Af ýmsum mismunandi ástæðum hefur SVEPPAGREIFINN ekki verið nægilega duglegur við að ferðast um heiminn, á undanförnum árum, til að bæta í
myndasöguhillurnar sínar. Eins og einhverjir eflaust muna gerði Covid veiran nokkra
skráveifu hjá mörgum en hún gerði það að verkum að utanlandsferðum
landsmanna varð stórlega áfátt um skeið. Covid lokaði svo sem ekki alveg á bókakaup hans því SVEPPAGREIFINN
freistaðist aðeins til að kaupa sér bækur á Netinu en það er samt ekki
alveg jafn marktækt. Um þau kaup má aðeins lesa í færslu hér. Hann hefur þó verið nokkuð duglegur að versla það sem hefur verið að koma út hjá Froski útgáfu og hefur reyndar
alltaf verið. En fyrr í
sumar skrapp hann þó með börnunum sínum í nokkurra daga ferð á heimaslóðir
móður þeirra í Sviss og eins og jafnan er á slíku flakki þá er eiginlega
ekki hjá því komist að fjárfesta í nokkrum teiknimyndasögum. Ekki var þó
ætlunin að standa í neinum stórinnkaupum að þessu sinni, enda
fjölskyldan auðvitað í fyrirrúmi, en fáeinar bækur (og reyndar líka nokkur myndasögutímarit) fylgdu þó með í ferðatöskunum á leiðinni heim. Fyrirfram höfðu örfáar sérvaldar myndasögubækur verið settar efstar á óskalistann en eins og gerist
reyndar stundum þá getur margt breyst frá upphaflegum áætlum. Ýmist næst
ekki alltaf í ákveðnar bækur hverju sinni eða ekki gefst tækifæri til
að nálgast þær á þeim stöðum sem upphaflega var stefnt að. Þannig verða
víst sumar myndasögur að bíða betri tíma en í staðinn slæðast með
fáeinar aðrar bækur sem verða á vegi SVEPPAGREIFANS. Flest kaup
ferðalagsins voru einmitt í þeim dúr.
Í borginni Biel keypti hann Lukku
Láka bókina Volle Fahrt voraus sem er nokkurs konar samansafn af
bernskubrekum Láka og er eftir núverandi höfund seríunnar, Achdé (Hervé Darmento). Bókin er á þýsku og telst númer 98 af þýsku útgáfuröðinni en í Frakklandi tilheyrir hún bókaflokknum um Litla Lukku Láka (Kid Lucky) og telst þar ekki til hinnar opinberu Lukku Láka seríu. Bókin heitir þar Kid Lucky - Kid ou double og kom fyrst út árið 2019 en Achdé hefur þann háttinn á að teikna til skiptis, annað hver ár, bók úr upprunalegu seríunni annars vegar og svo hitt árið um Litla Láka.
Á sama stað rak SVEPPAGREIFINN augun í Sval og Val bókina Tulpen
aus Istanbul (Túlipanar frá Istanbúl) eftir hinn hollenska Hanco Kolk en þessa sögu hefur GREIFINN haft
augastað á síðan hún kom út árið 2017. Hér er reyndar um að ræða
þýsku útgáfuna af bókinni (Tulpen uit Istanboel heitir hún á hollensku) og kom út í apríl á þessu
ári hjá Carlsen comics en hefur aldrei komið út á frönsku. Upprunalega telst sagan til hinnar hollensku/flæmsku deildar Dupuis, þar sem Svalur kallast Robbedoes, en þær sögur hafa yfirleitt ekki verið að koma út í öðrum löndum - þar til núna. Carlsen hefur nefnilega nú riðið á vaðið og gefur bókina út í hinni þýsku Sval og Val hliðarseríu sinni, SPEZIAL. Sagan
hefur yfirleitt fengið alveg þokkalega dóma en Dupuis útgáfan í Belgíu hefur þó verið
frekar viðkvæm fyrir þessari hollensku útfærslu á þeim Sval og Val enda
er almennt gert frekar lítið úr belgiskum uppruna þeirra í Robbedoes seríunni. Belgum finnst líka heldur lítið til hollenskrar myndasögugerðar koma enda er magn bókanna þar yfirleitt gæðunum yfirsterkari. Siggi og Vigga þykja til dæmis ekkert úrvalsefni eins og flestir eru líklega sammála um. En sagan Tulpen
aus Istanbul gerist árið 1960 og segir frá því er Sveppagreifinn fær þá Sval og Val til að aðstoða sig við að hjálpa sovéskum kollega sínum að flýja vestur yfir járntjald og yfir til Hollands. Eins og sést á bókarkápunni er sagan ekki alveg í hefðbundnum Sval og Val stíl en hann minnir svolítið á La Grosse tête sem kemur úr hliðarseríunni Série Le Spirou de….
