsta sinn fram sjálfstæð og frökk kvenpersóna, í mjög svo karllægum myndasöguheimi, sem auk þess var full af sjálfstrausti.
Þegar hann kynnti Bitlu til leiks mætti þessi nýja kvenpersóna töluverðri andstöðu og eftirliti siðapostula. Á sjötta áratugnum ríkti nefnilega ströng ritskoðun á barna- og unglingaefni í Frakklandi og Belgíu (vegna laga frá 1949) og útgefandinn Dupuis óttaðist mjög að fá á sig sektir eða bönn ef sögurnar þættu of djarfar. Reglan á þessum tíma var sú að blöð sem höfðu stráka sem markhóp áttu að geyma sögur um stráka. Kvenfólk mátti ekki vera í stórum hlutverkum nema sem mæður eða vinkonur og vera í algjörum aukahlutverkum. Ritskoðendur litu Bitlu hornauga vegna þess að hún var einhleyp, keyrði um á vespu, ferðaðist ein til Afríku og mætti karlmönnum á jafnréttisgrundvelli. Franquin þurfti að gæta þess mjög vel að hún sýndi Sval eða Val aldrei rómantískan eða kynferðislegan áhuga, því það hefði samstundis verið túlkað sem "óviðeigandi fyrir börn". Vegna þessa stranga ritskoðunarumhverfis gat Franquin ekki notað hana eins mikið og hann hefði viljað og hún birtist því aðeins í örfáum sögum á hans ferli. Annað sem var athyglisvert við birtingu þessarar sögu var það að hún birtist í tveimur hlutum í SPIROU tímaritinu. Fyrri hluti hennar hét Spirou et la Turbotraction og birtist í blaðinu allt til 21. maí árið 1953 en seinni hluti sögunnar nefndist La corne de rhinocéros og hefur það nafn fests við heildarsöguna sem kom síðan fyrst út í bókarformi í Belgíu í janúar 1954. Sumir vilja reyndar meina að sagan hafi alls ekkert skipst í tvo hluta heldur hafi Franquin einfaldlega breytt nafninu á henni í miðri sögu. Þá má geta þess að La corne de rhinocéros kom út hjá Froski útgáfu í íslenskri þýðingu í byrjun september árið 2026 og kallast hér á landi Bjargað fyrir horn.
Sumarið 1953, nánar tiltekið þann 20. ágúst, hóf Le Dictateur et le champignon (Burt með harðstjórann) göngu sína í SPIROU og enn héldu bæði listamaðurinn og sögupersónurnar áfram að þroskast. Í sögunni má vel sjá hversu ótrúlega lifandi teiknistíll Franquins er orðinn, sérstaklega í hreyfingum á farartækjum og í svipbrigðum persónanna. Sveppagreifinn, Bitla og Sammi frændi komu áfram við sögu en handritið var sameiginlega unnið af Franquin og Maurice Rosy sem starfaði sem listrænn ráðgjafi hjá Dupuis. Rosy átti meðal annars hugmyndina að metómól-efninu úr sveppunum sem mýkir alla málma en Franquin tók hins vegar hugmyndirnar og útfærði þær algjörlega á sinn einstaka hátt í teikningunum. Burt með harðstjórann endurspeglar mjög sterkar pólitískar skoðanir Franquins gegn stríði og einræði og er innblásin af kvikmynd Charlie Chaplins, Einræðisherranum þar sem hann gerir miskunnarlaust grín að hernaðarbrölti og fasískum táknum. Í stað þess að sýna blóðugt stríð nota þeir Svalur og Valur metómól til að eyðileggja skriðdreka og vopn Samma frænda og breyta þannig stríðsógn í algjöran fáránleika. Sögunni lauk í SPIROU blaðinu þann 6. maí árið 1954 og kom út í bókarformi í október 1956 en á íslensku gaf Iðunn hana út árið 1980 og Froskur útgáfa árið 2026.
Næsta saga, La Mauvaise Tête, hóf göngu sína í SPIROU aðeins tveimur vikum eftir að Burt með harðstjórann lauk en þetta er hrein glæpasaga og sú fyrsta sem Franquin skrifaði handritið að alveg einn og óstuddur. Þarna sleppti hann öllum framandi löndum og ævintýraferðum og sneri með sögupersónurnar aftur á heimaslóðir í Belgíu og Frakklandi með hreina leynilögreglu- og spennusögu. Handritið er þó ekki gallalaust og ansi margir lausir endar sem standa eftir óútskýrðir fyrir lesendum. Engu að síðu er þessi saga í uppáhaldi hjá mörgum unnendum sígildra Sval og Val bóka og er SVEPPAGREIFANUM mikið tilhlökkunarefni þegar hún mun koma út á íslensku - sem verður vonandi á næstu mánuðum. La Mauvaise Tête er talin ein sú "kvikmyndalegasta" sem Franquin teiknaði, full af hraða, eltingaleikjum og spennu og hápunktur sögunnar er stórfurðulegur eltingaleikur þar sem Valur blandast óvart inn í eina af erfiðustu dagleiðum Tour de France keppninnar. Þessi kafli sýnir ótrúlega hæfileika Franquins til að teikna hraða, hreyfingu og líkamlega áreynslu. Í þessari sögu kynnir Franquin meðal annars til leiks lögreglustjórann Chevelu en útlit hans og persónuleiki átti seinna eftir að verða bein fyrirmynd hans að skrifstofustjóranum Gvend sem síðar varð fastagestur í sögunum um Viggó viðutan.