Skömmu
síðar rak SVEPPAGREIFINN svo augun í þykkt myndasögurit, í söluturni á lestarstöðinni í
Biel, sem ber einfaldlega heitið, Asterix MAX! Þarna er um að ræða
tæplega 200 blaðsíðna doðrant sem tilvalið er fyrir þýskumælandi börn að
taka með sér og dunda við á ferðalögum sumarsins. Það er að segja þá
krakka sem ekki hafa enn misst vitið af snjallsímanotkun sinni! En ritið
samanstendur af margskonar efni, fyrir börn á öllum aldri, sem tengist
að mörgu leyti Ástríks bókunum eins og nafn þess (ASTERIX MAX!) gefur
sterklega til kynna en efni þess er meira og minna allt tengt höfundunum
Goscinny og Uderzo. Brot heftisins og efni er mjög sambærilegt við MEGA SPIROU ritin sem einhverjir kannast örugglega við og koma ennþá reglulega út. En í ASTERIX
MAX! heftinu má meðal annars finna stuttar Ástríks sögur sem birtust í
Pilote myndasögutímaritinu og víðar, en komu samt ekki endilega út í
bókaformi, brot eða kafla úr nokkrum Ástríks bókum, stuttar
fróðleiksgreinar, þrautir, uppskriftir (ekki þó með
villigöltum!) og ýmislegt fleira.
Þó Ástríks þema þessa doðrants sé mest
áberandi þá er þar einnig að finna 46 blaðsíðna myndasögu sem fjallar
um ævintýri systkinanna Benjamin og Benjamine, 22ja blaðsíðna ævintýri
um Luc Junior (ungan blaðamann sem ferðast um heiminn) og stutt ævintýri um hundinn Krílrík (í einhverjum Ástríksbókanna er hann líka kallaður Smáríkur) sem heitir
Idefix und die Unbeugsamen - Ein Löwe mit heimweh (kannski þá sem Krílríkur og hinir ódrepandi - Ljón með heimþrá) og er 15 blaðsíður að lengd. Tvær
fyrrnefndu sögurnar eru eftir þá Goscinny og Uderzo og koma úr löngu
gleymdum hirslum þeirra en hundasagan er eftir þá Yves Coulon, Klaus
Jöken og Philippe Fenech en þær sögur hafa víst verið að koma út í myndasöguformi á
undanförnum árum. Ævintýri Benjamin og Benjamine voru eitt af verkefnum
þeirra Uderzo og Goscinnys frá þeim tíma sem þeir voru að byrja að þróa samstarf
sitt. Reyndar höfðu þessar sögupersónur verið skapaðar áður og birtust
fyrst í franska unglingablaðinu Benjamin í lok árs 1952 en þeir
Uderzo og Goscinny komu að þeim á árunum 1957 - '59. Alls unnu þeir
saman að fjórum ævintýrum um Benjamin og Benjamine og þau voru fyrst gefin
út í bókarformi árið 1991 en glæsilegt safnrit með öllum sögunum auk 30
blaðsíðna fróðleiks kom út hjá Albert René útgáfunni árið 2017. Það væri
örugglega gaman að eignast það hefti. Ævintýri Luc Junior eru af svipuðum toga en voru gerð á árunum 1954 - '57 og það er bara á allra síðustu árum sem þau hafa verið grafin upp, lituð og gefin út í bókaformi.
Seinna sama dag keypti SVEPPAGREIFINN í Bern Sval og Val bókina Der Wolfsmensch (Úlfsmaðurinn) eftir Belgana Charel Cambré og
Marc Legendre en hún kemur einnig úr SPEZIAL seríunni
þýsku. Líkt og Tulpen
aus Istanbul kemur þessi saga líka úr hinum hollenska/flæmska Robbedoes ranni en hún heitir á frummálinu De Wolfman og er reyndar þriðja bókin af einhvers konar þríleik eftir þá Cambré og Legendre. SVEPPAGREIFINN á að vísu enn eftir að verða sér úti um fyrri bækurnar tvær, sem jafnframt hafa komið út í þýsku SPEZIAL seríunni, en það er þó auðvitað stefnan að nálgast þær einnig. Alls hefur Carlsen því sent frá sér fjórar bækur úr þessum hollensk/flæmska Robberdoes pakka og reikna má með að fleiri slíkar komi út á næstu árum.
Allar þessar fyrstu fjórar myndasögur voru á þýsku enda hefur
SVEPPAGREIFINN lagt meiri áherslu á það tungumál þó bækur á frönsku
slæðist reyndar oft með á þessum ferðalögum. Einn laugardaginn, þegar
krakkarnir höfðu brugðið sér í sund og matarboð hjá vinafólki, fékk
SVEPPAGREIFINN svolítið frjálsar hendur og notaði þá tækifærið til að rölta aðeins um Biel. Þar kíkti hann auðvitað á hinn hálfsmánaðalega
flóamarkað sem staðsettur er nálægt aðal lestarstöðinni í borginni en
þangað hefur hann oft ráfað þegar þannig stendur á. Reyndar var þar
ekki úr miklu að moða, að þessu sinni, nema hvað hann rakst á góðan
bunka af SPIROU og Le Journual De Tintin tímaritum sem hann borgaði aðeins 10
svissneska franka fyrir. En það munu vera um það bil rétt rúmlega 1500
kall fyrir allan pakkann ef miðað er við nýjustu verðbólgu- og gengisviðmiðanir.
Þessi tímaritabunki hafði alls að geyma 18 blöð (13 af SPIROU og 5 af
Tintin) sem gefin voru út á árunum 1978 til '79. Að sjálfsögðu var
GREIFINN himinlifandi yfir fundinum enda fremur sjaldgæft að rekast á
slíkar gersemar þó það gerist reyndar einstaka sinnum. Í það minnsta var gaman að fá þessa kærkomnu viðbót í belgíska myndasögutímaritsafn
heimilisins.
Nokkru seinna rakst hann svo á gamalkunnan bás á götumarkaði, með
notuðum myndasögum, í miðbænum og keypti þar fjórar áhugaverðar teiknimyndasögur sem allar voru á
frönsku. Þar var um að ræða tvær bækur með Natöchu, eina með
Bláfrökkunum (Les Tuniques Blues) og svo eina bók með frönsku flugkempunni Bob Morane en margir muna eftir drengjasögunum með Bob
Moran sem bókaútgáfan Leiftur sendi frá sér í tugavís fyrir mörgum
áratugum. Þetta er í fyrsta sinn sem GREIFINN grípur með sér Bob Morane
bók en hann hefur þó oft fengið tækifæri til þess á þessu flandri sínu
og hefur reyndar einhvers staðar aðeins minnst á þessar bækur á Hrakförum og
heimskupörum áður. Bókin heitir L'oeil du Samouraï eða Auga Samúræjanna en sú saga mun ekki hafa komið út hjá Leiftursútgáfunni á sínum tíma. Einhverjir muna eflaust eftir hinum ógnar grimma Gula skugga úr þeim bókum en það illmenni kemur einmitt fyrir í nokkrum af þessum myndasöguútgáfum af Bob Morane. Fyrir átti SVEPPAGREIFINN hins vegar nokkrar bækur með flugfreyjunni Natöchu og einnig með hetjunum úr Bláfrakkasögunum en það er eiginlega hálfgert rannsóknarefni af hverju þær seríur komu hvorugar út í íslenskri þýðingu hér á árum áður. Svo vinsælar voru þessar sögur, bæði í Frakklandi og Belgíu sem og á Norðurlöndunum, að líklega var það bara tilviljun að þær myndasögur voru ekki valdar til útgáfu frekar en til dæmis bækurnar um Samma, Hin fjögur fræknu eða Frikka og Frosta. Íslensku bókaforlögin voru nokkuð sein að taka við sér og hefja útgáfu á myndasögum á sínum tíma en SVEPPAGREIFINN er fullviss um að ef útgáfa þessa tegunda barnabókmennta hefði hafist af fullum þunga nokkrum árum fyrr þá hefðu báðar þessar seríur einnig orðið fyrir valinu, hjá Fjölva eða Iðunni, fyrir íslensk börn og unglinga.