La Mauvaise Tête lauk þann 9. desember 1954 og á Þorláksmessu sama ár hóf göngu sína sagan Le repaire de la murène en á íslensku heitir hún auðvitað Svamlað í söltum sjó og kom út hjá Iðunni árið 1983. Í SPIROU blaðinu lauk sögunni þann 11. ágúst árið 1955 og kom síðan út í bókarformi í Belgiu í júní árið 1957. Þótt sagan innihaldi mikinn húmor, þá er undirtónninn dálítið dekkri en áður. Hún spilar inn á glæpaheiminn og smygl sem var ákveðinn undanfari þeirra raunsæju spennusagna sem Franquin teiknaði síðar. Svamlað í söltum sjó er í dag talin ein af þeim lykilsögum sem marka upphaf gullaldar Franquins á sögunum um Sval og Val. Gagnrýnendur lofuðu (og lofa enn) ótrúlegt vald Franquins á myndbyggingu og hreyfingu og neðansjávarheimurinn þótti allt í senn; nýstárlegur, dularfullur og dálítið ógnvekjandi en á góðan hátt. Franquin sjálfur var afar ánægður með tæknina og grafíkina og naut þess mjög að teikna litla kafbátinn og dýptina í neðansjávarbækistöðvunum. Hann lagði gríðarlega vinnu í smáatriði og fannst sjónræna hliðin hafa heppnast vel. Franquin var reyndar alltaf mjög sjálfgagnrýninn og strangur við sjálfan sig. Hann nefndi seinna að honum hafi fundist fléttan sjálf og glæpasagan pínulítið fyrirsjáanleg eða klisjukennd og viðurkenndi að handritsgerð væri ekki hans sterkasta hlið þegar kæmi að löngum spennusögum. Franquin var orðinn einn besti teiknari í heimi en vaxandi kröfur um flókin handrit urðu til þess að hann fór að leita eftir samstarfi við aðra textahöfunda (eins og Maurice Rosy og síðar Greg) til að hjálpa sér við flækjurnar í sögunum.
Sífellt jókst álagið hjá Franquin á SPIROU tímaritinu með aukinni stækkun blaðsins og kröfur Dupuis jukust einnig í samræmi við vinsældirnar. Það hjálpaði heldur ekki til þegar Franquin hætti snögglega hjá forlaginu, haustið 1955, eftir deilur og virkilega hvatvísislega ákvörðun listamannsins. Deilurnar hófust vegna ágreinings um höfundaréttargreiðslur þegar Franquin taldi sig eiga rétt á mun hærri greiðslum frá Dupuis, samkvæmt gömlu samkomulagi en þegar á reyndi fann hann ekki nein skrifleg gögn eða staðfestingu á því. Í mikilli fljótfærni og reiði ákvað hann skyndilega að slíta öllu samstarfi við Dupuis og ganga til liðs við stærsta keppinaut SPIROU tímaritsins, sjálft teiknimyndablaðið Le journal de Tintin, undir útgáfufyrirtækinu Lombard. Til að sýna fram á hversu mikil alvara honum var skrifaði Franquin fyrirvaralaust undir fimm ára samning við keppinautinn og fyrir Tintin tímaritið skapaði hann glænýja fjölskyldu- og grínseríu, Modeste og Pompon, sem voru í einnar blaðsíðu brandaraformi. Sú myndasöguútfærsla hafði lítið verið nýtt í fransk/belgíska svæðinu á þeim tíma en þetta var tilraun Lombard útgáfunnar til að reyna að auka vinsældir Tintin tímaritsins með léttara efni þar sem mörgum þótti myndasögur blaðsins bera full mikla ímynd alvarleika. Frumraun André Franquin með Modeste og Pompon í tímaritinu var birt þann 19. október 1955 og þar uppgötvaði hann að þetta einnar síðu brandaraform hentaði honum reyndar miklu betur en langar og flóknar myndasöguraðir.