Aðeins bætti SVEPPAGREIFINN nú reyndar
fleiru í staflann sinn í þessari lotu. Hann er vanur að gramsa í 5
franka rekkunum í verslunum stórmarkaðskeðjunnar Manor og engin breyting
varð á því í þetta skiptið. Þarna greip hann með sér tvær Viggó
safnbækur sem hafa að geyma þema sem tengjast ákveðnum
bröndurum með kappanum. Síðuhafi á að minnsta kosti tvær bækur úr þessu
safnflokki fyrir og þar sem hann er svo mikill Viggó aðdáandi sá hann
sér ekki fært annað en að fjárfesta í þessum ódýru ritum. Þær fara líka
svo ágætlega í myndasöguhillunum hans.
Þegar síðan heim í athvarf
fjölskyldunnar var komið mættu börnin svo færandi hendi með þrjár Tinna
bækur á þýsku sem vinafólkið hafði fært þeim vitandi að heimilisfaðirinn
væri að safna Tinna á mörgum mismunandi tungumálum. Hér var um að ræða
Reiseziel Mond (Eldflaugastöðin), König Ottokars Zepter (Veldissproti
Ottókars) og Der Blaue Lotos (Blái lótusinn). Nú á hann því orðið tíu
myndasögur með Tinna á þýsku. Ef einhver lesenda Hrakfara og heimskupara lumar á Tinna bókum á mjög framandi tungumálum (sem honum langar að gefa) þá er SVEPPAGREIFINN alveg til í að eignast þær. Þarna er hann auðvitað ekki að tala algengustu tungumálin í kringum okkur heldur austur evrópskum, asískum, suður amerískum eða jafnvel afrískum útgáfum.
Eins og SVEPPAGREIFINN gat um í byrjun náði hann nú ekki í þær helstu bækur sem verið höfðu á
óskalistanum að þessu sinni. Enn vantar hann 7. bókina úr hinum frábæra
Sval og Val safnflokki þar sem fjallað er um verk André Franquin og í
framhaldinu af því er ætlunin að nálgast bækur Jean-Claude Fournier sem bera þá númerin 9 og 10
og koma í kjölfarið. Seinna er svo planið að eignast bækurnar með verkum þeirra Nic og Cauvin og svo koll af kolli. Sömuleiðis náði hann hvergi í þær tvær af þeim
Sval og Val bókum Émile Bravo sem hann enn vantar (nr. 2 og 4.) og tilheyra einmitt hinni þýsku
SPEZIAL seríu. Alls eru þessar bækur fjórar talsins (reyndar eru þær fimm í heildina með forsögunni SPIROU - Le Journal d'un ingénu (SVALUR - Dagbók hrekkleysingja)) og er framhaldssaga sem fjallar um baráttu Svals og Vals með andspyrnuhreyfingu Belga gegn þýsku Nasistunum í Síðari heimsstyrjöldinni. Þessar tvær bækur fann hann hvergi enda athafnasvið
ferðalagsins nokkuð takmarkað af því svæði sem fjölskyldan dvaldi á, að
þessu sinni, og var á hinu frönskumælandi málsvæði Sviss. En SVEPPAGREIFINN mælir eindregið með þessum bókum.