Þetta þóttu stór og óvænt tíðindi í myndasagnaheiminum þar sem SPIROU og Tintin tímaritin voru miklir keppinautar og í harðri samkeppni. Aðeins tveimur vikum eftir að hann skrifaði undir hjá Tintin fann Franquin loksins aftur týndu pappírana sem sönnuðu samkomulag hans við Dupuis og sýndu fram á réttmæti krafna hans. Charles Dupuis, yfirmaður forlagsins, varð auðvitað dauðskelkaður yfir að hafa misst Franquin yfir til mótherjanna og grátbað sinn hæfileikaríkasta listamann um að snúa til baka. Málin leystust hratt á milli Franquins og Dupuis, en þá blasti við nýtt vandamál því Franquin var þegar skuldbundinn af fimm ára samningnum við Tintin og gat lagalega ekki bakkað út úr honum. Niðurstaðan varð því sú að Franquin þurfti að vinna fyrir bæði blöðin samtímis og frá og með október 1955 varð hann því að skila tvöföldum vikuafköstum, fullri vinnu af Sval og Val fyrir Dupuis og einni blaðsíðu af Modeste og Pompon fyrir Lombard. Þetta aukna vinnuálag átti stóran þátt í að keyra Franquin út í kulnun og andlega erfiðleika en færði lesendum á sama tíma mörg af hans allra fallegustu og best teiknuðu verkum.
Þegar Franquin sagði upp hjá Dupuis átti hann, samkvæmt eldri samningi, eftir að skila inn ákveðnum síðufjölda af Sval og Val. Í stað þess að byrja á langri sögu sem hann gæti hugsanlega ekki klárað, teiknaði hann myndasögu í skyndi sem sína hinstu kveðju til persónanna. Planið var að þetta yrði hans síðasta verk með Sval og Val og Dupuis þyrfti í framhaldinu að finna nýjan teiknara til að taka við merkinu. La Quick Super (Valur og tryllitækið) nefndist sagan og hóf göngu sína í SPIROU tímaritinu þann 1. september 1955 og lauk 27. október og var því aðeins 16 blaðsíður að lengd. Franquin var þekktur fyrir mikinn áhuga á bílum og hönnun og í þessari sögu vildi hann sýna hvernig bandarísk bílamenning var að flæða yfir Evrópu á sjötta áratugnum. Sagan þykir sýna hversu frábær húmoristi og grínteiknari Franquin var, full af eltingarleikjum, misskilningi og húmor, þar sem Valur er í hálfgerðu aðalhlutverki að missa vitið yfir týnda bílnum. Sagan hefur meira að segja verið gefin út sérstaklega í vönduðum viðhafnarútgáfum í Belgíu og Frakklandi aðeins vegna þess hve teikningarnar á bílunum þykja fallegar. Þessi stutta saga, sem lætur ekki mikið yfir sér, hefði í raun hæglega getað orðið síðasta Sval og Val sagan.
Les pirates du silence (Hrakfallaferð til Feluborgar) kom næst og hún hóf göngu sína í SPIROU strax í vikunni eftir að Val og tryllitækinu lauk. Þó þessi saga sé skráð að öllu leyti á Franquin þá skrifaði hann handritið í félagi við Maurice Rosy og þetta var í raunar í fyrsta sinn sem listamaðurinn fór algjörlega eftir fyrirframskrifuðu handriti. Þá aðstoðaði Will hann við að hanna og teikna þann arkitektúr og bakgrunnsbyggingar sem einkennir hina ofur-nútímalegu Feluborg. Listrænir gagnrýnendur og myndasögusérfræðingar fransk/belgíska skólans hrósa sögunni í hástert því teiknistíll Franquin var á þessum tíma orðinn gríðarlega fágaður og kraftmikill. Framúrstefnuleg hönnun Feluborgar, sem listamaðurinn Will annaðist, þykir sérstaklega vel útfærð og gefur sögunni einstakt og dálítið dularfullt yfirbragð, sérílagi þar sem borgin er nánast tóm. Franquin var þó sjálfur mjög gagnrýninn á Hrakfallaferð til Feluborgar og taldi söguna alls ekki vera á meðal sinna bestu verka. Borgin átti auðvitað að endurspegla nýjustu strauma í arkitektúr (módernisma sjötta áratugarins), en Franquin fannst hún vera alltof köld, kassalaga og vanta allan þann náttúrulega sjarma sem hann elskaði að teikna í bæjum upp í sveit eins og Sveppaborg. Honum fannst Feluborg nánast leiðinleg sem bakgrunnur. Í sögunni uppgötva þeir Svalur og Valur að Gormurinn getur talað en Franquin dauðsá eftir þeirri ákvörðun og gormdýrið talaði ekki í fleiri sögum. Önnur mistök sem listamaðurinn gerði, var að hann teiknaði Gorm með nafla en seinna í seríunni (í Gormahreiðrinu) kom í ljós að gormdýr klekjast úr eggjum og því hafði hann tæknilega ekkert við nafla að gera. En Hrakfallaferð til Feluborgar skipar mjög áhugaverðan sess í sögu Svals og Vals. Hún er oft talin marka ákveðin kaflaskil eða millibilsástand á ferli Franquin áður en hann hóf að teikna sín allra stærstu meistaraverk í röðinni. Hrakfallaferð til Feluborgar kom út í bókarformi í byrjun október árið 1958 og Valur og tryllitækið fylgdi með sem aukasaga þrátt fyrir að hafa birst á undan í SPIROU blaðinu. Á Íslandi kom sagan út hjá Iðunni árið 1977 og varð þar með fyrsta Sval og Val bókin í seríunni hér á landi.