Reyndar rakst
hann bæði á Les amis de Spirou og nýju, lituðu endurútgáfuna af Tinna
sögunni Vindlar Faraós, sem báðar voru einnig á óskalistanum góða, en fannst
þær af einhverri ástæðu of dýrar að þessu sinni. Aðalástæða var þó
sennilega sú að hann var þá ekki enn búinn að finna Franquin safnbókina
og fannst líklega of dýrt að fara að versla þær allar. Ætli
SVEPPAGREIFINN kaupi þær þá ekki bara á Netinu í vetur og þá með
tilheyrandi aukakostnaði og biðtíma. Annað eins hefur nú gerst á hans
heimili. Teiknimyndasögukaup sumarsins þóttu því í rýrari kantinum að
þessu sinni og eiginlega óttalegur samtíningur en alls bættust þó í
myndasöguhillurnar 13 bækur og 18 blöð. Þótt uppskeran hafi verið þetta
rýr var GREIFINN bara nokkuð ánægður með afraksturinn og þar koma gömlu
myndasögutímaritin sérstaklega sterk inn. En stefnan er þó samt sem áður
að gera svolítið betur næst - alla vega hvað magn varðar. Þótt bækurnar
hafi ekki verið neitt sérstaklega margar þótti SVEPPAGREIFANUM samt
alveg ástæða til að færa afraksturinn í annála á Hrakfara-síðunni sinni og skila af sér skýrslu um kaupin.
Það hefur hann jafnan gert í kjölfar myndasögukaupa sinna erlendis og
það er engin ástæða til að breyta út af venjunni þó honum hafi fundist
uppskeran svolítið fátækleg. Reyndar hefur tilurð þeirra
skrifa jafnan verið til komin vegna dauðra stunda í annars kærkomnum
fríum hans og það getur jafnvel verið töluvert afslappandi að dunda sér
við að skrifa þessar færslur í rólegheitum einhvers staðar á góðum stað
og næði. Nákvæmlega þessi orð eru til að mynda skrifuð í lest mitt á
milli borganna Bern og Biel.
Að lokum verður svo eiginlega einnig að geta þess að á sama tíma og
SVEPPAGREIFINN spókaði sig um í svissneskum fjallaþorpum þá bárust honum
fregnir af tveimur nýjum myndasögum á íslensku hjá Froski útgáfu. Þetta
eru Sval og Val bækur sem tilheyra reyndar hinni frábæru
hliðarbókaseríu Série Le Spirou de... en virðast eiga að fylgja
aðal bókaflokknum hér á landi ef mark er takandi á númerunum sem þeim
hefur verið úthlutað í íslensku útgáfuröðnni. Síðuhafi vissi reyndar að Jean Posocco
hjá Froski hefði verið að velta fyrir sér útgáfu þessara aukabóka en er
einstaklega ánægður með að hann lét verða af þeim. Nú bíður SVEPPAGREIFINN bara spenntur eftir að hinar frábæru bækur Émile Bravo, úr þessari sömu hliðarseríu, komi á endanum út á íslensku. En myndasögurnar Á valdi
kakkalakkanna, eftir Yann og Schwartz, og Svalur í Sovétríkjunum, eftir
Tarrin og Neinhard, voru að sjálfsögðu báðar komnar upp í hinar alræmdu
myndasöguhillur SVEPPAGREIFANS daginn eftir heimkomu hans og Froskur á
mikið hrós skilið fyrir þessa lofsverðu en um leið erfiðu útgáfu sína á
myndasögum á íslensku. Til þess að möguleiki sé á áframhaldandi útgáfu á
þessum frábæru teiknimyndasögum þá er mikilvægt að allir
myndasögulesendur, jafnt ungir sem aldnir, flykkist nú í Nexus og kaupi
sér sem mest af þessum bókum öllum. Öðruvísi getur þetta framtak Jean
hjá Froski ekki gengið upp en það er meira rekið af hugsjón frekar en af efnum. Sjálfur hefur SVEPPAGREIFINN reynt að hafa
það fyrir reglu að versla sér eins og eina myndasögu frá útgáfunni í
hverjum mánuði og hvetur aðra að taka upp sambærilegt eða svipað kerfi. Hver bók kostar um
það bil það sama og bíóferð (með nauðsynlegu meðlæti fyrir einn) eða miðlungsstór
Dominos pizza án goss eða brauðstanga. Menn leyfa sér svo sem annað eins. Allir út
að versla sér bækur frá Froski - þær kaupa sig ekki sjálfar!