Næst á dagskrá var komið að sögunni Le gorille a bonne mine (Svalur og górilluaparnir) og þar er óhætt að segja að kveði við nýjan tón hjá Franquin. Svalur og górilluaparnir hóf göngu sína í SPIROU 16. maí 1956 og lauk í október sama ár en var síðan gefin út í bókarformi í október árið 1959. Þegar sagan byrjaði að birta í tímaritinu var upphaflegi titillinn sem Franquin valdi, Le gorille a mauvaise mine sem gæti þýtt Górillan í slæmu formi eða Górillan fúl í bragði en Dupuis þótti einhver ástæða til að ritskoða það. Útgáfan fór á þessum tíma eftir mjög strangri, kaþólskri og jákvæðri pólitískri línu þar sem ekki mátti sýna neitt of dökkt eða niðurdrepandi og fannst titillinn of neikvæður fyrir barnablað. Franquin var því neyddur til að breyta nafni sögunnar í þveröfuga átt, Le gorille a bonne mine (Górillan í góðu formi), sem honum fannst skemma dálítið kaldhæðnislegan boðskap hennar. Eins og svo oft var Franquin afar gagnrýninn í eigin verk. Honum fannst handritið og glæpafléttan í kringum gullnámuna alls ekki nægilega djúp eða spennandi og leit því á söguþráðinn fremur sem afsökun til þess að koma persónunum á ákveðinn stað í sögunni. Franquin þjáðist oft af fullkomnunaráráttu og fannst hann aldrei hafa nægan tíma til að fínpússa handritin sín, sem útskýrir hvers vegna hann var svo óánægður með sjálft plottið í þessari sögu. Þrátt fyrir að hafa verið ósáttur naut hann þess í botn að teikna górillurnar og hina afrísku náttúru. Franquin lagði gríðarlega mikla vinnu í að kynna sér útlit og hreyfingar górillna til að gæða þær eins miklu raunsæi og virðingu og unnt var.
Sagan sýnir vaxandi samfélagsvitund hans og á þessum tíma var krafa um afnám nýlendustefnunnar í hámæli í Afríku. Franquin notaði tækifærið til að gagnrýna nýlenduherra og græðgi vestrænna fyrirtækja sem arðrændu auðlindir á kostnað heimamanna og náttúrunnar. Hann freistaði þess að sýna Afríku á minni barnalegri eða föðurlegri hátt en tíðkast hafði í eldri evrópskum teiknimyndasögum, eins og t.d. í Tinna í Kongó, og vildi sýna spillingu hvíta mannsins og verndun náttúrunnar. Það var hins vegar hægara sagt en gert að skrifa slíka sögu árið 1956 og á þann veg að hún styggði ekki hina kaþólsku útgefendur Dupuis en á þessum tíma var Belgíska Kongó enn nýlenda. Hann þurfti því að feta einstaklega fína línu milli þess að koma gildum sínum á framfæri án þess að lenda í ritskoðunarvegg útgáfunnar. Þrátt fyrir þessa erfiðleika eða kannski einmitt vegna þess hversu mikið hann lagði í teikningarnar, til að vega upp á móti stressinu, varð útkoman ein fallegasta bók ferilsins. Viðtökurnar voru líka afar góðar og sagan festist fljótt í sessi sem ein af mörgum hápunktum Franquins á sjötta áratugnum.
8. nóvember árið 1956 hófst síðan í tímaritinu saga sem margir telja hápunkt Franquin á Sval og Val tímabilinu hans og í rauninni hápunktur seríunnar allrar frá upphafi. Hér er að sjálfsögðu um að ræða söguna Le nid des Marsupilamis eða Gormahreiðrið eins og hún heitir á íslensku. Hérlendir myndasögulesendur nutu frekar fljótlega góðs af þessari sögu því hún og reyndar einnig Svalur og górilluaparnir komu tiltölulega snemma út í íslensku útgáfuröðinni - báðar árið 1978. Þessar sögur eru auðvitað teiknaðar á hátindi ferils Franquins og sýna á óumdeilanlegan hátt hversu mikill og þroskaður listamaður hann var orðinn. Gormahreiðrið er reyndar sú saga sem Franquin sjálfur var stoltastur af og taldi söguna alltaf helsta meistaraverk sitt í seríunni. Hann lýsti því einnig seinna yfir að þetta hefði verið skemmtilegasta bókin sem hann teiknaði á ferlinum vegna þess að náttúran gaf honum svo góð tækifæri til að nota mjög frjálsa og lifandi línu í teikningunum. Þarna naut ligne atome stíllinn sín sérstaklega vel. Í flestum hinum sögunum berjast Svalur og Valur við ótýnda glæpa- og misindismenn en Gormahreiðrið er í raun bara formúlulaus náttúrulífssaga - eiginlega heimildarmynd í formi myndasögu. Svalur og Valur sjálfir koma minnst við sögu en í staðinn eru útskýrð öll helstu einkenni og lífsbarátta gormdýrsins. Franquin fékk algjörlega að sleppa fram af sér beislinu sem teiknari og þurfti ekki að fylgja neinum flóknum glæpaplottum. Þess í stað dundaði hann sér við að teikna dásamlegar og náttúrulegar, daglegar senur úr frumskóginum, hvernig gormdýrin byggja sér hreiður, hvernig þau finna sér maka, ala upp unga og verjast rándýrum. Gormahreiðrið er alveg gullfalleg og það er í rauninni mjög eðlilegt að Franquin elskaði þessa óvenjulegu sögu svona mikið. Innan evrópska myndasöguheimsins er sagan talin algjört meistaraverk. Gormahreiðrinu lauk í SPIROU tímaritinu þann 11. apríl 1957 og Dupuis gaf hana síðan út í bókarformi í apríl árið 1960.
Sagan varð fljótlega mest selda bókin í seríunni fram til þessa og hin mikla velgengni styrkti stöðu Franquins gagnvart Dupuis. Útgáfufyrirtækið var himinlifandi með viðtökurnar og hvatti listamanninn til að halda áfram á sömu braut. Gormahreiðrið er sögð vera ein sú ljóðrænasta í seríunni og myndasögufræðingar hafa bent á að á sama tíma og Franquin var að teikna söguna var hann sjálfur að ganga í gegnum miklar breytingar í sínu lífi. Dóttir hans Isabelle kom í heiminn og endurspeglast sú umhyggja og ástúð í sögunni. Hún fæddist þann 19. febrúar 1957 og 28. þess mánaðar mætti sjálfur Gaston Lagaffe (Viggó Viðutan) einnig í fyrsta sinn til leiks.
Á þessum uppgangstímum SPIROU tímaritsins urðu miklar breytingar á útgáfunni eins og áður hefur verið minnst á. Eftir erfiðleika og niðursveiflu seinni heimsstyrjaldarinnar hafði Dupuis hafið markvissa dreifingu á blaðinu í Frakklandi en sú ákvörðun gerbreytti fjárhag blaðsins og jók prentupplagið gríðarlega. Á árunum milli 1950 – 60 gekk SPIROU tímaritið í gegnum sitt mesta blómaskeið sem í sögu fransk/belgískra teiknimyndasagna er kallað gullöld tímaritsins. Starfsemin breyttist úr því að vera staðbundið belgískt blað yfir í að verða alþjóðlegt stórveldi og starfsmannahópurinn stækkaði úr litlum vinahópi yfir í öflugt og vel skipulagt stúdíókerfi. Árið 1946 var SPIROU 16 blaðsíður að lengd en í lok árs 1960 voru síðurnar orðnar 52 talsins og gátu farið yfir 60 blaðsíður í páska- og jólaútgáfum tímaritsins. Áður en dreifingin í Frakklandi hófst var upplagið í kringum 50.000 til 70.000 eintök á viku og árið 1950 var blaðið komið í harða samkeppni við helsta keppinautinn, Le journal de Tintin, og upplagið rauk upp. Á þeim tíma seldust um 130.000 til 150.000 eintök í hverri viku og um 1960 náði upplagið sögulegum hæðum og var komið í um 250.000 til 300.000 eintök á viku samanlagt í Belgíu, Frakklandi og Sviss.
Í upphafi sjötta áratugarins hafði starfseminni verið breytt yfir í hálfgerða „stúdíómenningu“ þar sem höfundar unnu náið saman, skiptust á hugmyndum og aðstoðuðu hvern annan, meðal annars við litun og bakgrunna. Árið 1955 hafði hinn litríki Yvan Delporte tekið við sem aðalritstjóri SPIROU og undir hans stjórn varð blaðið tilraunagjarnara og stemmningin einkenndist af frelsi og gríni þar sem mikið var hlegið. Það umhverfi átti vel við Franquin og reyndar Fjórmenningagengið allt eins og það lagði sig. Starfsmannafjöldinn náði líka nýjum hæðum þar sem fjöldi aðstoðarmanna, handritshöfunda og litara vann einnig náið með listamönnunum í kringum blaðið. Um leið jukust kröfurnar frá Dupuis gríðarlega og með tíð og tíma höfðu þær mjög alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu og líðan André Franquins sem á þessum tíma var að ná listrænum hátindi sínum með sögurnar. Franquin þurfti að skila af sér vikulega síðum í seríunni með Sval og Val og teiknaði auk þess einnig allar forsíður og fullt af aukaefni en þar fyrir utan bættist auðvitað við skuldbindingin með myndasögunum um Modeste og Pompon fyrir Tintin tímaritið. Til að brotna ekki algjörlega undan kröfum SPIROU blaðsins ákvað Franquin að ráða til sín hæfa aðstoðarmenn upp úr 1955. Hann opnaði óformlegt stúdíó (L'Atelier Franquin) í litilli og bjartri íbúð sem hann leigði í Brussel og árið 1957 varð Jidéhem hans hægri hönd þar fljótlega eftir að hann kom úr námi. Eftir að Jidéhem kom til sögunnar teiknaði hann nánast alla bakgrunna, bíla og byggingar fyrir hann í sögunum um Sval og Val og sömu sögu má einnig segja um stóran hluta af bröndurunum með Viggó viðutan. Handritshöfundurinn Greg hafði að miklu leyti tekið að sér að annast skrifin að Modeste og Pompon en einnig hjálpuðu þeir René Goscinny og Peyo honum þar til að minnka álagið eins og hægt var. Þetta létti gríðarlega á allri vinnu Franquins en undir niðri kraumaði þunglyndi hans sem braust upp á yfirborðið endrum og eins.
Það var því ekkert lát á verkefnum listamannsins fyrir SPIROU. Viggó viðutan hóf að birtast í rólegheitunum í tímaritinu þar sem Franquin tók sér reyndar nokkrar vikur í að kynna persónuna til sögunnar. Þegar Yvan Delporte kom fyrst með hugmyndina um Viggó leyst Franquin ekki vel á hana enda hafði hann þá þegar auðvitað yfirdrifið nóg á sinni könnu. Að lokum gaf hann þó eftir og í sameiningu þróuðu þeir Delporte og Jidéhem þennan nýja meðlim SPIROU blaðsins þótt Franquin hafi átt langmest í honum. Delporte hafði þó leikið lykilhlutverkið í hugmyndinni og hvatti Franquin til að þróa fáránlegan húmor í kringum kappann, háðsádeilu með afslappaðan og anarkískan tón. Viggó var því upphaflega hugsaður sem persóna án sögu, hálfgerður letingi og klaufi sem átti aðeins að fylla upp í eyður á síðunum. Franquin fann hins vegar fljótt að Viggó bjó yfir ómældum möguleikum og hún varð fljótlega að einni ástælustu grínmyndasögu Evrópu. Persónan Viggó hefur oft verið hyllt sem fyrsta andhetjan (þá í þeirri merkingu að vera söguhetja sem skortir alla hetjueiginleika en vera samt ekki illmenni) í sögu myndasagnanna. Yvan Delporte hafði aldrei séð hann fyrir sér sem myndasöguhetju heldur aðeins sem fyndið uppfyllingarefni. Viggó birtist því alltaf eitthvað á einni og einni mynd í hverri viku til að byrja með en svo breyttist það með frekari þróun. Fyrsti eiginlegi myndasögubrandarinn um kappann birtist þó ekki í blaðinu fyrr en hinn 13. júní 1957 en það var reyndar í hinu merka tímamótablaði SPIROU númer 1000. Um þróun Viggós og fyrstu árin hans í tímaritinu má lesa í færslu hér.
Þann 18. apríl 1957 hóf hins vegar göngu sína vísindaskáldsagan Le voyageur du Mésozoïque sem gerist að mestu í Sveppaborg. Sú saga hefur ekki enn komið út á íslensku en hefur verið nefnd Eggið úr fortíðinni á Wikipedia og einnig hefur verið vitnað í hana sem Fornaldareggið í einhverri Sval og Val sögunni en hluta Le voyageur du Mésozoïque voru gerð svolítil skil í færslu SVEPPAGREIFANS hér. Afstaða Franquin til Le voyageur du Mésozoïque var með dálítið blendnum huga en sagan endurspeglar áframhaldandi þróun en sýnir á sama tíma ákveðin þreytumerki. Annars vegar hafði Franquin gríðarlega gaman af teiknivinnunni en um leið var hann orðinn mjög þreyttur á hinu hefðbundna söguformi seríunnar. Þetta var einmitt á þeim tíma sem hann var byrjaður að finna fyrir verulegri kulnun. Franquin viðurkenndi reyndar að hann hefði skemmt sér konunglega við að hanna og teikna sjálfa risaeðluna. Líkt og með gormdýrið taldi hann sig eiga mun auðveldara með að gæða dýr lífi heldur en að teikna venjulegar manneskjur. Ligne atome hentaði einstaklega vel fyrir dýr og hann vandaði sig gríðarlega við að gefa risaeðlunni vingjarnlegt en um leið klunnalegt yfirbragð sem passaði inn í grínið. Samstarfsmenn hans (þar á meðal handritshöfundurinn Greg) nefndu síðar að Franquin hefði byrjað söguna af mikilli tilhlökkun en misst áhugann þegar leið á vinnuna. Hann átti í erfiðleikum með að binda spennandi lokahnút á ævintýrið og það var einmitt ástæðan fyrir því að hann hafði fengið Greg til liðs við sig. Greg átti að hjálpa honum að halda skipulagi á handritinu svo Franquin gæti einbeitt sér meira að því sem hann gerði best, hinu sjónræna gríni og brjáluðu eltingaleikjunum.
Franquin var mikill friðarsinni og fannst mjög gefandi að fá tækifæri til að nýta seinni hluta sögunnar í að gera miskunnarlaust grín að her og hernaðarátökum. Að teikna vanhæfa hermenn eyðileggja hálfa Sveppaborg með skriðdrekum, í tilraun sinni við að handsama eina saklausa risaeðlu, var eitthvað sem hentaði pólitískri hugsjón Franquins vel og gaf honum góða útrás. Atburðarrásin sýnir viðhorf hans í ákveðinni stríðs- og hernaðarandúð sem átti eftir að einkenna síðari og alvarlegri verk hans. Líklega var hugur Franquins þó þegar farinn í að einbeita sér að nýju persónunni sinni, Viggó viðutan, sem fékk einmitt sitt fyrsta litla gestahlutverk í Le voyageur du Mésozoïque. Honum fannst ferskt og skemmtilegt að fá tækifæri til að brjóta upp söguna, með því að láta Viggó eyðileggja framvinduna, sem sýndi að áhugi hans var smám saman að færast yfir í grínformið fremur en hið langa ævintýrasöguform Svals og Vals.
Sögunni Le voyageur du Mésozoïque lauk þann 17. október árið 1957 og hún var síðan gefin út í myndasögubók í Belgíu um mitt árið 1960. Nú liðu fáeinar vikur áður en næsta saga Vacances sans histoires (Viðburðarlítið sumarleyfi) hóf göngu sína en hún birtist í SPIROU tímaritinu á tímabilinu frá 17. nóvember 1957 til 30. janúar 1958. Þetta var stutt saga, 22 blaðsíður að lengd, sem er söguleg að því leyti að þetta var síðasta sagan sem Franquin teiknaði algjörlega einn síns liðs. Eftir hina löngu og flóknu Le voyageur du Mésozoïque, sem krafðist mikillar vinnu við risaeðluna, vantaði blaðinu styttri sögu til að fylla upp í útgáfuplönin áður en næsta stóra ævintýri yrði undirbúið. Viðburðarlítið sumarleyfi var fullkomin í það hlutverk, einföld og hröð grínsaga sem gerði engar kröfur um flókna rannsóknarvinnu eða framandi umhverfi. Franquin var einfaldlega kominn að fótum fram af þreytu og hafði ekki heilsu eða tíma til að sinna annarri 44 eða 64 síðna stórsögu einn síns liðs. Eftir Viðburðarlítið sumarleyfi fékk hann því aðstoðarmenn, eins og Jijéhem og Roba, til að teikna alla bakgrunna, mannvirki og farartæki en í framhaldinu urðu stuttsögur sem þessi fastur liður í útgáfunni hér og þar inn á milli stóru albúmanna. Franquin sjálfum þótti mjög vænt um Viðburðarlítið sumarleyfi þótt hann liti reyndar á söguna sem léttmeti miðað við stóru ævintýrin. Hann viðurkenndi að sagan hefði nánast verið afsökun fyrir því að fá að teikna sportbíla, hraða og brjálaðan glæfraakstur um krókótta vegi frönsku ríverunnar. Hann hafði mjög gaman af því að hanna og teikna eyðileggingu fyrsta Turbot bílsins og kynna þann næsta til sögunnar. Í Viðburðarlitlu sumarleyfi bregður Viggó einnig aftur aðeins fyrir en á sama tíma var Franquin líka í fullri vinnu við að þróa brandarana um hann sem þá þegar voru farnir að birtast reglulega í hálfsíðu formi í SPIROU tímaritinu. Þar sem Viðburðarlítið sumafrí var svo stutt fylgdi hún sem aukasaga í bókinni Svalur og górilluaparnir sem gefin var út 1959 en á íslensku kom sú bók út árið 1978 eins og áður hefur verið minnst á í þessari færslu.
Næsta saga var einnig stutt og nefndist La foire aux gangsters (Bófaslagur) og birtist í SPIROU tímaritinu á tímabilinu frá 6. febrúar til 24. apríl árið 1958. Bófaslagur er óvenju harkaleg á köflum miðað við aðrar Sval og Val sögur og Franquin keyrir söguna áfram í raunverulegan glæpasagnastíl með bandarískum mafíósum. Undir lokin (í upprunalegu SPIROU útgáfunni) sprengir júdómeistarinn Soto Kiki bíl glæpamannanna í loft upp með þeim afleiðingum að illmennið Caspiano lætur lífið. Þetta er eitt af örfáum skiptum í seríunni sem persóna deyr. Franquin viðurkenndi síðar að hann hefði verið að spinna handritið jafnóðum á meðan á útgáfunni stóð og undir lokin lenti hann í hálfgerðri sjálfheldu með söguþráðinn. Til að leysa málið brá hann á það ráð (með hjálp Jidéhem) að breyta júdómeistaranum Soto Kiki snögglega og hann varð sá sem leysti málið með þessum ofbeldisfulla hætti í lokin. Þegar sagan kom síðan út í bókarformi hafði endinum verið breytt eftir ritskoðun Dupuis útgáfunnar. Viggó viðutan birtist einnig í ný og í Bófaslag fær hann í fyrsta skipti formlegt hlutverk inni í sjálfri sögunni hjá Sval og Val en ekki bara sem einhvers konar hliðargrín. Þarna var Jijéhem líka kominn á fullt í vinnu við bakgrunninn og samstarfið þeirra varð svo náið og gott að Franquin nefndi stuttu síðar einn eftirminnilegasta karakterinn í Viggó Viðutan eftir föður Jidéhem. Hinn reglusami, moldríki og reiði kaupsýslumaður, herra De Mesmaeker (herra Seðlan) heitir því fullu nafni nákvæmlega það sama og faðir Jidéhem. Bófaslagur kom út í bókarformi sem aukasaga með Gormahreiðrinu árið 1960.
15. maí 1958 hófst svo næsta Sval og val saga Franquins í fullri lengd sem birtist í SPIROU tímaritinu eftir nokkurra vikna hvíld og undirbúning. Þarna var á ferðinn sagan Le Prisonnier du Bouddha eða Fanginn í styttunni eins og hún nefnist á íslensku og einkennist nokkuð af anda Kalda stríðsins. Þó Dupuis bæri mikla virðingu fyrir störfum Franquins, sem var algjört gullegg útgáfunnar, þá lagði fyrirtækið þá pressu á að listamaðurinn skilaði sögum sínum sem mest í fullri lengd. Hinar styttri sögur hans hentuðu illa til hefðbundnar bókaútgáfu, blaðsíðufjöldans vegna, en við þær aðstæður urðu tafir á að sögurnar hentuðu til bókaforms. Fyrir SPIROU tímaritið voru stuttu sögurnar hins vegar frábærar, enda fullkomnar til að brúa bil á milli stórra ævintýra en höfuðverkurinn byrjaði þegar átti að gefa þær út í bókarformi. Á þessum tíma var strangt staðlað kerfi í prentun þar sem albúmin áttu helst að vera nákvæmlega 64 blaðsíður (eða 48 síðar) vegna þess hvernig örkin var brotin í prentvélinni. Útgáfan neyddist því stundum til að púsla saman sögum. Þeir urðu að taka eina stóra sögu, sem þó var ekki nógu löng fyrir 64 síður, og troða stuttu sögunum með sem aukasögu. Dupuis fannst þetta óskilvirkt og kallaði þær uppfyllingarefni þrátt fyrir að sögurnar gætu verið algjör meistaraverk. Þarna rákust því á viðskiptahagsmunir og hefðir Dupuis útgáfunnar og hins vegar listrænt frelsi og andrými Franquins. Charles Dupuis áttaði sig þó fljótlega á því að stuttu sögurnar væru merki um að aðalstjarnan þeirra væri við það að brenna út og hann vissi að Svalur og Valur héldu tímaritinu uppi fjárhagslega. Þess vegna studdi Dupuis þá ákvörðun heilshugar að fá Jidéhem inn til að létta á álaginu við bakgrunnana. Við gerð Fangans í styttunni var Jijéhem einmitt kominn á fullt til aðstoðar og Greg skrifaði handritið að sögunni. Sagan þykir einstaklega vel heppnuð og lifandi vegna þess hversu vel vinnustúdíóið virkaði. Framlag handritshöfundarins Greg tryggði að sagan hafði sterkan rauðan þráð, pólitískan brodd, sem sýndi kaldastríðsátökin á skopstælingarhátt en um leið stanslaust flæði af frábærum bröndurum. Fyrir Franquin sjálfan var gerð sögunnar mikill léttir en hún sýndi vel hvernig samstarf listamanna getur gengið upp. Sérstaklega var Franquin þakklátur handritshöfundinum Greg því hann viðurkenndi að hann væri sjálfur oft hvatvís með söguþráðinn og ætti það til að lenda í sjálfheldu. Greg færði sögunni skipulag, rökfestu og spennu sem Franquin fannst dásamlegt að vinna með og taldi þetta handrit vera eitt það besta sem hann hefði fengið í hendurnar. Franquin hafði gaman af því að fjalla um kalda stríðið en gætti þess þó að gera grín að báðum hliðum (Bandaríkjunum og Sovétríkjunum) og sýna hernaðarbrölt sem fáránlegan hégóma. Lesendur Spirou dýrkuðu söguna þar sem hún bauð upp á fullkomna blöndu af njósnum, í stíl við bíómyndir Alfred Hitchcock og hreinræktuðum ærslahúmor. Fanginn í styttunni er yfirleitt sett í flokk þriggja bestu Sval og Val sagna Franquins. Í SPIROU tímaritinu lauk sögunni þann 8. janúar árið 1959 og kom út í bókarformi hjá Dupuis í byrjun árs 1960. Á íslensku kom Fanginn í styttunni út hjá bókaútgáfunni Iðunni árið 1981.
Þriðji hluti SVEPPAGREIFANS í tilefni af 100 ára afmæli André Franquins birtist hér á Hrakförum og heimskupörum á næstu dögum.

























Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Út með sprokið!